Fylgjendafjöldi Kristrúnar fimmfaldast Kristrún Frostadóttir vakti greinilega athygli heimamanna á leiðtogafundi Atlantshafsbandalagsins í Tyrklandi í vikunni. Fylgjendafjöldi hennar á Instagram hefur fimmfaldast og farið úr 20 þúsundum í rúm 107 þúsund á fjórum dögum. Nýju fylgjendurnir virðast flestir vera Tyrkir og hafa færslur Kristrúnar fyllst af tyrkneskum ummælum. Lífið 10.7.2026 10:41
Fengu öll áletraða skammbyssu að gjöf frá Erdogan Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra og aðrir leiðtogar NATO-ríkjanna fengu skammbyssu að gjöf frá Recep Tayyip Erdogan Tyrklandsforseta við lok leiðtogafundar NATO í Ankara í gær. Nafn hvers og eins leiðtoga var áletrað á byssuna sem sá fékk að gjöf og fylgdi kassi af skotfærum með, auk græja til að hreinsa byssuna. Innlent 9.7.2026 07:53
Trump sló harðan tón við upphaf leiðtogafundar NATO Bandaríkjaforseti hefur ítrekað á ný að Grænland eigi að tilheyra Bandaríkjunum. Hann lét í ljós vonbrigði og óánægju með viðbrögð NATO-ríkja við stríðinu í Íran. Hann hafi lagt próf fyrir evrópsk bandalagsríki þegar hann hafi óskað eftir stuðningi þeirra. Erlent 7.7.2026 21:29
Skutu niður eldflaugar í landhelgi Tyrklands Stjórnvöld í Tyrklandi, Katar, Barein, Sádi Arabíu og Sameinuðu arabísku furstadæmunum segjast hafa skotið niður íranskar eldflaugar í landhelgi þeirra í dag. Á sama tíma hafa Ísraelar og Bandaríkjamenn haldið linnulausum árásum á Íran áfram. Erlent 9. mars 2026 18:55
Ráðast á bandarískt olíuflutningaskip en sverja af sér árás á Tyrkland Hernaðaryfirvöld í Íran skutu eldflaug á bandarískt olíuflutningaskip á Persaflóa, ef marka má írönsku fréttastofuna Tasnim. Fréttastofan segir eld loga í skipinu. Erlent 5. mars 2026 08:46
Gæti Ísland dregist inn í átökin?: Eldflaug frá Íran skotin niður í lofthelgi Tyrklands Tyrkneska varnarmálaráðuneytið greindi frá því fyrr í dag að varnarkerfi Atlantshafsbandalagsins hefðu skotið niður eldflaug sem skotið var frá Íran og var á leið inn í lofthelgi Tyrklands. Sérfræðingur í varnarmálum segir líklega meira þurfa til að 5. grein Atlantshafssáttmálans verði virkjuð og að Ísland dragist inn í þau átök sem nú standa yfir. Erlent 4. mars 2026 14:50
Tyrkir vilja sendiráð á Íslandi Á símafundi Þorgerðar Katrínar Gunnarsdóttur utanríkisráðherra og Hakan Fidan, utanríkisráðherra Tyrklands, greindi sá síðarnefndi frá að Tyrkir hyggjast koma á fót sendiráði hér á Íslandi. Innlent 6. febrúar 2026 14:53
Mótmæla og biðla til utanríkisráðherra Samfélag Kúrda á Íslandi hefur boðað til mótmæla í dag og krefst tafarlausrar aðgerða vegna alvarlegrar stöðu Kúrda í Sýrlandi og Tyrklandi. Talsmaður hópsins segir kallar eftir því að utanríkisráðherra beiti sér fyrir vopnahléi. Innlent 1. febrúar 2026 12:16
Ákvörðunin á ábyrgð stjórnenda Icelandair en ekki flugmanna Forsvarsmenn Félags íslenskra atvinnuflugmanna, eða FÍA, segja það alfarið á ábyrgð stjórnenda Icelandair að hætta eigi að fljúga til Istanbúl í Tyrklandi. Stjórnendur hafi gert mistök sem nú sé verið að varpa yfir á flugmenn. Ekkert í núverandi kjarasamningi komi í veg fyrir áframhaldandi flug til Istanbúl. Viðskipti innlent 17. janúar 2026 08:15
Hætta flugi til Istanbúl eftir að flugmenn drógu undanþágu til baka Icelandair hefur ákveðið að hætta flugi til Istanbúl í Tyrklandi frá og með 1. febrúar 2026. Viðskipti innlent 16. janúar 2026 14:17
Martraðakennd flugferð: „Það voru allir að öskra á Allah og hágrátandi“ Átján ára íslenskur skiptinemi í Tyrklandi slapp með skrekkinn í innanlandsflugi ytri þegar gríðarmikil ókyrrð skók vélina. Átta slösuðust alvarlega. Hún lýsir því hvernig fólk bað til guðs, hágrét af ótta og mæður ríghéldu í börnin sín á meðan flugvélin var í frjálsu falli. Innlent 10. janúar 2026 07:01
Handtóku 357 meinta ISIS-liða í kjölfar mannskæðra átaka Yfirvöld í Tyrklandi hafa handtekið 357 menn sem grunaðir eru um að tengjast Íslamska ríkinu. Var það gert í kjölfar skotbardaga milli lögregluþjóna og ISIS-liða í gærmorgun þar sem þrír lögregluþjónar, öryggisvörður og sex ISIS-liðar féllu. Erlent 30. desember 2025 16:44
Þrír lögregluþjónar og sex ISIS-liðar fallnir eftir átök í Tyrklandi Að minnsta kosti þrír lögregluþjónar og sex vígamenn Íslamska ríkisins liggja í valnum eftir bardaga þeirra á milli í Tyrklandi í morgun. Átta lögregluþjónar og öryggisvörður eru særðir eftir átökin, sem áttu sér stað í Elmali, suður af Istanbul. Lögregluþjónar eru sagðir hafa gert áhlaup á hús þar sem vígamennirnir héldu til. Erlent 29. desember 2025 11:46
Yfir hundrað handteknir grunaðir um að skipuleggja árásir á gamlársdag Tyrknesk yfirvöld hafa handtekið yfir hundrað manns sem eru grunaðir um að skipuleggja árásir á jólunum og gamlárskvöld gegn fólki sem er ekki af múslimatrú. Erlent 25. desember 2025 16:30
Bíða enn eftir tæpri milljón í endurgreiðslu eftir fall Play Jón Marinó Birgisson og Herdís Rós Kjartansdóttir bókuðu golfferð hjá Eagle golfferðum sem ekki var farið í vegna falls Play. Þau segja fyrirtækið ítrekað hafa tilkynnt að það sé verið að vinna í málinu en þau hafa enn ekki fengið neitt endurgreitt. Alls ætluðu þau að fara tólf saman til að halda upp á afmæli eins fjölskyldumeðlims. Fyrirtækið segir fall Play hafa sett starfsemi í uppnám en ítrekar að endurgreiðsluréttur sé tryggður. Neytendur 1. desember 2025 09:15
Tuttugu fórust þegar tyrknesk herflugvél hrapaði Tuttugu eru látnir eftir að flugvél tyrkneska hersins hrapaði í Georgíu í gær. Þetta staðfesti varnarmálaráðherra Tyrklands í morgun. Erlent 12. nóvember 2025 08:06
Krefjast tvö þúsund ára fangelsisdóms yfir borgarstjóranum Tyrkneskir saksóknarar krefjast tvö þúsund ára fangelsisdóms yfir Ekrem İmamoğlu borgarstjóra Istanbúl. Hann hefur setið í fangelsi síðan í mars vegna meintra spillingarmála en hann er einn helsti andstæðingur Recep Tayyip Erdogan Tyrklandsforseta. Erlent 11. nóvember 2025 13:20
Tchéky Karyo látinn Tyrkneski leikarinn Tchéky Karyo er látinn 72 ára að aldri. Fjölskylda Karyo greinir frá andláti hans, en banamein hans mun hafa verið krabbamein. Lífið 1. nóvember 2025 23:59
Magga Stína í flugi á leið til Istanbúl Margrét Kristín Blöndal, Magga Stína, er nú laus úr haldi Ísraela og á leið til Istanbúl í Tyrklandi. Þaðan mun hún fljúga til Amsterdam í Hollandi þar sem hún mun hitta Salvöru Gullbrá Þórarinsdóttur, dóttur sína. Þar mun hún hvíla sig í nokkra daga áður en hún heldur heim til Íslands. Innlent 10. október 2025 10:20
Héldu vöku fyrir leikmönnum Liverpool Stuðningsmenn Galatasaray í Tyrklandi vöktu frameftir í von um að trufla svefn leikmanna Liverpool sem gistu á hóteli í Istanbúl í nótt. Liðin eigast við í Meistaradeild Evrópu í kvöld. Fótbolti 30. september 2025 12:02
Hárprúður Eiður heillar Þykkt hár Eiðs Smára Guðjohnsen í nýrri auglýsingu fyrir veðmálasíðuna Epicbet hefur vakið athygli. Stutt er síðan hár hans var farið að þynnast ansi mikið. Eiður hefur ekki tjáð sig um það sjálfur en virðist hafa farið í hárígræðslu. Lífið 1. september 2025 16:05
Eyðilegging eftir skjálfta í Tyrklandi Einn er látinn eftir að skjálfti 6,1 að stærð reið yfir í Balikesir-héraði í vesturhluta Tyrklands í gærkvöldi. Erlent 11. ágúst 2025 06:47
Stór skjálfti reið yfir í Tyrklandi Jarðskjálfti upp á 6,1 skók borgina Balıkesir í vestanverðu Tyrklandi í dag. Skjálftinn fannst víða um landið vestanvert og í Istanbúl. Erlent 10. ágúst 2025 18:24
Setjast enn og aftur við samningaborðið en væntingar eru litlar Sendinefnd Rússa er á leið til Istanbúl í Tyrklandi þar sem hún tekur þátt í nýrri umferð friðarviðræðna með fulltrúum Úkraínu. Væntingarnar eru litlar. Erlent 23. júlí 2025 13:58