Afskipti formanns Eflingar séu með ólíkindum Smári Jökull Jónsson skrifar 9. október 2026 12:02 Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar sagði framferði Höllu Gunnarsdóttur formanns VR í gær hafa sett svartan blett á gærdaginn. Halla sagði afskipti Sólveigar af innri málum VR vera með ólíkindum. Vísir/Anton Brink/Vilhelm Formaður VR segir skrýtið að standa í metingi við leiðtoga verkalýðsfélaga um niðurstöður kjarasamninga og að það sé rangt að ekkert hafi breyst frá því breiðfylkingin samdi á þriðjdag og þar til VR skrifaði undir samning í gær. Hún segir afskipti formanns Eflingar af innra starfi VR vera með ólíkindum.
Eftir að samkomulag VR og SA náðist í gær sagði Vilhjálmur Birgisson, formaður Starfsgreinasambandsins, að fjölmiðlasirkus formanns VR hefði ekki skilað félagsmönnum hennar betri kjörum og kallaði atburðarásina leikrit. Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar fullyrti að pakki stjórnvalda hefði legið fyrir á þriðjudag og að framferði formanns VR hefði sett svartan blett á gærdaginn. „Þau eiga fullan rétt á því“ Halla segir rangt að ekkert hafi gerst frá því á þriðjudag og þar til í gær. Ekki hafi verið um leikrit að ræða og hún segir skrýtið að standa í metingi um þessi mál. „Ég hef svo sem áður gert athugasemdir við afskipti formanns Eflingar af innri málum VR og þau hafa á köflum verið með ólíkindum. Mér finnst mjög skrýtið ef við eigum að vera að standa í einhverjum metingi um ólíkar niðurstöður í kjarasamningum. Það er bara eðlilegt,“ sagði Halla í viðtali í hádegisfréttum Bylgjunnar. „Þetta eru ólíkir hópar, samningsrétturinn er hjá okkur hverju og einu fyrir sig. Við erum bara að hugsa um hag okkar fólks og vinna í umboði okkar félagsfólks, stjórna, samninganefnda og trúnaðarráða og það að við nálgumst hlutina með ólíkum hætti er bara eðlilegt.“ Halla bætir við að hóparnir séu með ólíkt hagsmunamat. „Þau eiga bara fullan rétt á því. Okkar samningar snúast um okkar félag og að sjálfsögðu gerum við hlutina með þeim hætti sem við teljum best. Við vorum ekki búin að ná samkomulagi fyrr í vikunni.“ Mjög stórir hópar sem ekki hafa fengið vaxtabætur Samkomulag hafi náðst einni mínútu áður en frestur til uppsagnar rann út. Haft var eftir Höllu í kjölfarið að aðkoma forsætisráðherra hefði breytt stöðunni og nefndi Halla sérstaklega ákvæði um vaxtabótaviðauka sem og nýtt forsenduákvæði sem tekur mið af verðbólgumælingum. Forsætisráðherra greindi frá sex sameiginlegum aðgerðum stjórnvalda og aðila vinnumarkaðarins sem fara á í sem og þrettán aðgerðum ríkisstjórnarinnar. Þær fela meðal annars í sér að haldið verður aftur af hækkunum opinberra gjalda og að þróun barnabóta verði komið í fastar skorður. Halla segir að vaxtabótaákvæðið hafi verið kynnt á þriðjudag en forsendur ekki legið fyrir. „Við erum með stóra hópa innan okkar félags sem hafa verið að ganga í gegnum launalækkanir. Þeir eru á millitekjum, jafnvel lægri millitekjum, og með mjög miklar húsnæðisskuldir og við vildum gæta að því að sá hópur væri að einhverju leyti varinn.“ Vinnan hafi snúist að því að venjulegt launafólk finni fyrir breytingunum. „Vaxtabætur hafa verið svo gríðarlega tekjutengdar og reyndar verið líka inni í þeim eignamörkum sem hafa gert það að verkum að mjög stórir hópar sem eru mjög vaxtapíndir hafa ekki fallið undir þær.“ „Það er það sem okkur finnst allra mikilvægast“ Um einskiptisaðgerð sé að ræða sem muni öðlast gildi fari verðbólga yfir ákveðið viðmið. „Með því er verið að dreifa áhættunni af óvissu í efnahagsmálum, að hún lendi ekki öll á herðum launafólks og skuldugra heimila. Inni í pakka stjórnvalda eru líka aðgerðir sem snúa að leigjendum, barnabótum og ýmsu fleiru. Þar til búið var að útfæra þetta var ekki mikið sem kom beint til móts við húsnæðiseigendur og skuldara.“ Halla nefnir sérstaklega forsenduákvæðið sem er hluti af samkomulagi VR og SA. „Það skiptir okkur mjög miklu máli þar sem við erum komin með ákveðin viðmið fyrir verðbólguþróun og slík viðmið geta virkað sem hvati til þess að allir aðilar sitji að árum og missi ekki sjónar á verkefninu.“ „Í því ákvæði og vaxtabótaaukanum gagnvart ríkisstjórninni er verið að miða við verðbólgutölur sem eru þannig að það koma inn varnir fyrir okkar fólk ef verðbólga fer fram úr þeim launahækkunum sem það fær á næsta ári og það er það sem okkur finnst allra mikilvægast,“ sagði Halla að endingu.
Kjaramál Kjaraviðræður 2023-25 Vinnumarkaður Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Mest lesið Lokun einu innilaugar sveitarfélagsins íbúum mikið áfall Innlent Afskipti formanns Eflingar séu með ólíkindum Innlent Bílastæði eða bekkir og blómapottar? Innlent Nærri því áttatíu borgarar liggja í valnum Erlent Maður skotinn af fulltrúum ICE í New York Erlent Fjárfesti í SpaceX og hóf svo átak sem gæti hagnast fyrirtækinu Erlent Veðmál á sigur Navalnaju hrúgast inn Erlent Helsti herbloggari Rússlands handtekinn í Svartfjallalandi Erlent Friðarsúlan hefur kostað rúmar hundrað milljónir króna Innlent Navanethem Pillay hlaut friðarverðlaun Nóbels Erlent Fleiri fréttir Ísraelskum ferðamönnum mismunað á veitingastað vegna uppruna Óskar svara eftir að faðir missti dóttur sína erlendis Segir sáttina kosta ríkissjóð 1,6 milljarða til viðbótar Kannast ekkert við brot og munu aðstoða við rannsókn Úrskurðaður í farbann Afskipti formanns Eflingar séu með ólíkindum Í beinni frá höfuðstöðvum Ölgerðarinnar Borað eftir heitu vatni í Laugardal Friðarsúlan hefur kostað rúmar hundrað milljónir króna Hellisheiðin lokuð til vesturs Borgin afturkallar lóðir trúfélaganna Lokun einu innilaugar sveitarfélagsins íbúum mikið áfall Maður réðst á annan og skemmdi bíl Bílastæði eða bekkir og blómapottar? Vilja auka viðveru NATO í norðri Máttu tæma lónið „Varpar skugga á skólasamfélagið í heild“ „Ég fagna því að þessu leikriti sé lokið“ Þetta eru aðgerðirnar sem fara á í Ók lyfjaður á gangandi vegfaranda Bein útsending: Forsætisráðherra boðar til blaðamannafundar Dagskrá aflýst í dag og óljóst hvernig ræðukeppnin fer fram Loftslagstilraun hefst í Hvalfirði á næstu dögum Margrét Löf í sextán ára fangelsi en heldur föðurarfinum Veitingamaður sektaður um tvö hundruð milljónir Bein útsending: Landbúnaður í heimi breytinga Ekki rétt sem Halla segir Hefja formlegar viðræður um myndun nýs meirihluta Íslensk nóbelsverðlaun og erfið staða framhaldsskólanna Vill fækka borgarfulltrúum um átta Sjá meira