Flugmaður stakk kollega sinn og reyndi að brotlenda vélinni Smári Jökull Jónsson skrifar 30. september 2026 15:44 Benjamin Netanjahú forsætisráðherra Ísraels segir flugmanninn hafa ætlað að brotlenda vélinni. Vísir/AP/Getty Farþegar hjálpuðu til við að yfirbuga annan flugmann vélar Flydubai sem var á leið frá Dúbaí til Tel Avív í morgun. Benjamin Netanjahú forsætisráðherra Ísraels segir flugmanninn hafa stungið kollega sinn í flugstjórnarklefanum með hníf og hafi ætlað að brotlenda vélinni.
Vélin fór í loftið frá alþjóðaflugvellinum í Dúbaí í Sameinuðu arabísku furstadæmunum rúmlega þrjú í nótt að íslenskum tíma. Um borð voru um 150 manns og voru farþegarnir nær allir Ísraelar. Samkvæmt gögnum frá flugvefnum Flightradar24 lækkaði vélin flugið skyndilega yfir Sádi-Arabíu um tveimur og hálfum tíma eftir flugtak. Hrapaði hún um meira en 17 þúsund fet, rúma fimm kílómetra, á innan við tveimur mínútum. Skömmu síðar sendi hún frá sér neyðarkallið „squawk 7500“ sem tilkynnir um flugrán. Um klukkan 5:40 fór vélin í skamma stund inn í lofthelgi Jórdaníu áður en hún sneri aftur í lofthelgi Sádi-Arabíu. Þar hóf hún handvirkt aðflug áður en hún lenti í Tabak í norðvesturhluta landsins klukkan 6:58 að íslenskum tíma. Benjamin Netanjahú forsætisráðherra Ísraels segir að farþegi vélarinnar hafi ásamt einum áhafnarmeðlimi brotist inn í flugstjórnarklefann og náð að yfirbuga annan flugmanninn sem þá hafði stungið flugstjórann með hníf. Reyndi flugmaðurinn einnig að skemma stjórnkerfi vélarinnar. Annar úr áhöfninni kom þá inn í klefann og náði stjórn á vélinni. Flugleið flugvélarinnar samkvæmt flugvefnum FlightRadar24.Vísir/Getty „Þessar hetjur björguðu mörgum mannslífum og sýndu einstakt hugrekki og útsjónarsemi. Þær björguðu mörgum mannslífum og komu í veg fyrir stórslys,“ er haft eftir Netanjahú. „Allir öskruðu og héldu að þetta væri búið“ Flugmaðurinn var handtekinn við lendingu og yfirheyrður af yfirvöldum í Sádi-Arabíu en flugstjórinn og annar áhafnarmeðlimurinn sem aðstoðaði við yfirtökuna voru fluttir á sjúkrahús. Farþegar hafa lýst skelfingu um borð í samtölum við fjölmiðla. Í viðtali hjá Reuters segir Yasmin Abukasis að dóttir hennar hafi hringt í sig og sagt að maður með hníf hafi þvingað einn flugmanninn niður á gólf og að blóð hafi verið um allt. Hún hafi heyrt öskur og flugmanninn kalla á hjálp. „Vélin var stjórnlaus, allir öskruðu og héldu að þetta væri búið,“ bætir Abukasis við í viðtali við AP. 🔴 Impressionnante vidéo au moment de l’attaque à bord du vol Flydubai reliant Dubaï à Tel Aviv.Des passagers, dont deux pilotes hors service présents à bord, auraient aidé l’équipage à reprendre le contrôle de l’appareil.Les deux pilotes aux commandes auraient été grièvement… pic.twitter.com/5U9pa77Jxv— air plus news (@airplusnews) September 30, 2026 Á samfélagsmiðlinum X má sjá fjölmörg myndbönd sem farþegar hafa deilt sem sýnir stöðuna um borð. Þá er haft eftir farþega í Jerusalem Post að farþegar framarlega í vélinni hafi rekið árásarmanninn út úr flugstjórnarklefanum eftir að flugmaðurinn var stunginn. Tveir flugmenn úr farþegahópnum hafi síðan aðstoðað við lendinguna. Segir atvikið tilraun til hryðjuverkaárásar Ísraelski varnarmálaráðherrann, Israel Katz, segir fyrstu vísbendingarnar benda til þess að annar flugmannanna hafi ætlað að brotlenda vélinni og drepa alla um borð. Hann kallaði atvikið tilraun til hryðjuverkaárásar í nafni heilags stríðs og hrósaði farþegunum sem yfirbuguðu flugmanninn. A violent altercation and stabbing in the cockpit of a FlyDubai flight over Saudi Arabia this morning caused the 737-8 to plummet 18,400 feet in just under two minutes, exceeding its maximum operating speed by nearly 100 kts.The aircraft landed safely in Tabuk. pic.twitter.com/POg0WCN1WS— OSINTtechnical (@Osinttechnical) September 30, 2026 Í yfirlýsingu Flydubai segir að deilur hafi komið upp í flugstjórnarklefanum og að áhöfn um borð hafi tryggt stjórn á vélinni og lent henni heilu og höldnu í Tabuk. Allir farþegar og áhöfn séu heil á húfi. „Á þessu stigi eru undirliggjandi ástæður og tilgangur atviksins óþekkt og háð formlegri rannsókn,“ segir meðal annars í yfirlýsingu flugfélagsins sem hvetur fólk til að forðast „ótímabærar getgátur“.
Flug Ísrael Sádi-Arabía Sameinuðu arabísku furstadæmin Mest lesið Herlið á leiðinni og Íslendingar hafi varann á Erlent „Hvaða skaða hef ég valdið, Elliði?“ Innlent Fær hvorki bætur né afsökunarbeiðni eftir að hafa stungið sig á saumnál Innlent Musk setti Úkraínumönnum takmörk á tengingar við Starlink Innlent „Ég er ekkert að ýja að því, ég er bara að segja það fullum fetum“ Innlent Óhugnanlega margir að leysa vandamálin með töflum Innlent Skafið og saltað Veður Segir lögreglumenn á Vestfjörðum áhyggjufulla Innlent Bæjarstjóri Ölfuss segir múslima „valda skaða“ Innlent Þungmálmar í drykkjarvatni á Svalbarða vegna þiðnunar Erlent Fleiri fréttir Herlið á leiðinni og Íslendingar hafi varann á Þungmálmar í drykkjarvatni á Svalbarða vegna þiðnunar Meintir njósnarar handteknir í Danmörku Selenskí og bandamenn hitta fulltrúa Trump í Osló Heita því að refsa Norður-Kóreu fyrir ögranir Braut ekki af sér þegar hann skaut barn til bana Verðlag og óvissa leiða til óeirða í Evrópu Þróa þjónustustöð fyrir tunglið Íbúar Alberta höfnuðu áætlunum um sjálfstæði Orðrómar valda ugg og ótta í Mílanó: „Það eru allir frekar hræddir“ Christiane Amanpour mun kveðja CNN Fara fram á útgöngubann í nokkrum frönskum borgum Sakaðir um að svelta 190 börn til dauða Hótar að auka viðbúnað á landamærunum Miðflokkurinn fær umboðið Borgir geti sett á útivistarbann: „Nemandi hefur misst höndina“ Prestur lést þegar róðukross féll á hann Senda far til að kanna uppruna Fóbosar Ók viljandi á ástralska þingkonu Vill funda með Trump og Xi um örlög Úkraínu Neyðarlending eftir sprengjuhótun Neitaði að samþykkja afsögn vegna mótmælanna Hvetur til stillingar og boðar aðgerðir Selenskí vilji ekki binda enda á stríðið Fjórir hermenn létust í eldsvoða Ræstingakona læstist óvart í fangaklefa í þrjá daga Hörð átök lögreglu og mótmælenda í París Barn og fullorðinn létu lífið þegar bíl var ekið inn á knattspyrnuvöll Landtökumenn réðust á evrópska erindreka Lögreglan skarst í leikinn á mótmælum í Kaupmannahöfn Sjá meira