Þegar einn múslimi talar, hvers vegna þurfa allir múslimar að svara? Mansoor Ahmad Malik skrifar 4. nóvember 2026 14:30 Undanfarið hef ég fylgst með greinum og opinberum umræðum í kjölfar heimsóknar Muhammad Taqi Usmani til Íslands og fyrirlestrar hans í Stórmoskunni þann 21. október síðastliðinn. Ég sat ekki fyrirlesturinn og hafði raunar lítinn áhuga á því að hlusta á hann, né heldur á Usmani yfirleitt. Og ég vil taka það skýrt fram frá upphafi að hvorki ég né Samfélag Ahmadiyya-múslima á Íslandi deilum mörgum skoðunum hans, sérstaklega afstöðu hans til refsingar fyrir trúarfráhvarf, hvað þá dauðarefsingar í slíkum tilvikum. Kóraninn er afar skýr um trúfrelsi. Í 2. kafla, versi 257, segir: „Engin nauðung er í trúnni. Leiðsögnin hefur sannarlega verið auðgrein d frá afvegaleiðingu.“ Á sama hátt segir í 18. kafla, versi 30: „Þetta er sannleikurinn frá Drottni ykkar. Lát þú því trúa þann sem vill það og lát þú vantrúa þann sem vill það.“ Ég tek heilshugar undir þá sem hafa gagnrýnt og andmælt skoðunum Usmani í þessu efni. Slíkar hugmyndir eiga ekkert erindi á Íslandi, né heldur í því sem sumir kjósa að kalla „hinn siðmenntaða vestræna heim“. Raunar myndi ég ganga svo langt að segja að þær eigi hvergi rétt á sér. Eftir að hafa fylgst með umræðunni og þeirri umfangsmiklu fjölmiðlaumfjöllun sem heimsóknin hefur hlotið hef ég hins vegar farið að velta fyrir mér hvernig þessi umræða hefur þróast, ekki síst hlutverki MBL og blaðamannsins Stefáns E. Stefánssonar í að móta hana. Áhyggjur mínar snúast ekki um það að skoðanir Usmani hafi verið gagnrýndar. Það er sjálfsagt og eðlilegt. Áhyggjur mínar snúast hins vegar um hversu auðveldlega gagnrýni á einn einstakling getur breyst í tortryggni í garð heils trúarsamfélags. Hver sem ætlunin kann að hafa verið með umfjölluninni er hætta á því að ótti og sundrung aukist, einkum gagnvart múslimum, sem enn á ný finna sig í miðri víðtækari umræðu um það hvort þau og trú og gildi þeirra eigi heima í íslensku samfélagi. Fyrir þá sem þekkja lítið til ólíkra trúarbragða og trúarsamfélaga getur slík umfjöllun haft veruleg áhrif á viðhorf þeirra til annarra. Tilvitnanir í trúarrit eru birtar í blaðagreinum og á samfélagsmiðlum, oft án nægilegs samhengis. Í kjölfarið fara að vakna spurningar sem ýta undir þjóðernishyggju þannig að sumu fólki sé útskúfað og látið líta út fyrir að það eigi ekki heima hér eða sé ekki nógu íslenskt. Spurningar koma fram á borð við eftirfarandi: hvernig getum við Íslendingar leyft fólki með slíkar skoðanir að festa rætur í samfélagi okkar? Hvernig getum við sætt okkur við trúarkenningar sem virðast ganga gegn gildum okkar? Þetta eru réttmætar spurningar. Raunar tel ég þær mikilvægar. En spyrjum við þeirra með fullri samkvæmni? Gerum við sömu kröfur til allra, eins og réttlæti og sanngirni krefjast? Því miður tel ég svo ekki vera. Trúarkenningar, túlkanir og sameiginleg ábyrgð Mikilvægt er að hafa í huga að harðar og öfgafullar skoðanir fyrirfinnast innan allra trúarbragða, rétt eins og þær fyrirfinnast utan þeirra. Það væri þó hvorki sanngjarnt né skynsamlegt að tengja alla fylgjendur tiltekinna trúarbragða við skoðanir umdeildustu einstaklinga þeirra. Við viðurkennum almennt að fólk túlki trúarrit með ólíkum hætti, að skoðanir séu mismunandi innan trúarsamfélaga og að einstaklingar skuli dæmdir út frá eigin orðum og gjörðum. Hvers vegna virðist þessi aðgreining þá svo oft hverfa þegar umræðan snýst um íslam? Í kristni og gyðingdómi er einnig að finna kafla í helgiritum sem geta vakið mikinn óhug ef þeir eru lesnir samhengislaust. Skoðum eftirfarandi dæmi úr Biblíunni: 1. „Ef bróðir þinn sammæðra, sonur, dóttir, konan í faðmi þínum eða vinur, sem þú elskar eins og sjálfan þig, reynir á laun að leiða þig afvega með því að segja:‚Við skulum þjóna öðrum guðum,‘[…] skaltu taka hann af lífi. Þú skalt vera fyrstur til að leggja hönd á hann til að taka hann af lífi. Því næst skal allt fólkið leggja á hann hendur. Þú skalt grýta hann til bana því að hann reyndi að tæla þig frá Drottni, Guði þínum[…]“ (Fimmta Mósebók 13:7–11) 2. „Nú skaltu fara og sigra Amalek. Helgaðu þá banni og allt sem þeim tilheyrir. Hlífðu engum. Dreptu karla og konur, börn og brjóstmylkinga, naut og sauðfé, kameldýr og asna.“ (Fyrri Samúelsbók 15:3) 3. „Leggist karlmaður með karlmanni eins og þegar lagst er með konu fremja þeir báðir viðurstyggilegt athæfi. Þeir skulu báðir líflátnir. Blóðsök þeirra skal koma yfir þá.“ (Þriðja Mósebók 20:13) 4. „Þegar dóttir prests vanhelgar sig með skækjulifnaði vanhelgar hún föður sinn. Hún skal brennd í eldi.“ (Þriðja Mósebók 21:9) 5. „Eins og siður er í öllum söfnuðum hinna heilögu skulu konur þegja á safnaðarsamkomum því að þeim er ekki leyft að tala heldur skulu þær hlýða eins og líka lögmálið býður. En ef þær vilja fræðast um eitthvað, þá skulu þær spyrja eiginmenn sína heima. Konum sæmir ekki að tala á safnaðarsamkomu.“ (Fyrra Korintubréf 14:33–35) Þessi listi gæti verið mun lengri. Þetta eru biblíutilvitnanir og sérhver vígður prestur heitir því að halda kenningar Biblíunnar í heiðri. Eigum við þá að fara að gera kröfu um að allir sem heita því að halda slíkar kenningar í heiðri, eða segjast trúa á rit sem hefur að geyma slíkar kenningar, sæti sérstakri bakgrunnskönnun og ítarlegri skoðun? Er þess nokkurn tímann krafist að þeir fjarlægi sig opinberlega frá þessum kenningum eða hafni jafnvel helgiritum sínum með öllu, þar sem slíkar kenningar eigi ekkert erindi í samfélag okkar? Hvert sem svarið við þeirri spurningu hefur verið og er, ætti það sama að gilda líka fyrir aðra. Gerum við sömu kröfur til allra? Það sem hefur vakið mesta athygli mína við fjölmiðlaumfjöllunina um heimsókn Usmani er hversu mikið skoðanir eins einstaklings hafa orðið að almennri umræðu um múslima og íslam á Íslandi. Stundum virðist sem ætlast sé til þess að sérhver múslimi þurfi að útskýra, verja eða taka opinberlega afstöðu og hafna yfirlýsingum einstaklings sem hann hefur jafnvel aldrei hitt, hlustað á eða verið sammála í fyrsta lagi. Raunar virðist þetta gerast í hvert sinn sem einhver sem kallaður er múslimi gerir eða segir eitthvað umdeilt eða ámælisvert. Þetta vekur víðtækari spurningu: þegar umdeildur eða áhrifamikill trúarleiðtogi heimsækir Ísland, er þá ávallt allt trúarsamfélagið dregið til ábyrgðar fyrir heimsókn hans? Er krafist skýringa frá öllum sem deila trú hans eða þeim sem kunna að hafa tengst heimsókninni með einhverjum hætti? Tökum sem dæmi nýlega heimsókn rabbínans Shmuley Boteach til Íslands ásamt syni sínum, Mendy. Boteach hefur verið áberandi stuðningsmaður Ísraels og hernaðaraðgerða þess á Gaza, þrátt fyrir víðtæka fordæmingu þeirra aðgerða og viðvarandi ásakanir um þjóðarmorð, ekki aðeins af hálfu almennings heldur einnig æðstu dómstóla heims. Sonur hans, Mendy, hefur jafnframt gegnt herþjónustu í ísraelska hernum, sem starfar undir ríkisstjórn einstaklings sem Alþjóðaglæpadómstóllinn hefur ákært fyrir stríðsglæpi og gefið út handtökuskipun á? Sætti heimsókn þeirra jafn ítarlegri opinberri skoðun af hálfu MBL, stjórnmálamanna eða trúarleiðtoga? Voru sambærilegar spurningar bornar upp um skoðanir þeirra og tengsl? Var þeim sem tóku á móti þeim eða áttu fundi með þeim gert að réttlæta opinberlega komu þeirra? Og kannski enn mikilvægara: voru fréttir um heimsókn þeirra settar fram sem spurning um hvort kenningar gyðingdóms samrýmist íslenskum gildum? Ég man ekki að hafa séð sambærilega gagnrýna skoðun af þeirra hálfu. Ég myndi heldur ekki vilja að gjörðir eða skoðanir þessara einstaklinga yrðu tilefni til þess að gyðingar almennt væru dregnir í efa. Það væri einmitt sú alhæfing sem ég er að gagnrýna. Pistillinn minn snýst ekki um að eitt trúarsamfélag eigi að sæta sömu andúð og annað. Hvorugt þeirra ætti yfirleitt að sæta tortryggni af hálfu samfélagsins. Sömu spurningar um samræmi má einnig bera upp þegar við skoðum heimsóknir stjórnmálamanna. Tökum heimsókn Marco Rubio til Íslands sem dæmi. Var sambærileg athugun gerð á stjórnmálatengslum hans og tengslum hans við ríkisstjórn þar sem forsetinn hefur sætt alvarlegum opinberum spurningum vegna fyrri tengsla sinna við Jeffrey Epstein, dæmdan kynferðisbrotamann? Var sá kostnaður sem greint var frá, yfir 25 milljónir króna vegna heimsóknarinnar á vegum ríkisins, gagnrýndur af sama krafti? Var þeim sem komu að undirbúningi og framkvæmd heimsóknarinnar gert að veita sambærilegar skýringar? Ef ekki, hvers vegna ekki? Ég er ekki að halda því fram að þessar heimsóknir séu sambærilegar hvað varðar aðstæður eða mikilvægi. Þær vekja hins vegar spurningar um hvernig við ákveðum hvaða umdeildu einstaklingar skuli sæta opinberri gagnrýni, hvernig sú gagnrýni fari fram og hverjir séu látnir svara fyrir þá. Ef við fordæmum skoðanir og tengsl eins múslimsks trúarleiðtoga verðum við einnig að vera reiðubúin til að athuga skoðanir og tengsl annarra með sama hætti, hvort sem um sé að ræða kristna, gyðinga, múslima eða fólk sem aðhyllist engin trúarbrögð. Grundvallarreglur okkar ættu ekki að breytast eftir því hver sætir gagnrýni hverju sinni. Trúarsamfélög múslima sem sjaldan fá að njóta athyglinnar Það er annar þáttur þessarar umræðu sem mér finnst sérstaklega svekkjandi. Þegar íslam er til umfjöllunar í fjölmiðlum beinist athyglin svo oft að deilum, öfgum og þeim túlkunum trúarinnar sem valda mestri sundrung. Mun minni athygli er hins vegar beint að hversdagslífi múslima, samfélögum þeirra og því starfi sem þau inna af hendi í íslensku samfélagi. Í meira en áratug hefur Samfélag Ahmadiyya-múslima á Íslandi unnið að því að leiðrétta ranghugmyndir um íslam og byggja brýr milli fólks af ólíkum trúarbrögðum og uppruna. Við höfum skipulagt friðarmálþing þar sem fólk hefur komið saman til að ræða mikilvæg málefni, deila máltíðum og fræðast hvert af öðru. Við höfum átt samstarf við Hjálparstarf Kirkjunnar í mörg ár við að útbúa kvöldverði fyrir fólk í neyð og hádegisverði fyrir konur sem leita skjóls í Skjólinu. Við höfum skipulagt hreinsunarátak í Hólavallagarði undir lok haustsins þegar kirkjugarðurinn er þakinn laufum. Við höfum einnig skipulagt blóðsafnanir og hvatt fólk til að gefa blóð. Sjálfur hef ég gefið blóð 26 sinnum og stefni að því að ná hundrað blóðgjöfum, ef Guð leyfir! Við höfum einnig tekið þátt í góðgerðarverkefnum utan Íslands, þar á meðal hjólreiðaferð frá Dyflinni til Suður-Englands, sem safnaði 361.000 krónum til styrktar Krafti. Eitt af þeim verkefnum sem mér þykir sérstaklega vænt um er barnabiðstofa á Landspítala í Fossvogi, sem meðlimir samfélagsins okkar hjálpuðu til við að skreyta og mála. Næst þegar þið farið þangað með börnin ykkar og takið eftir fjöllunum sem máluð eru á veggnum – við gerðum þetta! Og frá árinu 2013 hafa meðlimir samfélagsins heimsótt barnaspítala á hverjum einustu jólum og gefið gjafir börnunum sem þurfa að liggja á spítalanum og geta ekki farið heim og verið hjá fjölskyldum sínum. Við gerum þetta ekki til að hljóta viðurkenningu eða sanna að við eigum skilið að vera hluti af íslensku samfélagi. Þetta er einfaldlega hluti af því hvernig við skiljum og iðkum trú okkar. Íslam kennir okkur að láta okkur annt um náungann, sýna góðvild og umhyggju og koma fram við annað fólk af virðingu, óháð trú þess eða uppruna. Að sjálfsögðu er Samfélag Ahmadiyya-múslima ekki fulltrúi allra múslima á Íslandi og ekki deila öll múslimsk samfélög sömu túlkun á íslam. Það er einmitt það sem skiptir máli hér. Múslimar eru ekki einn einsleitur hópur. Við höfum ólíkar skoðanir, hefðir, reynslu og sjónarmið, rétt eins og fólk sem tilheyrir öðrum trúarbrögðum. Samt virðist svo stór hluti þessarar fjölbreytni hverfa þegar opinber umræða beinist nær eingöngu að umdeildum einstaklingum og öfgafullum túlkunum. Hugsið ykkur ef jafnvel aðeins brot af þeim tíma og þeirri viðleitni sem sýnt er í að rannsaka og draga fram það neikvæða væri einnig sýnt til að kynna jákvætt framlag ólíkra samfélaga víðs vegar um Ísland. Ég er sannfærður um að þá myndum við uppgötva að margt gott býr í hverju öðru og að við eigum mun meira sameiginlegt en okkur grunar stundum. Gagnrýni má ekki verða að sameiginlegri sök Í stað þess að leyfa slíkri umræðu að sundra okkur ættum við kannski að nýta hana sem tækifæri til að skilja hvert annað betur og, ef upp koma vandamál, leysa þau í sameiningu á sanngjarnan og réttlátan hátt í stað þess að flýta okkur að benda hvert á annað. Því þegar öllu er á botninn hvolft er spurningin ekki sú hvort gagnrýna eigi Muhammad Taqi Usmani. Spurningin er: þegar einn múslimi talar eða hegðar sér með tilteknum hætti hvers vegna þurfa svo margir aðrir að svara fyrir hann? Höfundur er ímam og forstöðumaður Samfélags Ahmadiyya-múslíma á Íslandi. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Trúmál Mest lesið Kristrún: Rektu Daða Má fjármálaráðherra Einar Steingrímsson Skoðun Viðskiptaráð stimplar sig út Andri Snær Magnason Skoðun Götu hvað? Ebba Margrét Magnúsdóttir Skoðun Hver gætir að réttindum þeirra sem gæta barnanna okkar? Jenný Þórunn Stefánsdóttir,Kári Sigurðsson Skoðun Ég er hugsi – hvar er farsæld barnanna? Herdís Þórsteinsdóttir Skoðun Icelandair – Tíminn til að bregðast við er núna Kjartan Björgvinsson Skoðun Þegar einn múslimi talar, hvers vegna þurfa allir múslimar að svara? Mansoor Ahmad Malik Skoðun Ert þú gervigreindarsóði? Marín Jónsdóttir Skoðun Afmælisdagur á ekki að tefja skólagöngu Hrönn Stefánsdóttir Skoðun Vegna eða „vegna“ ferðamanna Ragnar Lúðvík Jónsson Skoðun Skoðun Skoðun Haltu bara í þér Lára G. Sigurðardóttir skrifar Skoðun Íslenskukunnátta er sameiginleg ábyrgð Helga Rósa Másdóttir,Wendill Galan Viejo skrifar Skoðun Öfgar og ófagleg vinnubrögð Tryggvi Felixson skrifar Skoðun Þegar einn múslimi talar, hvers vegna þurfa allir múslimar að svara? Mansoor Ahmad Malik skrifar Skoðun Icelandair – Tíminn til að bregðast við er núna Kjartan Björgvinsson skrifar Skoðun Ég er hugsi – hvar er farsæld barnanna? Herdís Þórsteinsdóttir skrifar Skoðun Hver gætir að réttindum þeirra sem gæta barnanna okkar? Jenný Þórunn Stefánsdóttir,Kári Sigurðsson skrifar Skoðun Viðskiptaráð stimplar sig út Andri Snær Magnason skrifar Skoðun Kristrún: Rektu Daða Má fjármálaráðherra Einar Steingrímsson skrifar Skoðun Götu hvað? Ebba Margrét Magnúsdóttir skrifar Skoðun Afmælisdagur á ekki að tefja skólagöngu Hrönn Stefánsdóttir skrifar Skoðun Fimm mýtur um vændi Drífa Snædal skrifar Skoðun Hvað kostar að gera vinnustað mannlegri? Ragnhildur Bjarkadóttir skrifar Skoðun Líknarslæving, dánaraðstoð og rétturinn til að velja Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Vegna eða „vegna“ ferðamanna Ragnar Lúðvík Jónsson skrifar Skoðun Gervigreind, til góðs? Ketill Berg Magnússon skrifar Skoðun Ert þú gervigreindarsóði? Marín Jónsdóttir skrifar Skoðun Smjörklípa Þorgerðar Hjörvar Sigurðsson skrifar Skoðun Þegar undantekningarnar verða að stefnu Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Foreldraupplifun Sólný Pálsdóttir skrifar Skoðun Til varnar tímanum Eva Harðardóttir,Katrín Ólína Pétursdóttir skrifar Skoðun Forsætisráðherra endurskrifar söguna og snýr staðreyndum á hvolf Pétur Óskarsson skrifar Skoðun Það á að vera gott að eldast á Íslandi Ólafur Þór Gunnarsson,Regína Ásvaldsdóttir skrifar Skoðun Hver reiknar raunverulegan kostnað hagræðingar? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Einkunnakvarði er ekki námsmat! Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Áframhaldandi skilningsleysi nýliða Kristín Helga Schiöth skrifar Skoðun Gervigreindin getur séð allt. En hver getur séð það sem hún sér? Júlíus Einar Júlíusson skrifar Skoðun Er að eignast barn samfélagsleg busun? Stefnir Húni Kristjánsson skrifar Skoðun Jöfn laun eiga ekki að ráðast af tilviljun Kolbrún Halldórsdóttir skrifar Skoðun Bannað að plata Ágúst Elvar Bjarnason skrifar Sjá meira
Hver gætir að réttindum þeirra sem gæta barnanna okkar? Jenný Þórunn Stefánsdóttir,Kári Sigurðsson Skoðun
Skoðun Þegar einn múslimi talar, hvers vegna þurfa allir múslimar að svara? Mansoor Ahmad Malik skrifar
Skoðun Hver gætir að réttindum þeirra sem gæta barnanna okkar? Jenný Þórunn Stefánsdóttir,Kári Sigurðsson skrifar
Skoðun Gervigreindin getur séð allt. En hver getur séð það sem hún sér? Júlíus Einar Júlíusson skrifar
Hver gætir að réttindum þeirra sem gæta barnanna okkar? Jenný Þórunn Stefánsdóttir,Kári Sigurðsson Skoðun