Maður skotinn af fulltrúum ICE í New York Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifar 9. október 2026 06:56 Zohran Mamdani, borgarstjóri New York, vill ICE-fulltrúana burt úr borginni. EPA Fulltrúar bandarísku innflytjenda- og tollgæslustofnunarinnar, þekktir sem ICE, skutu mann í New York-borg í gær. Borgarstjóri New York gagnrýnir atvikið og vill að bundinn verði endi á aðgerðir ICE í borginni.
Heimvarnaráðuneyti Bandaríkjanna, sem hefur yfirumsjón með ICE, staðfesti að fulltrúi ICE hefði hleypt af vopni sínu í aðgerð „til að handtaka glæpamann sem dvelur ólöglega í landinu“. Í yfirlýsingu, sem BBC greinir frá, segir að maðurinn sé á lífi og á sjúkrahúsi í nágrenninu. Einnig kemur fram að maðurinn væri frá Dóminíska lýðveldinu og hefði „áður hlotið dóm fyrir stórfelldan þjófnað og margsinnis verið handtekinn fyrir líkamsárás, rán, fíkniefnavörslu og vopnaburð“. Einnig er því haldið fram að maðurinn tengdist Trinitarios, sem bandaríska dómsmálaráðuneytið lýsir sem fjölþjóðlegum glæpasamtökum. Zohran Mamdani, borgarstjóri New York-borgar, gagnrýnir atvikið. „Fyrstu fregnir benda til þess að fulltrúar hafi umkringt hann og fimm ára barn í bíl hans áður en þeir skutu mörgum skotum. Við teljum að barnið hafi ekki hlotið líkamlegan skaða,“ sagði Zohran og bætti við að um væri að ræða „óforsvaranlegt og gríðarlega alvarlegt ástand“. Hann ætli ekki að standa aðgerðalaus og ætlar að biðja Trump um að binda enda á aðgerðir ICE í borginni. Kathy Hochul, ríkisstjóri New York, sagðist hafa rætt við Donald Trump Bandaríkjaforseta um skotárásina og lýst yfir hneykslan. Hún hafi einnig farið fram á að gera allar upptökur úr búkmyndavélum fulltrúa ICE opinberar. Trump hefur ekki tjáð sig opinberlega um málið. Þetta er ekki í fyrsta skipti sem fulltrúar ICE skjóta borgara Bandaríkjanna og hafa nokkrir þeirra látist. Þar á meðal var hin 37 ára gamla Renee Good sem var skotin í höfuðið í bíl sínum í byrjun árs.
Donald Trump Bandaríkin Skotárásir í Bandaríkjunum Innflytjendarassíur ICE í Bandaríkjunum Tengdar fréttir Nýtt myndband af banaskotinu: „Helvítis tík“ Fjöldi fólks kom saman í Minneapolis og Portland í Bandaríkjunum í gær til að mótmæla aðgerðum stjórnvalda í innflytjendamálum undanfarna daga. Meira en þúsund mótmæli hafa verið skipulögð um helgina um landið allt og er þess krafist að stjórnvöld stöðvi aðgerðir. 10. janúar 2026 13:32 Hjón skotin af alríkisútsendurum í Portland Útsendarar heimavarnaráðuneytis Bandaríkjanna skutu og særðu í gær tvo í bíl fyrir utan sjúkrahús í Portland. Það var degi eftir að kona var skotin til bana í Minneapolis en eins og þar leiddi skothríðin í Portland til nokkuð umfangsmikilla mótmæla í borginni í nótt. 9. janúar 2026 09:13 Mest lesið Útilokar ekki verkfall eftir útspil sem kom eins og þruma úr heiðskíru lofti Innlent Staðfesta tveggja ára dóm fyrir nauðgun eftir þorrablót Innlent Sagður hafa átt í samskiptum við kínverskan njósnara Erlent Þristurinn gefinn Flugsafni Íslands Innlent „Kisur eru að missa fæturna“ Innlent Héldu námskeið um heiðursofbeldi Innlent Veruleikinn breyttur eftir ofsaakstur á ónýtum bíl Innlent Hirti sagt upp störfum hjá Hagstofunni Innlent Kveiksþætti kippt út tímabundið Innlent Nýja Ölfusárbrúin hægt en örugglega dregin yfir ána Innlent Fleiri fréttir Sagður hafa átt í samskiptum við kínverskan njósnara Óvænt ákvörðun þingforsetans reitir vinstrimenn til reiði Tvö mannskæð slys vekja upp spurningar um öryggi Hafnar ásökunum um kosningasvindl Blóðbað á lestarpalli Krefjast enn að forsetinn verði dæmdur til dauða Þriggja daga þjóðarsorg hafin á Spáni Telja síðustu atkvæðin í Ísrael Stýrivextir óbreyttir og stutt í kosningar Skipverjar skemmtiferðaskips sitja fastir í Kambódíu Senda þúsund hermenn til Haítí eftir umsátur Kerfisvilla og mannleg mistök leitt til slyssins Fleiri gamalmenni en börn í Kína Sátu undir sögufyrirlestri Pútíns Báðir vilja mynda ríkisstjórn en ekki vinna með aröbum Minnst 64 sagðir látnir í árekstri hraðlesta á Spáni Opinberuðu lögbrot í kjúklingabúi með falinni myndavél Ted Bundy tengdur við 52 ára gamalt óleyst morð Meirihluti atkvæða talinn en enginn með þingmeirihluta Tekur við Bolsonaro opnum örmum Munda fallbyssurnar við landamærin Enginn skýr sigurvegari í útgönguspám Efins um „einkaframtak Norðmanna og Finna“ Tveir ákærðir vegna uppákomu við bandaríska herstöð á Englandi Ákæra Comey enn eina ferðina Stubb og Støre ræddu við Pútín Fóðruðu loftslagsvá aðeins minna en metárið á undan Kjörstaðir opnir í Ísrael Óljóst hver mun leiða ríkisstjórn Stúdenta í Serbíu Trump segir svindlað í brasilísku kosningunum Sjá meira
Nýtt myndband af banaskotinu: „Helvítis tík“ Fjöldi fólks kom saman í Minneapolis og Portland í Bandaríkjunum í gær til að mótmæla aðgerðum stjórnvalda í innflytjendamálum undanfarna daga. Meira en þúsund mótmæli hafa verið skipulögð um helgina um landið allt og er þess krafist að stjórnvöld stöðvi aðgerðir. 10. janúar 2026 13:32
Hjón skotin af alríkisútsendurum í Portland Útsendarar heimavarnaráðuneytis Bandaríkjanna skutu og særðu í gær tvo í bíl fyrir utan sjúkrahús í Portland. Það var degi eftir að kona var skotin til bana í Minneapolis en eins og þar leiddi skothríðin í Portland til nokkuð umfangsmikilla mótmæla í borginni í nótt. 9. janúar 2026 09:13