Innlent

Vara við nálum í hrekkjavökunammi

Freyja Þórisdóttir skrifar
Myndirnar voru birtar á hópnum Hrekkjavaka á Akureyri.
Myndirnar voru birtar á hópnum Hrekkjavaka á Akureyri. Facebook

Lögreglan á Norðurlandi eystra er með mál á sínu borði þar sem nál fannst í súkkulaðistykki sem var gefið í gær í tilefni hrekkjavökunnar. Tilkynning var gefin út þar sem fólk á svæðinu er varað við því að bíta í stykkin og allir foreldrar beðnir að yfirfara enda getur mikill skaði hlotist af.

Þetta staðfestir María Borg Gunnars varðstjóri hjá lögreglunni á Norðurlandi eystra en hún segir málið hafa verið tilkynnt nú á þriðja tímanum. Í færslu sem birt var í Facebook-hópnum Hrekkjavaka á Akureyri voru birtar myndir þar sem má sjá það sem virðist vera nál eða járnstykki inni í Mikly Way súkkulaðistykki.

Þá staðfesti María að það sé sama mál og hún hafi fengið veður af en að enginn hafi slasast með því að bíta í það stykki. Þau hjá lögreglunni hafi sent út tilkynningu á Facebook-síðu sinni til að vara við nálunum.

Þær voru í nokkrum stykkjum, Þristum og Milky Way, en allir sem vita um samskonar tilvik eru hvattir til að tilkynna þau til lögreglu. Það má senda tölvupóst á netfangið nordurland.eystra@logreglan.is en þeim hefur að svo stöddu aðeins borist ein tilkynning.


Veistu meira um málið og áttu myndir? Þú getur sent okkur fréttaskot hér.


Fréttin er í vinnslu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×