Erlent

Faðir tveggja nem­enda í skólanum sá sem skaut á­rásar­manninn

Freyja Þórisdóttir skrifar
Fjöldi fólks hefur lagt blóm og kerti við skólann fyrir framan skólann þar sem árásin átti sér stað.
Fjöldi fólks hefur lagt blóm og kerti við skólann fyrir framan skólann þar sem árásin átti sér stað. Getty

Tvö fórnarlamba árásarmanns sem skaut þrjú börn og einn kennara til bana í Oregonríki í Bandaríkjunum í vikunni hafa verið nafngreind. Árásarmaðurinn var hinn sextán ára gamli Griffin J. John II og nú hefur verið greint frá því að hann sé fyrrverandi nemandi í skólanum sem er fyrir börn frá leikskólaaldri og upp í fimmta bekk sem eru með sérþarfir . 

Hin fimm ára Rhoam Summer og hin 25 ára Meghan Lambert, kennari við skólann, létust í árásinni sem átti sér stað í gær, fimmtudaginn 15. október, í Silver Rail-grunnskólanum í Oregon, er fram kemur í frétt Breska ríkisútvarpsins (BBC) um málið.

Fjölskyldur hinna tveggja nemendanna sem létust, átta ára og ellefu ára, hafa óskað eftir því að nöfn þeirra yrðu ekki birt opinberlega að svo stöddu, að sögn lögreglu. Þá hafi tveir aðrir særst alvarlega í árásinni. Annar kennari, 54 ára, liggur enn á sjúkrahúsi, auk sjö ára nemanda sem var alvarlega slasaður en er sagður í stöðugu ástandi.

Fyrr í dag var greint frá því að vegfarandi hefði skorist í leikinn, elt árásarmanninn inn í skólann og skotið hann til bana áður en lögregla kom á vettvang. Nú er búið að greina frá því að hann sé faðir tveggja nemenda í skólanum og hafi verið á leið heim þegar hann ók fram hjá skólanum.

Kaylub Giamanco, 36 ára smiður, hafi séð hinn grunaða skjóta á ökutæki fyrir utan skólann, síðan skjóta í gegnum glugga og fara inn.

Í yfirlýsingu sagði fjölskylda Giamanco að hann „sæktist ekki eftir viðurkenningu“.

Lögreglustjóri á svæðinu sagði á blaðamannafundi í dag að kennari sem tókst á við árásarmanninn áður en hann var skotinn hefði ekki slasast og að „við stöndum í þakkarskuld við það fólk sem sýndi hugrekki andspænis slíku ofbeldi og greip inn í til að koma í veg fyrir að þessi harmleikur yrði enn verri“.

Lögregla telji að hinn grunaði hafi farið fótgangandi að grunnskólanum, en hún rannsaki enn nákvæmar ferðir hans og hvernig hann komst yfir byssuna. Ástæða árásarinnar liggi ekki fyrir að svo stöddu.

Donald Trump Bandaríkjaforseti hrósaði framgöngu vegfarandans á föstudag og kallaði hann „mikla hetju“.

Trump ræddi við fréttamenn í Hvíta húsinu áður en hann hélt til Georgíu og sagði að ástandið hefði getað orðið „miklu verra“ ef enginn hefði gripið inn í.

„Þetta er hræðilegt, en guði sé lof fyrir mann sem var með byssu og kunni að nota hana,“ sagði hann.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×