Minntist pabba síns John Snorra: „Að sjálfsögðu hringdi ég í pabba!“ Oddur Ævar Gunnarsson skrifar 6. október 2026 20:00 Halla vakti mikla athygli. Halla Karen Johnsdóttir dóttir fjallgöngugarpsins John Snorra minntist föður síns frammi fyrir smekkfullu Háskólabíói í tvígang um helgina á sérstakri hátíðarsýningu RIFF á heimildarmyndinni um för föður hennar upp á K2 að vetrarlagi þar sem hann fórst árið 2021. Hún segir það mikilvægasta sem faðir hennar kenndi henni hafa verið að njóta ævintýranna á meðan hægt er.
Um þúsund manns voru í hátíðarsal Háskólabíós á sýningu myndarinnar á sunnudagskvöld en sýningin var færð þangað vegna gríðarlegrar eftirspurnar og var myndin sýnd samtímis í tveimur öðrum sölum bíósins. Myndin ber heitið The Last First: Winter K2 og segir frá hinstu för Johns Snorra upp á tind fjallsins K2 að vetri til. Tómas Guðbjartsson stýrði pallborði eftir myndina en hann var góður vinur Johns Snorra og kynnti Höllu Karen óvænt upp á svið. Klippa: Halla Karen Johnsdóttir minnist föður síns Var fyrst efins um að opna sig Halla byrjaði á að útskýra vangaveltur sínar um að þiggja boð Tómasar um að ræða við gesti. „Fyrsta innsæið mitt sagði mér bara að afþakka. En ég leyfði þessu að malla svolítið hjá mér núna í vikunni og ég fann það hjá mér að það gæti verið mikilvægt að koma og segja nokkur orð og ég held líka að pabbi yrði mjög stoltur af því og ánægður, þannig ég ákvað að láta slag standa og mæta,“ útskýrði Halla í ræðu sinni. Halla er 26 ára og hefur meðal annars látið að sér kveða á vettvangi Ungra athafnakvenna. Halla rifjaði sérstaklega upp tvær sögur af pabba sínum sem hún sagði lýsa honum vel. Fyrst rifjaði Halla upp þegar hún kom heim frá útlöndum úr útskriftarferð í menntaskóla. „Og eins og flestir vita þegar maður fer í svona útskriftarferð þá er ekkert rosa mikið sofið og það er alveg svolítið djamm í gangi. En pabbi kemur og sækir mig á flugvöllinn og eitt af því fyrsta sem hann spyr mig er hvort ég vilji ekki labba með sér á Hvannadalshnjúk daginn eftir?“ sagði Halla við hlátrasköll í salnum. „Og ég man, ég sko horfði á pabba og ég var bara: „Pabbi, ertu að djóka? Þetta er bara hræðilegasta hugmynd sem ég hef heyrt.“ Það var bara ekki séns að ég væri að fara að koma með. En hann var bara með svo ótrúlega mikinn sannfæringarkraft og hann var bara svona ótrúlega peppandi týpa. Þannig að hann sagði við mig bara: „Halla, hvað er betra í þynnkunni heldur en að vera úti í góða veðrinu og bara vera með fjöllunum, íslensk náttúra!“ Þannig endaði það þannig að ég að sjálfsögðu fór með.“ Hún segir fjölskylduna hafa farið saman og gist á tjaldsvæðinu við Hvannadalshnjúk. Hún hafi vaknað snemma með pabba sínum og átt ótrúlega gæðastund saman þar sem mikið var spjallað. „Að sjálfsögðu hringdi ég í pabba“ „Og þeir sem þekktu pabba vita að hann er ótrúlega kraftmikill og geðveikt mikil orka í kringum hann, ótrúlega skemmtileg týpa til þess að vera með. En pabbi var ekki bara alltaf að draga okkur með í sín ævintýri heldur var hann líka sá sem stóð með okkur þegar við þurftum á honum að halda,“ segir Halla. Hún rifjaði upp þegar hún var þrettán ára gömul í útivistaráfanga í grunnskóla þar sem til hafi staðið að fara í Þórsmerkurferð í tvær nætur. Stutt hafi verið í ferðina þegar komið hafi í ljós að ekki væri til nægt fjármagn til þess að fara. „Og við vorum ótrúlega leið bekkurinn af því við vorum svo spennt. Þannig að ég spyr kennarann hvort það sé eitthvað sem hægt væri að gera þannig að við gætum fengið að fara í Þórsmörk. Hann segir að ef við fáum einhvern til að fara með okkur og einhvern til að redda bíl og ferja okkur upp eftir þá ættum við að fá að fara. Og hvað gera bændur í slíkum aðstæðum? Jú, að sjálfsögðu hringdi ég í pabba!“ Halla segir föður sinn alltaf hafa verið til í slík uppátæki og sjaldan eða aldrei sagt nei við börnin sín ef um væri að ræða skemmtilegar uppástungur. Þarna hafi hins vegar aðeins þurft að sannfæra hann. „Af því að þetta var á virkum degi og hann var bara einn með okkur systkinin og mamma var erlendis. En hann var síðan að sjálfsögðu til í að koma með, hann hringdi og reddaði bíl og fór með okkur í Þórsmörk og tók bara systkini mín með. Það var svo ótrúlega skemmtilegt, hann var bara einn af hópnum, við fórum í göngur, í leiki, það var svo gaman og hann og systkini mín tóku þátt í öllu sem við gerðum. Það gerði ferðina eftirminnilegri og skemmtilegri að hann hafi komið með af því að hann þekkti Þórsmörk svo vel og það var einn af uppáhaldsstöðunum hans.“ Mesta fyrirmyndin Halla segir föður sinn hafa verið og sé enn hennar mesta fyrirmynd. Hann sé sá sem hafi kennt henni mikilvægi þess að vera jákvæð, ákveðin og brosmild. „Og sýndi mér mikilvægi þess að setja sér markmið og hafa trú á sjálfum sér og því að maður geti náð markmiðum sínum. Ég held að það stærsta sem hann kenndi okkur öllum sé það að við eigum að njóta ævintýranna á meðan við getum af því við vitum aldrei hvað lífið ber í skauti sér þannig að við ættum öll að fara í ævintýrin og vera óhrædd við að prófa nýja hluti og setja okkur markmið. Svolítið eins og pabbi.“
John Snorri á K2 Mest lesið Kristrún valdi Victoriu Beckham Tíska og hönnun „Ég geri bara ráð fyrir því að fólk sé búið að gleyma mér“ Tónlist Ice Spice og Millie skelltu sér í pottinn Lífið Barnaspítalabindi Billy stal senunni Tíska og hönnun Minntist pabba síns John Snorra: „Að sjálfsögðu hringdi ég í pabba!“ Lífið Dorrit um skilnaðinn: „Líf mitt er algjörlega á hvolfi“ Lífið Stjörnurnar þefuðu á Kjarval Lífið Hvað veistu um... íslenska hönnun? Lífið Grétu af gleði þegar þær hittust loksins Lífið Funheit í fimm ára afmæli Lífið Fleiri fréttir „Það væri ekki hægt að skrifa þetta handrit“ Minntist pabba síns John Snorra: „Að sjálfsögðu hringdi ég í pabba!“ Dagbók lögreglu: Próflaus eineygður ökumaður flúði af vettvangi Grétu af gleði þegar þær hittust loksins Stjörnurnar þefuðu á Kjarval Ice Spice og Millie skelltu sér í pottinn Hvað veistu um... íslenska hönnun? Funheit í fimm ára afmæli Engum brögðum beitt í útgáfuhófi Bragðs Tendra friðarsúluna í tuttugasta sinn Elegant herrar selja perlu í 101 Tískudrottningar fögnuðu kærkominni opnun Dorrit um skilnaðinn: „Líf mitt er algjörlega á hvolfi“ Barnsfaðir Gypsy Rose fannst látinn Stjörnulífið: „Lukka lífs míns að vera gift þessum“ Fæddist á Íslandi en þurfti áratugi til að fá það staðfest Fyndnustu dýralífsmyndir ársins Ekki átakalaust að breyta rótgrónu félagi Ástæða fyrir því að þau fóru ekki hátt með sambandið Hágrét í rúminu þegar allur peningurinn var búinn Krakkatía vikunnar: Eurovision, Harry Potter og Mr. Beast Líður betur eftir að hún þurfti að þjóta upp á spítala í miðri útsendingu Haustbingó Blökastsins í beinni Hemmi Gunn hjálpaði Hilmari og Birni Braga að svindla Segir Ríkissjónvarpið bregða fyrir sig fæti Unglingavinnan var tískupallurinn í París „Hún byrjaði alla daga á því að fara í kirkjugarðinn í Fossvogi“ Fréttatía vikunnar: Jesus, Haaland og Prettyboitjokkó Neitar að hafa haldið fram hjá Lönu del Rey Ice Spice fór á klósettið á OTO Sjá meira