Innlent

Eldur á Hellu

Rafn Ágúst Ragnarsson skrifar
Svartur reykur steig upp af bænum.
Svartur reykur steig upp af bænum. Aðsend

Eldur kviknaði á geymslusvæði á Hellu. Hann kom upp í plaströrum sem lágu á jörðinni við gámaþyrpingu. Eldsupptök eru ókunn.

Leifur Bjarki Björnsson slökkviliðsstjóri Brunavarna Rangárvallasýslu segir að slökkt hafi verið í eldinum og að hann hafi ekki borist í neina gámana.

„Það er allt klappað og klárt hérna,“ segir hann.

Eins og fyrr segir eru eldsupptökin ókunn og segir Leifur að rannsókn á því sé á borði lögreglunnar. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×