Skoðun

Náms­mat, aðal­nám­skrá og fag­leg á­byrgð skóla­stjóra

Hjálmar Bogi Hafliðason, Jón Páll Haraldsson, Kristín Jóhannesdóttir, Margrét Sverrisdóttir, Snædís Valsdóttir og Þóranna Rósa Ólafsdóttir skrifa

Skólafólk, foreldrar og samfélag standa nú frammi fyrir stórum spurningum um stjórnsýslu menntamála. Stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd Alþingis hefur hafið frumkvæðisathugun á ákvörðun og innleiðingu mennta- og barnamálaráðherra á breyttu námsmatskerfi úr bókstöfum yfir í tölustafi fyrir nemendur í 10. bekk vorið 2027. Okkur undirrituðum finnst traustvekjandi að Alþingi vilji skoða feril málsins og við viljum árétta að ekki er heppilegt að kasta til hendinni við breytingar á afmörkuðum þáttum námskrár.

Í október 2024 lauk endurskoðun á greinasviði aðalnámskrá grunnskóla. Í upphafi árs 2026 hófst metnaðarfull vinna á vegum Miðstöðvar menntunar og skólaþjónustu (MMS) við að aðstoða skóla við innleiðingu á endurskoðaðri aðalnámskrá. Sérfræðingar, stjórnendur og kennarar sátu vikulega fundi í margar vikur til að stilla saman strengi og byggja upp sameiginlegan skilning. Í lok skólaárs 2025 – 2026 voru skólar tilbúnir að taka verkefnið fastari tökum og komnir með drög að kennsluáætlunum og skólanámskrá fyrir skólaárið 2026–2027. Sumarið 2026 var þeirri faglegu vinnu hins vegar kollvarpað með fyrirvaralausri ákvörðun ráðherra sem fékk óljósa kynningu vorið 2026 og ekki tilkynnt fyrr en 7. ágúst: nemendur í 10. bekk skyldu útskrifast vorið 2027 með einkunnir á talnakvarðanum 4-10 í stað bókstafa. Innleiðingartími breytinganna er vonandi einsdæmi. Þess má geta að í Svíþjóð var fyrir nokkru tekin ákvörðun um að skipta úr bókstafakvarða yfir í talnakvarða og menntayfirvöld þar tóku ákvörðun um að gefa sér tæp þrjú ár til að aðlaga sína aðalnámskrá að breytingunum; talnakvarðinn tekur gildi í Svíþjóð haustið 2028.

Aðalnámskrá er ekki bara ritverk - hún er stefnumörkun

Í opinberri umræðu hefur því verið haldið fram að aðalnámskrá sé stjórntæki sem mennta- og barnamálaráðherra setur og breytir samkvæmt 4. gr. og 24. gr. laga nr. 91/2008 um grunnskóla. En aðalnámskrá er miklu meira en tæknilegt skjal, hún byggir á lagaheimild, hún er ígildi reglugerðar og hún hefur sambærilega réttarstöðu og reglugerð. Hún hefur verið kölluð „samningur þjóðarinnar við sjálfa sig um menntamál“. Hún er helsta stjórntæki fræðsluyfirvalda til að tryggja samræmi, heildstæða menntastefnu og gildandi starfsramma fyrir kennara og skólastjórnendur. Hún skal vera leiðarrit kennara og stjórnenda við skipulagningu náms og kennslu. Farsæl útfærsla á vettvangi þarf góðan samhljóm milli námskrár, námsefnis, skipulags kennslu og námsmats. Fyrir skólastarf er vel útfærð námskrá því bæði límið og rímið sem styður við nám barna.

Aðalnámskrá á ekki að breyta með flýtiaðgerð. Hún á að skapa góða heild um skólastarf; móta upphaf, söguþráð, samhengi og endalok eins og góð skáldsaga.

Óreiða í innleiðingu, óljós talnakvarði og pólitísk pattstaða

Samkvæmt 27. gr. grunnskólalaga er tilgangur námsmats að veita heildstæða mynd af námslegri stöðu og framförum nemenda jafnt og þétt yfir skólagönguna.

Með drögum að bráðabirgðaákvæði í samráðsgátt stjórnvalda (mál S-193/2026) er ætlast til þess að skólar taki upp einkunnir á bilinu 4–10 fyrir útskriftarárganginn vorið 2027. Samkvæmt drögunum merkir einkunnin 7 að hæfniviðmiðum hafi verið náð en einkunnirnar 8–10 eiga að mæla stigvaxandi meiri dýpt, öryggi og umfram hæfni. Samtímis er ætlast til þess að skólar birti endurskoðaða skólanámskrá eigi síðar en 10. janúar 2027. Allir matskvarðar hafa sína kosti og sína galla, bæði talnakvarðar og aðrir kvarðar. Þessi talnakvarði gæti alveg reynst ágætlega en hann þyrfti þá að endurspegla þá sögu sem aðalnámskrá leggur upp með. Illa undirbúnar breytingar gera minna en ekkert gagn.

Umsagnir í samráðsgátt og reynsla skólafólks af vikulegum fundum með MMS á haustönn 2026 sýna að fyrirhugaðar breytingar standa tæpt þrátt fyrir góðan vilja starfsmanna ráðuneytis og MMS. Í stað þess að einfalda námsmat hefur skapast fyrirsjáanleg og óhjákvæmileg óvissa um útfærslu. Talnakvarðar eru margs konar og þá þarf að útfæra og samræma - þeir eru ekki náttúrulögmál sem öll skilja sjálfkrafa með sama hætti. Eftir því sem liðið hefur á haustið og liðið hefur á innleiðingu talnakvarðans hefur álitamálum og vafaatriðum fjölgað. Þrátt fyrir að ráðherra láti sitt færasta fólk þramma með sér þessa leið minnir þessi vegferð óneitanlega ævintýrið um keisarann klæðalausa. Útskriftarárgangur vorsins 2027 hefur verið gerður að tilraunahópi fyrir illa ígrundaðar breytingar en vonandi verða þau ekki börnin sem hía á ráðherrann í göngunni..

Hæstvirtur mennta- og barnamálaráðherra hefur löngum sagt að hún láti verkin tala. Það þykir okkur bæði gott og aðdáunarvert. Við höfum fulla trú á góðum vilja hennar og áræðni að bæta hlutina.

Við viljum hins vegar að vandað sé til verka þegar farið er í stórar breytingar. Góðar umbætur taka tíma og hann eigum við að nýta vel. Vöndum okkur og vinnum saman að bæta menntakerfið út frá þörfum nemenda og samfélagsins. Of skjótar breytingar ráðherra á námsmati hafa nú sett flókið samspil stjórnvalda, fagfólks, foreldra og nemenda í hálfgerða pattstöðu. Afleikur er það síðasta sem menntakerfið okkar þarf á að halda.

Fagleg ábyrgð skólastjóra

Skólastjórar eru faglegir leiðtogar grunnskóla. Samkvæmt 7. gr. og 29. gr. laga nr. 91/2008 og opinberu samkomulagi um hlutverk skólastjórnenda ber skólastjóri faglega ábyrgð á starfi skólans og að tryggja að skólanámskrá og skólastarf séu í samræmi við lög, reglugerðir og velferð nemenda. Þá ber skólastjóri lagalega ábyrgð á útskrift nemenda úr grunnskóla skv. 32. gr. laganna.

Ef skólastjórar og fagfólk í skólunum telja að fyrirhugaðar breytingar standist ekki lagalegar kröfur, valdi réttaróvissu og brjóti á hagsmunum nemenda, ber þeim fagleg skylda til að stíga niður fæti og gera athugasemdir.

Fróðlegt verður að sjá að hvaða niðurstöðu stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd Alþingis kemst. En á meðan sú athugun stendur yfir verða grunnskólar landsins að vinna áfram af fagmennsku eftir gildandi námskrá, meta þá hæfni sem nemendur hafa öðlast á tíu ára grunnskólagöngu sinni og loks útskrifa þá með fullri virðingu og reisn.

Höfundar eru í meðlimir í Skólamálanefnd Skólastjórafélags Íslands

Hjálmar Bogi Hafliðason, deildarstjóri

Jón Páll Haraldsson, skólastjóri og varaformaður SÍ

Kristín Jóhannesdóttir, sviðsstjóri

Margrét Sverrisdóttir, skólastjóri

Snædís Valsdóttir, skólastjóri

Þóranna Rósa Ólafsdóttir, skólastjóri




Skoðun

Sjá meira


×