Innlent

Illa brugðið en heill á húfi

Tómas Arnar Þorláksson skrifar
Frá Hólmsheiði. Myndin tengist ekki fréttinni með beinum hætti.
Frá Hólmsheiði. Myndin tengist ekki fréttinni með beinum hætti. vísir/vilhelm

Flugvél af gerðinni Sky Hook 172 fór út af flugbrautinni á Hólmsheiði við lendingu í gær. Skemmdir urðu á vélinni en engan sakaði í slysinu. Málið er á borði Rannsóknarnefndar samgönguslysa. 

Þetta staðfestir flugmaður flugvélarinnar í samtali við fréttastofu. Hann er heill á húfi þótt að honum hafi brugðið illa við atvikið. Hann baðst undan því að koma fram undir nafni þar sem atvikið er nú til rannsóknar. 

Flugvélin var á leið frá Vestmannaeyjum til Reykjavíkur og ætlaði að lenda á flugbraut þar sem Fisfélag Reykjavíkur hefur aðstöðu. Það er til skoðunar hvað olli því að flugvélin fór út af en að sögn sjónarvotta var blautt á grasbrautinni sem gerir skilyrðin til lendingar verri.

Flugvélin staðnæmdist rétt fyrir neðan þar sem að brautin endar á litlum barða og var aftari hluti vélarinnar innan við metra frá brautinni. Skemmdir urðu á skrokk flugvélarinnar og á vélinni sjálfri.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×