Bannað að nota Google Analytics á vefsíðum sínum Austurríska persónuverndarstofnunin hefur komist að þeirri niðurstöðu að fyrirtækjum þar í landi sé óheimilt að nota greiningarvél Google (e. Google Analytics) á vefsíðum sínum. Viðskipti erlent 28. janúar 2022 10:58
Fyrrverandi hermaður næsti kanslari Austurríkis Austurríski stjórnarflokkurinn Þjóðarflokkurinn, ÖVP, valdi í morgun innanríkisráðherrann Karl Nehammer sem nýjan formann. Sem slíkur mun hann taka við embætti kanslara landsins. Erlent 3. desember 2021 12:47
Segir skilið við stjórnmálin Sebastian Kurz, fyrrverandi kanslari Austurríkis, hefur ákveðið að segja skilið við stjórnmálin. Hinn 35 ára Kurz sagði af sér sem kanslari í október í kjölfar ásakana um spillingu. Erlent 2. desember 2021 09:43
Engar ákærur vegna smita í skíðabænum Ischgl Saksóknari hefur tekið ákvörðun um að ákæra ekki vegna fjölda Covid-smita í skíðabænum Ischgl í Austurríki. Níu einstaklingar, þar af fjórir embættismenn, höfðu verið til rannsóknar eftir þúsundir ferðamanna smituðust af kórónuveirunni í bænum. Erlent 24. nóvember 2021 20:44
Fjöldi mótmælir nýjum og ströngum sóttvarnaaðgerðum Nýjar samkomutakmarkanir tóku gildi í Austurríki á miðnætti vegna kórónuveirufaraldursins og er öllum landsmönnum gert að halda sig heima næstu tíu dagana hið minnsta. Erlent 22. nóvember 2021 07:00
Ekkert lát á Covid-mótmælum í Evrópu Víða hefur verið mótmælt í Evrópu vegna samkomutakmarkana. Þúsundir hafa streymt út á götur í Austurríki, Króatíu og á Ítalíu og mótmælt aðgerðum vegna faraldursins. Í Hollandi var mótmælt bæði á föstudag- og laugardagskvöld. Erlent 21. nóvember 2021 11:34
Kominn tími til að ræða skyldubólusetningar af alvöru Alþjóðaheilbrigðismálastofnunin hefur gríðarlegar áhyggjur af mikilli uppsveiflu faraldursins í Evrópu síðustu vikurnar. Svæðisstjóri stofnunarinnar varar við því að 500 þúsund manns geti látist vegna veirunnar í Evrópu fyrir fyrsta ársfjórðung næsta árs og segir tíma til kominn að taka umræðuna um skyldubólusetningar út frá lagalegu og samfélagslegu samhengi. Erlent 20. nóvember 2021 22:20
Öllum Austurríkismönnum gert að halda sig heima í tíu daga og krafa gerð um bólusetningu Stjórnvöld í Austurríki hafa ákveðið að loka samfélaginu í tíu daga vegna mikillar útbreiðslu kórónuveirunnar í landinu. Öllum landsmönnum, bæði bólusettum og óbólusettum, hefur þannig verið gert að halda sig heima í tíu daga, frá og með næsta mánudegi. Þá verði gerð krafa um bólusetningu frá 1. febrúar næstkomandi. Erlent 19. nóvember 2021 07:41
Óbólusettir í útgöngubann í Austurríki Stjórnvöld í Austurríki hafa tekið ákvörðun um setja útgöngubann á óbólusetta. Breytingarnar taka gildi á miðnætti í kvöld og gilda í tíu daga. Brot á útgöngubanninu varðar rúmlega tvö hundruð þúsund króna sekt. Erlent 14. nóvember 2021 14:44
Austurríkismenn horfa fram á útgöngubann fyrir óbólusetta Yfirvöld í Austurríki eru sögð örfáum dögum frá því að koma á útgöngubanni fyrir óbólusetta. Metfjöldi greindist með Covid-19 í landinu á síðustu 24 klukkustundum, eða 11.975. Erlent 12. nóvember 2021 07:59
Vínarborg byrjar á OnlyFans Ferðamálastofa Vínarborgar í Austurríki hefur opnað OnlyFans-aðgang í þeim tilgangi að birta listaverk sem talin eru of kynferðisleg fyrir aðra samfélagsmiðla. Menning 16. október 2021 12:10
Kanslari Austurríkis stígur til hliðar Sebastian Kurz, kanslari Austurríkis, hefur ákveðið að segja af sér embættinu í kjölfar mikils þrýstings um það vegna hneykslismáls sem hann og flokkur hans tengjast. Erlent 9. október 2021 19:23
Rannsaka mútur og trúnaðarbrest kanslara Austurríkis Saksóknarar í Austurríki rannsaka nú Sebastian Kurz, kanslara Austurríkis, vegna gruns um mútuþægni og trúnaðarbrest. Þeir gerðu húsleit á skrifstofu flokks kanslarans og náinna ráðgjafa hans í dag. Erlent 6. október 2021 21:37
Dæmdur í 48 leikja bann í austurríska fótboltanum Rússneski knattspyrnumaðurinn Raschid Arsanukaev spilar ekki mikið skipulagðan fótbolta næstu árin. Fótbolti 23. september 2021 16:01
Réttarhöld hafin í milljóna króna skaðabótamáli vegna Ischgl Réttarhöld hófust í dag í Vín þar sem til skoðunar er hve seint austurrísk yfirvöld brögðust við útbreiðslu kórónuveirunnar í skíðabæjum á borð við Ischgl. Málshefjendur segja hæg viðbrögð hafa orðið til þess að fjöldi fólks fékk Covid-19 og lét í sumum tilfellum lífið. Erlent 17. september 2021 14:09
Stærðfræðidoktor vann fyrsta ÓL-gull Austurríkis í hjólreiðum í meira en öld Stærðfræðingar eru vanir að vinna einir að lausn sinna vandamála og einn af nýjum Ólympíumeisturunum í Tókýó vill enga hjálp frá þjálfurum eða öðrum sérfræðingum þegar hún stundar sína íþrótt. Hún þorir að vera öðruvísi og það skilaði henni sögulegu Ólympíugulli. Sport 27. júlí 2021 15:01
Rannsaka möguleg tilfelli „Havana-heilkennis“ í Austurríki Bandarísk stjórnvöld rannsaka nú röð heilsufarstengdra atvika hjá erindrekum sínum í Vín, höfuðborg Austurríkis, og öðru starfsfólki á vegum utanríkisþjónustu Bandaríkjanna þar. Erlent 17. júlí 2021 16:56
Forsetinn klappar Patta bróður lof í lófa Patrekur Jóhannesson var nýverið sæmdur silfurmerki Austurríkis á Bessastöðum. Innlent 8. júlí 2021 09:45
Fyrrverandi varakanslari fyrir dóm í tengslum við „Ibizagate“ Réttarhöld yfir Heinz-Christian Strache, fyrrverandi varakanslara Austurríkis og leiðtoga Frelsisflokksins, hófust í Vín í morgun. Hann er sakaður um spillingu, meðal annars í hneykslismáli sem felldi ríkisstjórn landsins árið 2019 og kennt er við Ibiza. Erlent 6. júlí 2021 09:12
Maður bitinn af slöngu meðan hann gekk örna sinna Maður á sjötugsaldri í borginni Graz í Austurríki varð fyrir því óláni á dögunum að vera bitinn í klofið af kyrkislöngu sem faldi sig í klósetti hans. Erlent 5. júlí 2021 23:24
Í fyrsta skipti í 39 ár Austurríki er komið áfram í sextán liða úrslit Evrópumótsins eftir 1-0 sigur á Úkraínu í C-riðlinum. Fótbolti 21. júní 2021 17:54
Friederike Mayröcker er látin Austurríski rithöfundurinn og ljóðskáldið Friederike Mayröcker er látin, 96 ára að aldri. Menning 4. júní 2021 13:05
Evrópuríki horfa annað í leit að bóluefni Danir og Austurríkismenn ætla að funda með Ísraelsstjórn á morgun um bóluefnissamstarf. Vaxandi óánægja er á meðal aðildarríkja Evrópusambandsins um hægagang í bóluefnismálum. Erlent 3. mars 2021 12:16
Bólusetja sjötíu prósent fyrir sumarlok Framkvæmdastjórn Evrópusambandsins býst við því að sjötíu prósent fullorðinna innan sambandsins verði bólusett gegn kórónuveirunni fyrir lok sumars. Erlent 12. febrúar 2021 20:01
Hátt í hundrað sett í sóttkví og sektuð fyrir skíðaferð Lögreglan í Austurríki hefur skyldað 96 erlenda einstaklinga í sóttkví. Fólkið hafði ferðast til Austurríkis til þess að komast á skíði, en skíðabrekkur í landinu eru lokaðar öðrum en þeim sem búa þar, vegna kórónuveirufaraldursins. Erlent 1. febrúar 2021 17:33
Fleiri hundruð mótmælendur handteknir víða um Evrópu Nokkur hundruð mótmælendur hafa verið handteknir í Evrópsku borgunum Brussel, Búdapest og Vín þar sem hörðum aðgerðum vegna kórónuveirufaraldursins hefur verið mótmælt. Í austurrísku höfuðborginni Vín hefur hópur fólks úr röðum ný-nasista til að mynda komið saman til mótmæla. Erlent 31. janúar 2021 22:23
Fyrrverandi fjármálaráðherra í átta ára fangelsi fyrir spillingu Kviðdómur í Vín dæmdi Karl-Heinz Grasser, fyrrverandi fjármálaráðherra Austurríkis, í átta ára fangelsi fyrir mútuþægni og misnotkun valds í dag. Erlent 4. desember 2020 15:34
Íbúar Fucking langþreyttir á gríninu og breyta nafni bæjarins Íbúar í austurríska bænum Fucking hafa ákveðið að breyta nafni bæjarins eftir að hafa verið skotspónn grínista í netheimum um margra ára skeið. Frá áramótum mun bærinn bera nafnið Fugging og er ljóst einhverjir munu syrgja nafnabreytinguna. Erlent 27. nóvember 2020 07:33
Vill samkomulag um að skíðasvæði í Evrópu verði lokuð fram yfir áramót Þýsk stjórnvöld leitast nú eftir samkomulagi við önnur aðildarríki ESB um að halda skíðasvæðum lokuðum fram í byrjun janúar. Skuli það gert til að hefta útbreiðslu kórónuveirunnar. Erlent 26. nóvember 2020 10:06
Vilja að moskum öfgafullra islamista í Austurríki verði lokað Stjórnvöld í Austurríki munu fyrirskipa að moskum öfgafullra islamista í Austurríki verði lokað. Þetta er gert eftir hryðjuverkaárásina í höfuðborginni Vín á mánudag þar sem fjórir létu lífið og um tuttugu særðust. Erlent 6. nóvember 2020 13:49