Körfubolti

„Munar al­veg að þurfa ekki að spila 38 mínútur í leik“

Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar
Jordan Semple átti góðan leik fyrir Álftanes í kvöld.
Jordan Semple átti góðan leik fyrir Álftanes í kvöld. Vísir/Diego

Jordan Semple átti stórfínan leik fyrir Álftanes er liðið vann 31 stigs stórsigur gegn ÍR í 2. umferð Bónus-deildar karla í körfubolta í kvöld.

Semple var stigahæsti maður gestanna, ásamt Dedrick Basile, með 22 stig. Hann tók einnig tíu fráköst og gaf sex stoðsendingar.

„Okkur leið vel allan leikinn. Þetta var mjög jafnt í fyrstu tveimur leikhlutunum, en síðan náum við að auka ákefðina og auka forskotið. Við héldum okkur bara við skipulagið,“ sagði Semple í viðtali í leikslok.

Hann þakkar góðu undirbúningstímabili fyrir að liðið nái að halda uppi mikilli ákefð allan leikinn.

„Undirbúningstímabilið var virkilega gott og Baldur (Þór Ragnarsson, þjálfari liðsins) lagði mjög hart að sér að koma okkur í form. Ákefðin er eitthvað sem við æfum á hverjum degi. Æfingarnar eru svona þannig að þegar við mætum í leiki þá er þetta bara eins.“

Þá segir Semple að það hafi gengið vel hjá Álftanesi að finna rétta taktinn í upphafi tímabils, þrátt fyrir að liðið hafi sótt marga leikmenn sem ekki endilega hafa áður spilað saman.

„Við vorum allir mættir fyrr til liðsins en við erum vanir. Þetta eru allt mjög leikgreindir leikmenn sem hafa mikla trú á því sem Baldur hefur verið að selja okkur. Við tökum þessu mjög alvarlega og erum að gera þetta vel.“

Að lokum segir hann að það að hafa breiðan hóp muni hjálpa liðinu.

„Það mun klárlega hjálpa okkur, sérstaklega þegar fer að líða á tímabilið. Það munar alveg um það að þurfa ekki að spila 38 mínútur í hverjum leik,“ sagði Semple.

„En á sama tíma erum við allir klárir í þetta og við erum í nógu góðu formi til að gera það sem þarf,“ sagði Semple að lokum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×