

Alþingi
Fréttir af löggjafarþingi Íslendinga, þingmönnum og fleiri tengdum málum.

Málþófi haldið í lágmarki
Áætlað er að þingstörf klárist í dag og alþingismenn fái þá tíma til þess að undirbúa sig fyrir kosningabaráttuna sem háð verður næstu tvær vikurnar.

Fjórflokkarnir með helming fylgisins
Píratar og Sjálfstæðisflokkurinn gætu myndað mjög nauman meirihluta með 32 þingmönnum. Prófessor í stjórnmálafræði segir athyglisvert hve vel Píratar halda fylgi sínu og að Viðreisn nái ekki meira flugi.

Forsætisráðherra metur arðsemi sjávarútvegs ofar frjálsri samkeppni
Fimm af sjö fylgishæstu flokkunum í framboði vilja nota fiskmarkaðsverð sem skiptaverð bolfisksafla. Ríkisstjórnarflokkarnir eru því mótfallnir. Þetta kom fram á fundi Félags atvinnurekenda og SFÚ um samkeppnismál í sjávarútvegi.

Brjóstagjöf ekki brot á þingsköpum: „Ekki sá tréhestur að ég fari að gera athugasemd við þetta“
Einar K. Guðfinsson, forseti Alþingis, lítur ekki svo á að brjóstagjöf Unnar Brár í ræðustól Alþingis hafi verið brot á þingsköpum.

Óformlegar þreifingar milli Pírata og Viðreisnar um mögulegt stjórnarsamstarf
Ólíklegt að Píratar fari í ríkisstjórn með Sjálfstæðisflokknum.

Með barn á brjósti í ræðustól Alþingis
Unnur Brá Konráðsdóttir, þingkona Sjálfstæðisflokksins, var með nýfætt barn á brjósti í ræðustól Alþingis í dag

Bein útsending: Oddviti Pírata í Reykjavík suður situr fyrir svörum
Ásta Guðrún Helgadóttir oddviti Pírata í Reykjavíkurkjördæmi suður mætir í þriðja þáttinn af Kosningaspjalli Vísis sem hefst klukkan 13:30 í dag.

„Var Panama-lekinn kannski okkur að kenna líka?“
Þingmenn stjórnarandstöðunnar voru ekki sáttir með að vera kennt um að hafa komið í veg fyrir að meirihlutinn kæmi sínum málum í gegn.

Utankjörfundaratkvæðagreiðsla í Perlunni frá og með sunnudegi
Utankjörfundaratkvæðagreiðsla vegna kosninga til Alþingis sem fram fara 29. október 2016, hófst við embætti Sýslumannsins á höfuðborgarsvæðinu 21. september síðastliðinn.

Bein útsending: Fulltrúar flokkanna ræða innflytjendastefnu
Jafnréttisfélag Háskólans í Reykjavík stendur fyrir viðburðinum.

Oddviti Pírata í Reykjavík suður situr fyrir svörum í beinni útsendingu
Ásta Guðrún Helgadóttir þingmaður og oddviti Pírata í Reykjavíkurkjördæmi suður situr fyrir svörum í beinni útsendingu í Kosningaspjalli Vísis í dag en þátturinn er hluti af ítarlegri umfjöllun fréttastofu 365 fyrir komandi þingkosningar sem fara fram þann 29. október næstkomandi.

Bein útsending: Funda með frambjóðendum um sjávarútvegsmál
Félag atvinnurekenda og Samtök fiskframleiðenda og útflytjenda halda fund með frambjóðendum í komandi kosningum í dag .

Rembihnútur á raflínurnar að Bakka
Línulagnir frá virkjunum í Kröflu og á Þeistareykjum til atvinnusvæðisins á Bakka við Húsavík eru í hnút eftir úrskurð úrskurðarnefndar um umhverfismál. Lítill tími er til stefnu ef framkvæmdir eiga að hefjast í vetur.

Vilja að stjórnin efni loforð fyrir kosningarnar
Minnihlutinn leggur til að hækka ellilífeyri og lífeyri öryrkja um 13,4 prósent.

Afnám hafta samþykkt á þingi
47 greiddu atkvæði með frumvarpinu en sextán voru fjarverandi.

Sjö flokkar næðu mönnum inn á þing
Vinstri græn bæta við sig 2,5 prósentustiga fylgi mili vikna. Sjálfstæðisflokkur og Píratar álíka stórir og Framsóknarflokkurinn, Björt framtíð, Viðreisn og Samfylkingin álíka stór. Hlutfall þeirra sem afstöðu taka eykst mikið milli kannana.

Ólöf Nordal lögð inn á sjúkrahús
Verður á hliðarlínunni í kosningabaráttunni.

Engin sátt verði um að eldri borgarar og öryrkjar í sambúð verði skildir eftir
Björt Framtíð, Píratar, Samfylkingin og Vinstri græn lýsa yfir verulegum vonbrigðum með þá leið sem ríkisstjórnarflokkarnir hafa valið til að hækka greiðslur almannatrygginga.

Fullyrðir að Íslenska þjóðfylkingin verði stærsti flokkur landsins ef aðrir flokkar hlusta ekki
"Við erum enginn rasistaflokkur.“

Vankantar á utankjörfundaratkvæðagreiðslu
Í kjörklefa gat kjósandinn valið á milli stimpla sem höfðu að geyma alla bókstafi stafrófsins, en ekki eingöngu þá stafi sem stjórnmálaflokkum hefur verið úthlutað.

Bein útsending: Oddviti Íslensku þjóðfylkingarinnar í Reykjavík suður situr fyrir svörum
Gunnlaugur Ingvarsson oddviti Íslensku þjóðfylkingarinnar í Reykjavíkurkjördæmi suður mætir í annan þáttinn af Kosningaspjalli Vísis sem hefst klukkan 13:30 í dag.

Bein útsending: Fulltrúar flokkanna ræða við nemendur í Verzló
Hefst klukkan ellefu og stendur í tæpan einn og hálfan tíma.

Sigurður Ingi og Sigmundur Davíð hafa enn ekki rætt saman
Sigurður Ingi Jóhannsson forsætisráðherra og formaður Framsóknarflokksins og Sigmundur Davíð Gunnlaugsson fyrrverandi formaður flokksins og oddviti hans í Norðausturkjördæmi hafa ekki enn talað saman eftir flokksþingið sem haldið var 1. og 2. október.

Oddviti Íslensku þjóðfylkingarinnar í Reykjavík suður situr fyrir svörum í beinni útsendingu
Gunnlaugur Ingvarsson oddviti Íslensku þjóðfylkingarinnar í Reykjavík suður situr fyrir svörum í beinni útsendingu í Kosningaspjalli Vísis í dag en þátturinn er hluti af ítarlegri umfjöllun fréttastofu 35 fyrir komandi þingkosningar sem fara fram þann 29. október næstkomandi.

Óvissa um afdrif frumvarpsins eftir niðurstöðu úrskurðarnefndarinnar
Úrskurðarnefnd um umhverfis- og auðlindamál felldi í gær úr gildi framkvæmdaleyfi Landsnets fyrir Kröflulínu 4.

Kosningaspjall Vísis: „Ég er kommúnisti en þetta er ekki kommúnistaflokkur“
Vésteinn Valgarðsson, oddviti Alþýðufylkingarinnar í Reykjavíkurkjördæmi norður, segir hluta af markmiðum flokksins að koma málstað hans til fólksins.

Björt um brotthvarf Heiðu Kristínar: „Við erum ekki með djúpa vasa“
Björt segir brotthvarf Heiðu Kristínar koma sér í opna skjöldu.

Bein útsending: Oddviti Alþýðufylkingarinnar í Reykjavík norður í Kosningaspjalli Vísis
Vésteinn Valgarðsson oddviti Alþýðufylkingarinnar í Reykjavíkurkjördæmi norður mætir í fyrsta þáttinn af Kosningaspjalli Vísis.

Kjördæmapot Vísis: Þetta brennur á fólki í Norðausturkjördæmi
Ómalbikaðir og vanræktir vegir, flugsamgöngur, skortur á byggðastefnu og raforkurskortur virðast vera þau málefni sem brenna hvað heitast hjá kjósendum í Norðausturkjördæmi. Þá er aðgengi að heilbrigðisþjónustu, fáliðuð lögregla auk mikils straums ferðamanna í kjördæmið hitamál.

Oddviti Alþýðufylkingarinnar í Reykjavík norður situr fyrir svörum í beinni útsendingu
Kosningaspjall Vísis hefst í dag en þátturinn er hluti af ítarlegri umfjöllun fréttastofu 365 fyrir komandi þingkosningar sem fram fara þann 29. október næstkomandi.