Enski boltinn

Getafe búið að setja sig í sam­band við Sancho

Andri Broddason skrifar
Jadon Sancho hefur verið mikið til vandræða hjá félögunum sem hann hefur spilað með.
Jadon Sancho hefur verið mikið til vandræða hjá félögunum sem hann hefur spilað með. Getty/Neal Simpson

Spænska félagið Getafe hefur haft samband við enska vængmanninn Jadon Sancho. Hann er þessa stundina án liðs eftir að samningur hans við Manchester United rann út.

Jadon Sancho reyndi að finna nýtt lið í sumar án árangurs og hefur Getafe nýtt sér það. Félagið er í fjórtánda sæti spænsku úrvalsdeildarinnar en það er líka að spila í Sambandsdeild Evrópu. Liðið er því að spila marga leiki og þarf félagið að stækka leikmannahópinn til að ráða við aukið álag.

Fyrr í vikunni gekk Dani Carvajal, fyrrum fyrirliði Real Madrid, til liðs við Getafe en samningur hans við spænsku risana rann út í sumar. Getafe þurfti því ekkert að borga fyrir hann og gildir samningur hans út tímabilið.

Sancho gekk til Manchester United árið 2021 frá Borussia Dortmund og voru miklar væntingar bundnar til leikmannsins. Honum gekk ekki vel hjá félaginu og varð hann á endanum útskúfaður frá félaginu eftir deilur við þjálfara.

Síðustu þrjú ár af samningi hans við Manchester United fór hann til ýmissa liða að láni en ekkert af þeim félögum vildi kaupa hann. Getafe virðist þó sjá sér leik á borði að hann sé samningslaus og þarf félagið því ekki að borga fyrir hann.

Sancho hefur ekki setið auðum höndum þó að hann sé liðalaus og hefur hann deilt myndböndum af sér æfa. Þrátt fyrir að félagsskiptaglugginn sé lokaður getur Sancho gengið til liðs við Getafe vegna þess að hann er samningslaus.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×