Lausir skrúfboltar í vélum Boeing Skrúfboltar sem herða þurfti betur hafa fundist við skoðun á Boeing 737 Max 9 flugvélum. Flugfélagið United Airlines greinir frá þessu. Erlent 8. janúar 2024 22:38
Fyrsta geimskot nýrrar eldflaugar heppnaðist Ný eldflaug bar í nótt fyrsta tunglfarið frá Bandaríkjunum út í geim frá árinu 1972. Eldflaugin ber nafnið Vulcan og er þróuð af starfsmönnum United Launch Alliance, sem er samstarfsverkefni Boeing og Lockheed Martin, en geimskotið heppnaðist fullkomlega. Erlent 8. janúar 2024 16:57
Drápu háttsettan leiðtoga Hesbollah Ísraelar felldu í morgun einn af yfirmönnum Hesbollah-samtakanna í loftárás í suðurhluta Líbanon. Wissam Tawill stýrði úrvala hópi vígamanna og er æðsti leiðtogi Hesbollah sem felldur er af Ísraelum frá því átökin hófust fyrir botni Miðjarðarhafsins í október. Erlent 8. janúar 2024 15:41
Samkomulag loks í höfn en lokun stofnana enn möguleg Leiðtogar fulltrúa- og öldungadeildar Bandaríkjaþings lýstu því yfir í gærkvöldi að samkomulag hefði náðst um fjárlög ársins 2024. Minna en tvær vikur eru í stöðvun reksturs opinberra stofnana, verði fjárlög ekki samþykkt og er ekki ljóst hvort hægt verði að ljúka viðræðunum og samþykkja frumvarp fyrir þann tíma. Erlent 8. janúar 2024 11:27
Oppenheimer hlaut flest verðlaun á Golden Globe-hátíðinni Golden Globe-verðlaunahátíðin fór fram í Kalíforníu í gær og var það stórmyndin Oppenheimer sem hreppti flest verðlaun að þessu sinni, fimm talsins. Myndin hlaut meðal annars verðlaun sem besta dramamyndin, besta leikara í aðalhlutverki og besta leikara í aukahlutverki, en þer er um að ræða þá Cillian Murphy og Robert Downey Jr. Lífið 8. janúar 2024 07:51
Bandaríkjamenn ítreka að Palestínumenn eigi að fá að snúa heim Antony Blinken, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, er nú í opinberri heimsókn í Mið-Austurlöndum og hefur meðal annars notað tækifærið til að ítreka þá afstöðu stjórnvalda vestanhafs að Palestínumenn eigi að fá að snúa aftur heim eftir að átökum á Gasa lýkur. Erlent 8. janúar 2024 06:41
Kyrrsetja Boeing Max-flugvélar um allan heim Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) hafa fyrirskipað kyrrsetningu 171 flugvélar af gerðinni Boeing 737 Max 9 eftir að farþegaflugvél Alaska Airlines þurfti að nauðlenda í gær þegar gluggi gaf sig og stórt gat myndaðist í farþegarýminu. Erlent 6. janúar 2024 19:33
Leiðtogi NRA segir af sér Wayne LaPierre framkvæmdarstjóri samtaka skotvopnaeigenda í Bandaríkjunum NRA hefur tilkynnt að hann muni láta af störfum frá og með næstu mánaðamótum. Hann er 74 ára gamall og hefur farið fyrir samtökunum í þrjá áratugi. Erlent 6. janúar 2024 10:28
Prinsinn heima hjá Epstein vikum saman Andrés Bretaprins hékk á heimili athafna-og kynferðisbrotamannsins Jeffrey Epsteins í Flórída vikum saman, samkvæmt vitnisburði sem birtist í nýjum dómsskjölum. Erlent 6. janúar 2024 10:26
Lentu vélinni eftir að gat kom á farþegarými Farþegaflugvél á leið frá Portland í Oregon ríki í Bandaríkjunum til Kaliforníu varð að lenda 35 mínútum eftir brottför eftir að hluti vélarinnar féll af vélinni með þeim afleiðingum að stórt gat myndaðist í farþegarýminu. Erlent 6. janúar 2024 08:29
Sýpur seyðið af árás á dómara Maður sem stökk yfir dómarabekkinn og réðst á dómarann í máli hans í Las Vegas í vikunni, stendur frammi fyrir sjö nýjum ákærum eftir árásina. Hann mun þurfa að mæta aftur fyrir sama dómara í næstu viku. Erlent 5. janúar 2024 17:07
Bendi ekki til tengsla við sjálfsvígshugsanir Viðamikil bandarísk rannsókn bendir til þess að engin tengsl séu á milli notkunar sykursýkis-og megrunarlyfjanna Ozempic og Wegovy og aukinnar tíðni sjálfsskaða-og sjálfsvígshugsana. Innlent 5. janúar 2024 15:44
Fordæma Bandaríkjamenn vegna drónaárásar í Baghdad Ríkisstjórn Íraks fordæmdi í gær drónaárás Bandaríkjamanna í Baghdad, höfuðborg landsins, í gærmorgun. Í árásinni féll leiðtogi vopnahóps sem tengist yfirvöldum í Íran og öryggissveitum Íraks. Sá er sagður hafa skipulagt fjölmargar árásir á bandaríska hermenn í Írak. Erlent 5. janúar 2024 12:13
Líklegast að ISIS beri ábyrgð á árásinni í Íran Bandarísk yfirvöld segja að þau telji líklegast að hryðjuverkasamtökin sem kenna sig við Íslamska ríkið beri ábyrgð á hryðjuverkaárás í Íran í gær þar sem í hið minnsta 84 manns létust. Erlent 4. janúar 2024 16:22
Skiptir um trúfélag og íhugar að gerast djákni Bandaríski leikarinn Shia Labeouf hefur skráð sig í kaþólsku kirkjuna. Hann íhugar jafnframt að gerast djákni og starfa fyrir kirkjuna. Lífið 4. janúar 2024 13:17
Fékk ekki skilorð og réðst á dómarann Deobra Redden, þrítugur karlmaður frá Las Vegas í Bandaríkjunum, stökk yfir dómarabekkinn og réðst á dómarann í máli hans vegna líkamsárásar í gær. Hann virðist hafa verið ósáttur með ákvörðun dómarans um að fallast ekki á beiðni hans um skilorðsbundinn dóm. Erlent 4. janúar 2024 09:07
Tólf ríki hóta Hútum hefndaraðgerðum fyrir árásirnar á Rauða hafi Bandaríkin, Bretland og tíu önnur ríki hafa varað Húta við því að það muni hafa alvarlegar afleiðngar í för með sér ef þeir láta ekki af árásum sínum á flutningaskip á Rauða hafi. Erlent 4. janúar 2024 07:39
Réttarhöldum yfir árásarmanni Rushdie frestað vegna nýrrar bókar Réttarhöldum yfir manninum sem réðist á rithöfundinn Salman Rushdie í ágúst 2022 hefur verið frestar vegna útgáfu nýrrar bókar Rushdie um árásina og eftirmála hennar. Erlent 4. janúar 2024 07:02
Andrés, Clinton og Trump nefndir til sögunnar í Epstein-skjölunum Andrés Bretaprins og Bill Clinton og Donald Trump, fyrrverandi Bandaríkjaforsetar, eru meðal þeirra sem eru nefndir í dómsskjölum í tengslum við athafna- og kynferðisbrotamanninn Jeffrey Epstein. Erlent 4. janúar 2024 06:44
Rýmdu níu þinghús vegna sprengjuhótana Að minnsta kosti níu bandarísk þinghús voru rýmd í dag vegna sprengjuhótana. Þinghúsin níu má finna á víð og dreif um landið. Erlent 3. janúar 2024 22:49
Talinn vera sá fyrsti til þess að „vinna“ Tetris Þrettán ára Bandaríkjamaðurinn Willis Gibson er sagður vera fyrsta manneskjan í heiminum til að sigra einn klassískasta tölvuleik sögunnar, Tetris. Leikurinn hrundi þegar Gibson var kominn í 157. borð leiksins. Leikjavísir 3. janúar 2024 20:44
Hópárás gegn 90210 stjörnu náðist á myndband Bandaríski leikarinn Ian Ziering lenti í átökum við mótorhjólagengi á gamlárskvöld. Myndband af átökunum hefur verið birt í fjölmiðlum vestanhafs, en þar má sjá marga ráðast að Ziering sem svarar fyrir sig, en endar á að hlaupa á brott. Lífið 3. janúar 2024 10:37
Kimmel hótar Rodgers lögsókn fyrir ummæli um Epstein-listann Spjallþáttastjórnandinn Jimmy Kimmel hefur hótað lögsókn á hendur Aaron Rodgers, leikstjórnanda New York Jets, eftir að síðarnefndi gaf það í skyn að nafn Kimmel yrði að finna á margumræddum „vinalista“ kynferðisbrotamannsins Jeffrey Epstein. Lífið 3. janúar 2024 08:26
H5N1 sögð hafa valdið dauða ísbjarnar í Alaska Ísbjörn sem fannst dauður nærri Utqiagvik í norðurhluta Alaska reyndist smitaður af H5N1, sem hefur valdið dauða milljóna fugla og þúsunda spendýra frá árinu 2021. Erlent 3. janúar 2024 07:06
Að minnsta kosti 706 létust í 650 fjöldaskotárásum Alls létust 706 í fjöldaskotárásum í Bandaríkjunum í fyrra. Árásirnar voru 650 talsins og hafa aðeins einu sinni verið fleiri; voru 689 árið 2021. Erlent 2. janúar 2024 10:32
Maður margra dulargerva gómaður eftir mörg ár á flótta Strokufangi, sem hefur verið kallaður maður margra dulargerva (e. master of disguise), hefur verið handtekin í Kaliforníuríki Bandaríkjanna eftir fjögur ár á flótta, eða síðan hann slapp úr fangelsi á Hawaii árið 2019. Hann er meðal annars grunaður um dularfullt morð á kærustu sinni. Erlent 1. janúar 2024 14:01
Nýjar myndir af eldfjallatunglinu Íó NASA deildi í nótt nýjum myndum af Íó tungli Júpíters. Myndirnar voru teknar af svokallaðri JunoCam í geimfarinu Juo sem er um þessar mundir á sveimi um sólkerfið okkar. Erlent 31. desember 2023 08:43
Danskt fragtskip hæft af eldflaug Danskt fragtskip í eigu olíu- og flutningarisans Mærsk var hæft af eldflaug í gærkvöldi á siglingu um Rauðahafið. Þessu greinir DR frá. Erlent 31. desember 2023 08:19
Þrýst á hæstarétt vegna kjörgengis Trumps Maine varð í gær annað ríki Bandaríkjanna þar sem Donald Trump, fyrrverandi forseta, var meinað að vera á kjörseðlum í nóvember á næsta ári. Hæstiréttur Colorado hafði áður komist að sömu niðurstöðu þar og hafa lögsóknir, sem ætlað er að koma í veg fyrir kjörgengi Trumps, verið höfðaðar í á annan tug ríkja til viðbótar. Erlent 29. desember 2023 16:00
Leynilegt geimfar á hærri sporbraut en áður Starfsmenn geimfyrirtækisins SpaceX skutu í nótt leynilegu geimfari bandaríska hersins út í geim. Geimfarið X-37B er talið eiga að vera á braut um jörðu í að minnsta kosti tvö ár. Enginn er um borð en eins og áður ber geimfarið leynilegar tilraunir bandarískra vísindamanna. Erlent 29. desember 2023 09:52