Smyglaði 643 OxyContin töflum til landsins Karlmaður var í dag sakfelldur fyrir að hafa staðið að innflutningi á 643 töflum af ávana-og fíknilyfinu OxyContin. Maðurinn flutti efnin til landsins með flugi frá Varsjá í Póllandi en tollverðir fundu efnin við leit í farangri ákærða. Innlent 10. júní 2022 15:13
Hæstiréttur fellst á að taka fyrir mál Jóns Ársæls Hæstiréttur hefur fallist á að taka fyrir mál fjölmiðlamannsins Jóns Ársæls Þórðarsonar sem dæmdur var í Landsrétti til að greiða konu, sem hann tók viðtal við í sjónvarpsþáttunum Paradísarheimt og sýndir voru í Ríkissjónvarpinu, 800 þúsund krónur í miskabætur og þrjár milljónir króna í málskostnað. Innlent 10. júní 2022 08:09
Stuðningsfulltrúi tognaði á öxl og fær átta milljónir í bætur Borgarbyggð hefur verið gert að greiða stuðningsfulltrúa sveitarfélagsins tæpar átta milljónir króna í skaðabætur vegna slyss sem varð við umönnun hans á þroskaskertum einstaklingi. Innlent 9. júní 2022 16:01
Fimm mánuðir fyrir hálfrar milljónar dósasvindl Héraðsdómur Norðurlands eystra hefur dæmt fyrrverandi starfsmann Endurvinnslunnar á Akureyri í fimm mánaða fangelsi fyrir fjársvik. Innlent 9. júní 2022 10:41
Þagnarskyldusamningar, þrálátar beiðnir um kynlíf og meint kynferðisbrot Hinn 26 ára gamli Deshaun Watson, leikstjórnandi Cleveland Browns í NFL-deildinni, er í vondum málum eftir rannsókn New York Times. Er hann lék með Houston Texans ku Watson ítrekað hafa reynt að sannfæra nuddara um að stunda með sér kynmök, farið yfir mörk og jafnvel brotið á þeim. Sport 9. júní 2022 09:30
Sóttu jólastyttu fulla af kókaíni á pósthúsið á Stórhöfða Héraðsdómur Reykjavíkur hefur dæmt tvo karlmenn í fangelsi fyrir tilraun til stórfellds fíkniefnainnflutnings þar sem þeir sóttu pakka á pósthús þar sem í var jólastytta með um kíló af kókaíni innan í. Innlent 9. júní 2022 08:08
Fær eina og hálfa milljón vegna aðgerða lögreglu í vændismáli Íslenska ríkið þarf að greiða karlmanni 1,5 milljónir króna í bætur vegna umfangsmikilla rannsóknaraðgerða og þvingunarráðstafana í tengslum við rannsókn lögreglu á meintum brotum mannsins, sem tengdust meðal annars vændi. Innlent 8. júní 2022 11:18
Skilorðsbundið fangelsi fyrir að senda kynferðislegt efni af fyrrverandi Karlmaður var á dögunum dæmdur til sex mánaða fangelsisvistar sem frestað verður til tveggja ára, haldi hann almennt skilorð. Hann var einnig ákærður fyrir margvísleg meint brot gegn fyrrverandi unnustu sinni, þar á meðal nauðgun, en sýknaður af þeim öllum. Innlent 7. júní 2022 19:37
Ákærður fyrir tilraun til manndráps Tveir karlmenn á þrítugsaldri hafa verið ákærðir fyrir árás fyrir framan skemmtistaðinn 203 Club í miðborg Reykjavíkur. Annar þeirra er ákærður fyrir tilraun til manndráps. Líklegt er að skrúfjárni hafi verið beitt. Innlent 7. júní 2022 15:03
Stjórn Íslensku óperunnar hefur greitt Þóru Óperusöngkonan Þóra Einarsdóttir segist ekkert hafa heyrt frá stjórn Íslensku óperunnar vegna dóms Landsréttar í máli þeirra. Stjórnin sagði í tilkynningu í gær að búið væri að greiða henni vangoldin laun og ræða við fulltrúa söngvara um framtíðina. Innlent 4. júní 2022 20:31
Álag vegna fjarkennslu skuli greitt á hættustundu Félagsdómur felldi á þriðjudag dóm í tvíþættu máli Félags grunnskólakennara gegn Sambandi íslenskra sveitarfélaga. Fallist var á kröfu félagsins um 50 prósent fjarkennsluálag en kröfu um yfirvinnugreiðslu vegna tilfærslu á vinnutíma kennara innan sömu vinnuviku, á tímum hæsta neyðarstigs almannavarna, var hafnað. Innlent 4. júní 2022 12:26
Íslenska óperan hyggst ekki áfrýja dómi Landsréttar Stjórn Íslensku óperunnar hefur ákveðið að una dómi Landsréttar í máli Þóru Einarsdóttur gegn Íslensku óperunni. Fram kemur í tilkynningu frá stjórninni að óperan hafi þegar greitt Þóru og öðrum söngvurum sýningarinnar Brauðkaup Fígarós í samræmi við niðurstöðu dómsins. Innlent 3. júní 2022 20:10
Kópavogsbær sýknaður af 75 milljarða króna kröfu Kópavogsbær var í dag sýknaður af öllum kröfum erfingja Sigurðar Hjaltested, eigenda Vatnsendajarðarinnar, í Landsrétti en þeir kröfðust 75 milljarða króna úr hendi bæjarins. Innlent 3. júní 2022 14:05
Fær bætur fyrir að hafa verið skikkuð í sóttvarnarhús Kona sem skikkuð var í sóttkví í sóttvarnarhúsi við komuna til landsins á rétt á sextíu þúsund króna miskabótum vegna þess. Konan hafði ætlað sér að fara í sóttkví á heimili sínu við komuna til landsins. Innlent 3. júní 2022 09:24
Marxistar fá ekki ókeypis lóð frá borginni Reykjavíkurborg var ekki skylt að úthluta Díamat, lífsskoðunarfélagi marxista, ókeypis lóð fyrir starfsemi sína. Félagið taldi að borgin hefði sett fordæmi með að úthluta nokkrum trúfélögum öðrum en þjóðkirkjunni lóðir án endurgjalds. Innlent 2. júní 2022 14:45
Þórður Már og Sólveig Guðrún sýknuð af milljarðakröfu Þórður Már Jóhannesson og Sólveig Guðrún Pétursdóttir voru í dag sýknuð af 2,3 milljarða króna skaðabótakröfum félagsins Lyfjablóms ehf. Kröfurnar áttu rætur sínar að rekja til viðskipta frá árunum 2006 og 2007 en héraðsdómur taldi kröfurnar fallnar niður fyrir tómlætissakir þar sem ekki var hafist handa við málsókn fyrr en árið 2017. Lyfjablóm var dæmt til að greiða samtals tíu milljónir króna í málskostnað. Innlent 2. júní 2022 13:27
„Tjáningarfrelsinu einu að þakka hvert við erum komin í dag þegar kemur að kynferðisbrotamálum“ Dómur í meiðyrðamáli Ingólfs Þórarinssonar er ekki til marks um að segja megi hvað sem er um hvern sem er á internetinu. Þetta segir lögmaður Sindra Þórs sem var sýknaður í málinu. Innlent 1. júní 2022 21:01
Borgin sýknuð í þriðja sinn í innviðagjaldsmálinu Reykjavíkurborg var í dag sýknuð af kröfum verktakafyrirtækisins Sérverk ehf. í Hæstarétti. Fyrirtækið krafði borgina um endurgreiðslu á rúmlega 120 milljónum króna sem þeir höfðu greitt í tengslum við uppbyggingu í Vogabyggð. Innlent 1. júní 2022 15:24
Árásarmaður í Grafarholti þarf að afplána níu hundruð daga af fyrri dómi Maðurinn sem grunaður er um tilraun til manndráps í tengslum við skotárás á bílastæði í Grafarholti í Reykjavík í febrúar síðastliðnum þarf að afplána 900 daga eftirstöðvar af fimm ára fangelsisdómi sem hann hlaut árið 2018. Innlent 1. júní 2022 13:35
Hæstaréttarlögmaður segir tjáningafrelsið hafa þanist út Hæstaréttarlögmenn hafa ýmist hneykslast á sýknudómi héraðsdóms yfir Sindra Þór Sigríðarsyni Hilmarssyni eða sagt dóminn til marks um aukið tjáningafrelsi. Innlent 31. maí 2022 20:01
Tveggja ára fangelsi fyrir stórfellt fíkniefnabrot Karlmaður sem hlaut tveggja ára fangelsisdóm fyrir stórfellt fíkniefnabrot þarf að afplána dóminn eftir að Landsréttur taldi ekki rétt hjá héraðsdómi að skilorðsbinda refsinguna. Þá var sýknu hans af ákæru um peningaþvætti snúið við. Innlent 31. maí 2022 15:27
Reykjanesbær braut ekki á mannréttindum hjólagarpsins Arnars Reykjanesbær braut ekki á mannréttindum Arnars Helga Lárussonar vegna slæms aðgengis fatlaðra að Duushúsinu og 88-húsinu í bænun. Innlent 31. maí 2022 11:32
Áætlað verðmæti þýfisins 43 milljónir króna Héraðsdómur Reykjaness hefur dæmt þrítugan karlmann í átján mánaða fangelsi fyrir fjölda þjófnaðar- og fíkniefnabrota. Maðurinn var meðal annars sakfelldur fyrir 28 þjófnaðarbrot þar sem áætlað verðmæti alls þýfisins nam ríflega 43 milljónum króna. Innlent 31. maí 2022 11:18
„Þetta snýst fyrst og fremst um þolendur“ Sindri Þór Sigríðarson Hilmarsson, sem var í dag sýknaður af stefnu Ingólfs Þórarinssonar, tónlistarmanns, um meiðyrði. Hann segir niðurstöðuna skipta mestu máli fyrir þolendur. Sýkna hans þýddi að segja mætti hlutina fullum fetum. Innlent 30. maí 2022 19:30
„Þú mátt segja hvað sem er um hvern sem er og vísa í kjaftasögu til stuðnings“ Sindri Þór Sigríðarson Hilmarsson var í dag sýknaður af stefnu Ingólfs Þórarinssonar tónlistarmanns um meiðyrði. Lögmaður Ingólfs telur dóminn marka þau tímamót að segja megi hvað sem er um hvern sem er á internetinu. Innlent 30. maí 2022 19:15
Sindri sýknaður af meiðyrðum í garð Ingólfs veðurguðs Sindri Þór Sigríðarson Hilmarsson var í dag sýknaður af stefnu Ingólfs Þórarinssonar tónlistarmanns um meiðyrði. Dómur var kveðinn upp í Héraðsdómi Reykjavíkur síðdegis. Innlent 30. maí 2022 15:54
Sex ára fangelsi og fær ekki að halda Rolex-úrinu Steingrímur Þór Ólafsson hefur verið dæmdur í sex ára fangelsi fyrir umfangsmikil fíkniefnabrot sem tengdust umfangsmikilli amfetamínsframleiðslu í sumarbústað í Kjós. Jónas Árni Lúðvíksson fékk sex mánaða dóm fyrir aðild sína að framleiðslunni. Dómur var kveðinn upp í síðustu viku. Innlent 30. maí 2022 15:41
Skipaður lögráðamaður dró sér þrjár milljónir króna Héraðsdómur Vesturlands hefur dæmt konu á sextugsaldri í sex mánaða fangelsi fyrir fjárdrátt og brot í opinberu starfi eftir að hafa sem skipaður lögráðamaður dregið sér rúmar þrjár milljónir króna af bankareikningi skjólstæðings og millifært inn á persónulegan reikning. Innlent 30. maí 2022 11:11
Þurfa ekki að taka ábyrgð á skuld við Slayer - í bili Landsréttur sneri við dómi Héraðsdóms Reykjavíkur og sýknaði aðstandendur tónlistarhátíðarinnar Secret Solstice af kröfu umboðsfyrirtækis bandarísku þungarokkssveitarinnar Slayer um greiðslu á þóknun. Innlent 28. maí 2022 11:13
„Þessi refsing endurspeglar alvarleika brotsins“ Dómur í máli Gísla Haukssonar fyrir brot í nánu sambandi gegn fyrrverandi sambýliskonu sinni féll 17. maí síðastliðinn. Gísli játaði sök og var gert að sæta 60 daga skilorðsbundnu fangelsi en mörgum þótti dómurinn vægur. Haukur Örn Birgisson, verjandi Gísla í málinu, segir ástæðu refsingarinnar einfaldlega vera kröfur ákæruvaldsins sem umbjóðandi hans hafi sætt sig við. Hann afsalaði sér málsvarnarlaunum í málinu Innlent 28. maí 2022 07:08