Enski boltinn

Tveir leik­menn Arsenal meiddust eftir leik: „Aldrei gerst áður“

Aron Guðmundsson skrifar
Óvíst er hversu lengi Hincapie mun vera frá
Óvíst er hversu lengi Hincapie mun vera frá Vísir/Getty

Tveir leikmenn Englandsmeistara Arsenal meiddust á æfingu á Emirates-leikvanginum stuttu eftir sigur liðsins gegn Leeds United um nýliðna helgi.

Mikel Arteta, knattspyrnustjóri Arsenal, greindi frá þessu á blaðamannafundi í dag fyrir leik liðsins gegn Lille í Meistaradeild Evrópu á morgun.

Vitað var af meiðslum varnarmannsins Piero Hincapie en hann var studdur af velli á æfingunni af varamarkverðinum Ilian Meslier.

Nú greindi Arteta frá því að miðjumaðurinn Martin Zubimendi hefði einnig meiðst á sömu æfingu. Hincapie hafði komið inn sem varamaður undir lok leiks en Zubimendi kom ekkert við sögu. 

Lið eru oftar en ekki með létta æfingu eftir leiki sína þar sem að leikmenn sem spiluðu lítið sem ekkert æfa um stuttta stund. Um gríðarlega óheppni að ræða.

„Þetta er langt í frá ákjósanlegt, sagði Arteta á blaðamannafundi og sagði einu leiðina til að koma í veg fyrir að svona gerist þá að hætta að æfa.

„Ef þeir æfa ekki þá meiðast þeir ekki. Afleiðing þess verður hins vegar sú að þegar þeir þurfa að spila eru þeir ekki í takti og munu ekki geta haft áhrif í sjálfum leikjunum.“

„Þetta hefur aldrei gerst áður á mínum sjö árum sem knattspyrnustjóri Arsenal.“

Ekki sé hægt að koma í veg fyrir svona aðstæður.

„Ef ég væri með spádómskúlu þá gæti ég bara sagt þeim að slaka á í heita pottinum og að ég myndi sjá þá á morgun.“

Arsenal tekur á móti Lille með Hákon Arnar Haraldsson í fararbroddi í Meistaradeild Evrópu annað kvöld. Leikurinn verður sýndur í beinni útsendingu á Sýn Sport 2.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×