

Donald Trump
Fréttir tengdar 45. og 47. forseta Bandaríkjanna, Donald Trump.

Tæplega átta tíma gat á gögnum Hvíta hússins frá 6. janúar
Upplýsingar um símtöl Donalds Trump, fyrrverandi forseta, á tæplega átta klukkustunda tímabili vantar inn í gögn Hvíta hússins frá deginum þegar stuðningsmenn hans ruddu sér leið inn í þinghús Bandaríkjanna. Þingnefnd sem hefur árásina á þinghúsið til rannsóknar kannar nú hvort Trump hafi notað aðrar og óformlegar leiðir til að ræða við starfsmenn sína og stuðningsmenn.

Trump í mál við Clinton og flokksstjórn Demókrata
Donald Trump hefur höfðað mál gegn Hillary Clinton, flokksstjórn Demókrataflokksins og tuttugu og sex öðrum einstaklingum vegna ásakana um tengingu hans við Rússland í kosningabaráttunni árið 2016 og fer fram á milljónir dollara í skaðabætur.

Segir Pútín hafa ætlað að bíða þar til Trump losaði sig við NATO
Fyrrum öryggisráðgjafi Donald Trump sagði í viðtali í dag að hann telji að Vladimir Pútín hafi ætlað sér að bíða með innrás í Úkraínu þar til Trump yrði endurkjörinn og myndi draga Bandaríkin úr NATO.

Hvert áfallið á fætur öðru hjá Trump
Þjóðskjalasafn Bandaríkjanna hefur staðfest að Donald Trump, fyrrverandi forseti, tók leynileg gögn með sér þegar hann flutti úr Hvíta húsinu til Flórída í byrjun árs í fyrra. Trump hefur orðið fyrir hverju lagalegu áfallinu á fætur öðru í vikunni.

Standa ekki lengur við fjárhagsskýrslur fyrirtækis Trumps
Endurskoðunarfyrirtækið Mazars USA segist ekki lengur geta staðið við árlegar fjárhagsskýrslur sem fyrirtækið gaf út fyrir hönd Trump Organization, fyrirtæki Donalds Trump, fyrrverandi Bandaríkjaforseta.

Tók leynileg gögn með sér til Flórída
Donald Trump, fyrrverandi forseti Bandaríkjanna, tók leynileg gögn með sér til Flórída eftir að hann steig úr embætti. Sum gagnanna voru merkt sem „Top Secret“ sem er ein hæsta leyndarskilgreining bandarískra stjórnvalda.

Báðu um rannsókn á gagnameðferð Trumps
Forsvarsmenn Þjóðskjalasafns Bandaríkjanna eru sagðir hafa beðið dómsmálaráðuneytið um að opna rannsókn á meðhöndlun Donalds Trump, fyrrverandi forseta, og starfsmanna hans á opinberum gögnum í Hvíta húsinu. Það er í kjölfar þess að í ljós kom að Trump hafði tekið fimmtán kassa af gögnum og skjölum með sér til Flórída er hann steig úr embætti.

Gagnrýnir landsnefndina fyrir að beita sér gegn andstæðingum Trumps
Mitch McConnell, leiðtogi Repúblikanaflokksins í öldungadeild Bandaríkjanna, gagnrýndi í kvöld landsnefnd flokksins fyrir að ávíta tvo þingmenn flokksins. Það gerði landsnefndin vegna þess að þingmennirnir tveir taka þátt í rannsókn fulltrúadeildarinnar á rannsókninni á þinghúsið í fyrra.

Tók „ástarbréfin“ frá Kim með sér til Flórída
Donald Trump, fyrrverandi forseti Bandaríkjanna, flutti fjölda gagna, bréfa og skjala úr Hvíta húsinu og í híbýli sín í Mar-a-Lago í Flórída. Starfsmenn Þjóðskjalasafns Bandaríkjanna þurftu að sækja gögnin en þau hefðu átt að vera flutt til stofnunarinnar, samkvæmt lögum.

Trump ætlar að náða óeirðaseggina ef hann vinnur
Donald Trump segist ætla að náða þá sem voru dæmdir vegna árásarinnar á þinghúsið þann 6.janúar í fyrra ef hann verður forseti á ný. Hann hélt fjöldafund í Texas í gær þar sem hann gældi við mögulegt forsetaframboð.

Lafhræddir Demókratar vilja drífa sig
Joe Biden, forseti Bandaríkjanna, vill tilnefna nýjan hæstaréttardómara eins fljótt og auðið er og koma tilnefningu hennar fljótt í gegnum öldungadeildina. Þar á bæ hafa Repúblikanar þegar gefið í skyn að þeir vilji draga ferlið á langinn.

Hæstiréttur brást vonum Trumps
Hæstiréttur Bandaríkjanna hafnaði í gær kröfu Donalds Trump, fyrrverandi forseta, um að þingnefnd sem rannsakar árásina á þinghúsið í fyrra fengi ekki aðgang að gögnum hans. Lögmenn Trumps höfðu vonast eftir því að koma í veg fyrir afhendingu gagnanna en nú er sú von úti.

Tókst ekki að breyta reglum öldungadeildarinnar og samþykkja kosningalög
Tilraunir Demókrata til að koma á nýjum kosningalögum í Bandaríkjunum misheppnuðust í gær þegar tveir öldungadeildarþingmenn flokksins neituðu að taka þátt í því að breyta reglum þingdeildarinnar. Umræddar breytingar eru Demókrötum nauðsynlegar til að koma frumvarpinu í gegnum þingið vegna naums meirihluta þeirra.

Segjast hafa umtalsverð sönnunargögn um lögbrot
Starfsmenn ríkissaksóknara New York sögðust í gær hafa fundið umtalsverð sönnunargögn um að forsvarsmenn fyrirtækis Donalds Trump, fyrrverandi forseta, hefðu beitt sviksömum og villandi leiðum til að fá lán og greiða lægri skatta.

Vilja spyrja Giuliani spjörunum úr varðandi árásina á þinghúsið
Bandaríska þingnefndin sem nú rannsakar árásina á þinghúsið í Washington í janúar í fyrra hefur nú stefnt Rudy Guiliani fyrir nefndina, en hann var um tíma persónulegur lögmaður Donalds Trump forseta.

Kallar eftir breytingum á þingi og nýjum kosningalögum
Joe Biden, forseti Bandaríkjanna, lýsti því yfir í dag að hann væri hlynntur því að fella niður regluna um aukinn meirihluta í öldungadeildinni, svo Demókratar gætu komið nýjum kosningalögum þar í gegn. Hann sagði það nauðsynlegt til að vernda „hjarta og sál“ lýðræðisins í Bandaríkjunum.

Biden segir Trump halda hnífi að hálsi lýðræðisins
Joe Biden Bandaríkjaforseti gagnrýndi forvera sinn í starfi, Donald Trump, harðlega í ræðu sem hann hélt í nótt. Ræðuna bar upp á ársafmæli árásarinnar á þinghús Bandaríkjanna í Washington, þar sem fjöldi fólks ruddist inn og reyndi að koma í veg fyrir að kjör Bidens yrði staðfest.

Biden segir Trump ógn við lýðræðið
Joe Biden, forseti Bandaríkjanna, ætlar í dag að marka það að ár er liðið frá því stuðningsmenn Donalds Trump, fyrrverandi forseta, réðust á þinghúsið. Það gerðu þau með því markmiði að koma í veg fyrir formlega staðfestingu úrslita forsetakosninganna 2020.

Ár frá árásinni á þinghúsið: Tak Trumps á Repúblikanaflokknum hefur aldrei verið þéttara
Ár er liðið frá því að stór hópur stuðningsmanna Donalds Trump, fyrrverandi forseta Bandaríkjanna, ruddi sér leið í gegnum tálma lögreglunnar og reyndi að koma í veg fyrir formlega staðfestingu úrslita forsetakosninganna 2020. Kosninga sem Trump tapaði gegn Joe Biden.

Trump og tveimur börnum hans stefnt
Ríkissaksóknari New York hefur stefnt Donald Trump, fyrrverandi forseta Bandaríkjanna, og tveimur börnum hans Ivönku Trump og Donald Trump yngri. Saksóknarinn krefst þess að þau beri vitni í rannsókn á Trump Organization, fyrirtæki Trumps.

Repúblikanar vilja stjórna hverjir kjósa og hvernig atkvæði eru talin
Repúblikanar víðsvegar um Bandaríkin hafa gripið til aðgerða sem taka mið af því að gera flokksmeðlimum auðveldara að snúa niðurstöðum kosninga í Bandaríkjunum. Viðleitnin byggir á grunni ósanninda Donalds Trump, fyrrverandi forseta, um að umfangsmikið svindl hafi kostað hann sigur í forsetakosningunum 2020 gegn Joe Biden.

Þáttastjórnendur Fox News vildu að forsetinn gripi inn í óeirðirnar
Þrír þekktir þáttastjórnendur hjá Fox News sendu Mark Meadows, sem þá var hægri hönd Donald Trump í Hvíta húsinu, skilaboð 6. janúar síðastliðinn og biðluðu til hans um að fá forstann til að hvetja fólk til að hverfa frá þinghúsinu í Washington.

Fulltrúi Kanye þrýsti á kosningastarfsmann um að játa á sig kosningasvindl
Trevian Kutti, sem starfar fyrir tónlistarmanninn, frumkvöðulinn og forsetaframbjóðandann fyrrverandi, Kanye West, þrýsti á kosningastarfsmenn í Georgíu um að játa kosningasvindl skömmu eftir forsetakosningarnar vestanhafs í fyrra.

Ekki margir möguleikar eftir fyrir Trump til að koma í veg fyrir að gögnin verði afhent
Áfrýjunardómstóll í Bandaríkjunum hefur hafnað beiðni Donald Trump, fyrrverandi forseta Bandaríkjanna, um að þingnefnd sem rannsakar árásina á þinghús Bandaríkjanna í janúar fái ekki að sjá tiltekin skjöl frá forsetatíð Trump.

Hættir á þingi til að stýra fyrirtæki Trumps
Devin Nunes, þingmaður Repúblikanaflokksins frá Kaliforníu, ætlar að hætta á þingi í lok mánaðarins til að taka að sér stjórn nýs fjölmiðlafyrirtækis Donalds Trump, fyrrverandi forseta. Fyrirtækið heitir Trump Media & Technology Group og mun Nunes taka við stjórn þess í byrjun næsta árs.

Dauðsföll af völdum Covid-19 mun tíðari meðal stuðningsmanna Trump
Frá því í maí á þessu ári hafa íbúar í sýslum þar sem Donald Trump, fyrrverandi Bandaríkjaforseti, naut mikils stuðnings í síðustu forsetakosningum verið þrisvar sinnum líklegri til að deyja sökum Covid-19 en íbúar sýsla þar sem stuðningur við Joe Biden var verulegur.

Kosningastarfsmenn kæra vegna falsfrétta í Georgíu og hótana
Tveir kosningastarfsmenn í Georgíu í Bandaríkjunum hafa höfðað mál gegn hægri-öfgasíðunni Gateway Pundit vegna falsfrétta á vefnum um að þær hafi framið kosningasvik í forsetakosningunum í fyrra. Fréttaflutningur miðilsins hafi leitt til þess að þær hafi verið ofsóttar og áreittar.

Sýknu í máli Rittenhouse mótmælt víða um Bandaríkin
Lögreglan í borginni Portland í Oregon í Bandaríkjunum lýsti því yfir í gærkvöldi að mótmæli í borginni, sem voru til komin vegna sýknu Kyle Rittenhouse, væru orðin að óeirðum.

Biden segist reiður yfir sýknu Rittenhouse
Joe Biden Bandaríkjaforseti kveðst reiður yfir því að táningurinn Kyle Rittenhouse hafi verið sýknaður af öllum ákæruliðum á hendur sér í gær. Rittenhouse varð tveimur að bana og særði þann þriðja í óeirðum í borginni Kenosha á síðasta ári, og hafði verið ákærður fyrir morð.

„Seiðmaðurinn“ dæmdur í rúmlega þriggja ára fangelsi
Jacob Chansley, sem gengur undir nafninu Qanon seiðmaðurinn, hefur dæmdur í 41 mánaðar fangelsi fyrir aðkomu hans að árásinni á þinghús Bandaríkjanna í janúar. Dómsmálaráðuneyti Bandaríkjanna hafði farið fram á þunga refsingu til að setja fordæmi í aðdraganda fleiri dómsmála gegn fólki sem tók þátt í árásinni.