Akranes

Akranes

Mannfjöldi: 8.285 (2025). Flatarmál: 10 ferkílómetrar.


Fréttamynd

Breytum þessu!

Það hafa verið algjör forréttindi að fá tækifæri til að leiða lista Viðreisnar á Akranesi. Við erum að bjóða fram í fyrsta skipti í bænum okkar og erum í grunninn hópur fjölskyldufólks með fjölbreyttan bakgrunn. Við höfum einsett okkur að starfa af heiðarleika, fagmennsku og ábyrgð.

Skoðun

Fréttir í tímaröð

Fréttamynd

Oddvitaáskorunin: Vopnið á Skaganum

Vísir stendur fyrir Oddvitaáskoruninni 2026 þar sem skorað er á oddvita allra flokka í sveitarfélögum um land allt að taka þátt. Áskorunin felur í sér stutta kynningu og að svara nokkrum spurningum.

Lífið
Fréttamynd

Gjöld fyrir frí­stund rokið upp

Samanburður á gjöldum hjá fjórtán sveitarfélögum sýnir að hækkanir á gjaldskrám frístundaheimila fyrir grunnskólabörn frá árinu 2023 til 2026 eru á bilinu fjögur prósent upp í 37 prósent.

Innlent
Fréttamynd

Næturlokunin komi sér afar illa fyrir fjölda í­búa

Haraldur Benediktsson, bæjarstjóri á Akranesi, segir allt of stuttan fyrirvara á sjö vikna næturlokun Hvalfjarðargangnanna. Klukkan 21.30 í kvöld var göngunum lokað vegna viðhalds. Þau verða lokuð til klukkan sex. Næturlokunin stendur til 29. maí. Tilkynnt var um þessa sjö vikna næturlokun þann 2. apríl.

Innlent
Fréttamynd

Snjó­flóð hrifsaði með sér göngugarpa

Fjallagarpurinn Sigrún Linda Birgisdóttir var hrifsuð fimmtíu metra niður Akrafjall þegar snjóflóð féll þar í gærmorgun en nokkur snjóflóðahætta var á höfuðborgarsvæðinu í gær.

Innlent
Fréttamynd

Líf leiðir Sjálf­stæðis­flokk á­fram á Akra­nesi

Líf Lárusdóttir, verkefnastjóri og bæjarfulltrúi, leiðir áfram lista Sjálfstæðisflokksins á Akranesi í vor. Sjálfstæðisflokkurinn á í dag þrjá af níu fulltrúum í bæjarstjórn Akraness. Samfylking á sömuleiðis þrjá og Framsókn einnig. 

Innlent
Fréttamynd

Íþróttabærinn Akra­nes – meira en að­staða, þetta er líf

Á Akranesi eru íþróttir ekki bara eitthvað sem gerist eftir skóla, ekki bara æfingar sem eru tikkaðar af á stundatöflu eða leikir sem eru spilaðir um helgar, heldur hluti af lífinu sjálfu, hluti af því hvernig við tengjumst, hvernig við byggjum upp fólk og hvernig við verðum að samfélagi – og það er eitthvað sem ég hef sjálf fengið að upplifa svo sterkt frá því að við fluttum hingað.

Skoðun
Fréttamynd

Gular við­varanir á suð­vestur­horninu

Spáð er austan og suðaustan 13-20 m/s sunnan- og vestantil í dag og fer að snjóa þar upp úr hádegi en von á rigningu eða slyddu síðdegis. Vindur verður hægari og úrkomulítið um landið norðaustanvert. Veður fer hlýnandi og hiti víða núll til átta stig síðdegis, hlýjast sunnan heiða.

Veður
Fréttamynd

Loka sund­laugum vegna loðnuvertíðar

Veitur biðla til íbúa og fyrirtækja á Akranesi að huga að notkun kalda vatnsins næstu vikur. Tveimur sundlaugum hefur verið lokað að beiðni Veitna en að baki er sögulega löng þurrkatíð og loðnuvertíðin fram undan.

Innlent
Fréttamynd

Níu ára fangelsi fyrir að nauðga fatlaðri konu í­trekað

Landsréttur hefur dæmt Sigurjón Ólafsson, karlmann á sextugsaldri, í níu ára fangelsi fyrir að hafa nauðgað andlegra fatlaðri konu ítrekað og látið aðra menn sem hann var í samskiptum við nauðga henni. Hann var yfirmaður hennar og neyddi son hennar til að fylgjast með kynferðislegum athöfnum þeirra. Hann hlaut ára dóm í héraði, áfrýjaði sjálfur og Landsréttur þyngdi dóminn um eitt ár.

Innlent
Fréttamynd

Þegar mið­stýring er kölluð hag­ræðing

Ég ólst upp í 101 Reykjavík og þekki vel hvernig það er að hafa alla þjónustu innan seilingar. Fyrir rúmum tuttugu árum flutti ég hins vegar á Akranes og hef síðan þá verið stoltur íbúi landsbyggðarinnar. Það var meðvituð ákvörðun sem ég hef aldrei séð eftir.

Skoðun