Fótbolti

Orri Steinn skoraði í miklum marka­leik

Aron Guðmundsson skrifar
Orri Steinn rétt áður en boltinn fór í netið.
Orri Steinn rétt áður en boltinn fór í netið. Vísir/Getty

Íslenski landsliðsfyrirliðinn Orri Steinn Óskarsson skoraði eitt marka Real Sociedad í miklum markaleik og sigri liðsins gegn Málaga í spænsku úrvalsdeildinni í dag. Lokatölur urðu 5-2, Real Sociedad í vil

Orri fékk tækifæri í byrjunarliði Real Sociedad og hann nýtti það vel. Takefusa Kubo kom Real Sociedad yfir með marki strax á 3. mínútu.

Svo var röðin komin að Orra Steini. Á 26. mínútu hafði sending liðsfélaga Orra viðkomu í varnarmanni Málaga og skaust þar með inn fyrir varnarlínu heimamanna. Orri var vel vakandi, elti knöttinn uppi og kom honum fram hjá  Alfonso Herrero, fyrirliða Málaga, sem stóð í marki liðsins. Staðan orðin 2-0 Sociedad í vil.

Svo fór að liðið sigldi heim 5-2 sigri að lokum en Orri Steinn var tekinn af velli á 79. mínútu eftir gott dagsverk. 

Með sigrinum lyftir Real Sociedad sér upp í 5. sæti spænsku úrvalsdeildarinnar og er þar með sextán stig eftir fyrstu níu leiki sína í deildinni. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×