

Eldgos á Reykjanesskaga
Hrina eldgosa á Reykjanesskaga hófst í mars 2021 í Geldingadölum. Það ellefta varð norðan Grindavíkur í apríl 2025.

Almannavarnir boða til íbúafundar fyrir Grindvíkinga
Almannavarnir hafa boðað til upplýsingafundar í Laugardalshöll fyrir íbúa Grindavíkur næstkomandi mánudag. Markmiðið er að upplýsa íbúa um stöðu jarðhræringa og innviða í og við Grindavík.

Milljarðatjón vegna umfjöllunar um jarðhræringar við Grindavík
Forstjóri Play segir fréttir heimsfjölmiðla af umbrotunum í Grindavík fyrr í vetur hafa valdið íslenskri ferðaþjónustu milljarðatjóni. Hann hvetur íslensk stjórnvöld til að líta í eigin barm um hvað megi gera betur.

Sífellt erfiðara að sjá fyrir upphaf eldgoss
Fyrirvarinn á næsta eldgosi á Reykjanesi gæti orðið innan við hálftími að mati jarðeðlisfræðings. Merkin sem fylgst er með í aðdraganda eldgosa verði sífellt veikari eftir því sem atburðunum á svæðinu fjölgar.

Spókuðu sig í nýja hrauninu við Svartsengi
Hópur ferðamanna kíkti á hraunið við Svartsengi í dag. Túristarnir, sem voru með síma sína á lofti, gengu um Grindavíkurveg sem varð illa úti í síðasta gosi.

Fyrirvari næsta goss gæti orðið innan við hálftími
Kvikumagn undir Svartsengi nálgast nú sömu mörk og í aðdraganda fyrri gosa. Fyrirvari vegna næsta eldgoss gæti orðið mjög stuttur, innan við þrjátíu mínútur.

Loka fyrir heitt vatn á meðan ný hitaveitulögn er tengd
HS Veitur munu á morgun loka fyrir heitt vatn í Grindavík frá klukkan 09:00 og fram á kvöld á meðan verið er að tengja hjáveitu hitalögn sem kemur í stað þeirrar sem skemmdist í eldgosi þann 14. janúar síðastliðinn.

Fagna lögum um kaup á íbúðarhúsnæði Grindvíkinga
Forseti bæjarstjórnar Grindavíkur segir nýsamþykkt frumvarp um kaup á íbúarhúsnæði í bænum fagnaðarefni en mögulega þurfi að mæta ákveðnum hópnum betur.

Lög um kaup á húsnæði í Grindavík samþykkt
Alþingi samþykkti stuttu eftir miðnætti frumvarp um kaup ríkissjóðs á íbúðarhúsnæði í Grindavík og fjáraukalög til þess að fjármagna kaupin.

Ekki skynsamlegt að gista í bænum enda styttist í eldgos
Miklar líkur eru á að það verði eldgos í næstu viku að sögn eldfjallafræðings. Gos innan bæjarmarka Grindavíkur er mögulegt, fyrirvarinn gæti verið stuttur og því ekki skynsamlegt að gista í bænum. Starfsmaður Vegagerðarinnar segir að kanna hefði þurft sprungur betur áður en fólki var hleypt aftur inn í bæinn.

Bjóða Grindvíkingum að færa fasta vexti
Landsbankinn býður Grindvíkingum sem eru með íbúðalán á föstum vöxtum hjá bankanum og ákveða að selja ríkinu íbúðarhúsnæði sitt að halda þeim kjörum sem eru á láninu við kaup á nýrri fasteign.

Nær þröskuldi eldgoss í næstu viku
Kvikusöfnun við Svartsengi heldur áfram á sama hraða og áður. Hraðinn er stöðugur og svipar mjög til þess sem sást í aðdraganda síðustu eldgosa.

Loksins landað í Grindavík: „Ég er ekki tilbúinn til að kveðja þetta líf“
Mikið líf var í Grindavíkurhöfn í hádeginu þegar Vésteinn GK kom inn til löndunar í höfninni í fyrsta sinn síðan í janúar. Vatn komst á höfnina í morgun og eru Grindvíkingar bjartsýnir á framhaldið.

Hiti rís upp frá nýju hrauni og myndar bólstra í lofti
Ef litið er frá höfuðborgarsvæðinu í átt að Reykjanesinu má í dag sjá röð skúraskýja frá nýju hrauni við Sundhnúkagíga og út á sjó.

Grindavíkurvegur opnaður á nýjan leik
Búið er að opna leið um Grindavíkurveg frá Reykjanesbraut að nýrri vegtengingu að Bláa lóninu sunnan varnargarðs. Nýr hluti Bláalónsvegar er allur innan varnargarðsins. Þessi leið er öllum opin en lokað er til Grindavíkur nema þeim sem um mega fara.

Köldu vatni hleypt á hafnarsvæðið
Byrjað er að hleypa köldu vatnið á kerfið á hafnarsvæðinu í Grindavík. Almannavarnir ítreka að mikilvægt er að eigendur fasteigna séu viðstaddir þegar vatni er hleypt á.

Veita eigendum íbúða í Grindavík undanþágu
Fjármálastöðugleikanefnd Seðlabankans hefur ákveðið að rýmka tímabundið lánþegaskilyrði þeirra einstaklinga sem áttu íbúðarhúsnæði í Grindavík 10. nóvember 2023.

Hópur fólks finni fyrir þrýstingi um að fara inn í Grindavík
Tugir mættu til vinnu í Grindavík í dag eftir langt hlé. Á sama tíma er bærinn alveg vatnslaus, en vonir standa til að köldu vatni verði komið á hafnarsvæði bæjarins á morgun. Verkalýðsleiðtogi í Grindavík er gagnrýninn á opnun bæjarins.

Vildi einn lækka stýrivexti
Ekki voru allir meðlimir peningastefnunefnda Seðlabankans sammála um næstu skref á síðasta fundi nefndarinnar. Varaseðlabankastjóri fjármálastöðugleika vildi lækka stýrivexti.

„Galið“ að opna bæinn upp á gátt
Formaður Verkalýðsfélags Grindavíkur furðar sig á því að bærinn hafi verið opnaður fyrir búsetu og atvinnustarfsemi. Hann segir ekkert samráð hafa verið haft við verkalýðsfélögin fyrr en í morgun, þegar þau voru boðuð á fund með fulltrúum ráðuneyta. Ekki nema um tíu manns gistu í Grindavík í nótt, fyrstu nóttina eftir að bærinn var opnaður að fullu.

Náttúruhamfaratrygging vill hlutdeild í tekjum af fasteignunum
Náttúruhamfaratrygging Íslands gerir athugasemd við að á sama tíma og gert sé ráðfyrir að fjármálaráðherra sé heimilt að ráðstafa eignum NTÍ til að fjármagna kaup á heimilum Grindvíkinga, sé ekki gert ráð fyrir að stofnunin fái neitt í staðinn.

Búið að afgreiða 244 umsóknir af 598 um endurmat brunabóta
Eigendur 598 íbúða í Grindavík hafa óskað eftir endurmati brunabóta og af þeim hafa 244 umsóknir þegar verið afgreiddar. Þetta kemur fram í umsögn HMS við frumvarp um kaup ríkisins á íbúðarhúsnæði í Grindavík.

Gistir í Grindavík í nótt: „Við erum nokkrir Grindjánar sem sjáum ekkert annað en Grindavík“
Heimakærir Grindvíkingar nýttu sér í dag breytt fyrirkomulag aðgengismála í bænum og sóttu ýmist vinnu eða huguðu að eigum sínum.

Kalt vatn til hafnarsvæðisins í Grindavík á fimmtudag
Vinnu við stofnlögn vatnsveitu Grindavíkurbæjar, sem varð fyrir tjóni í eldgosinu 14. janúar, er að ljúka. Stefnt er að því að hleypa vatni um lögnina á fimmtudaginn næstkomandi.

Um 400 manns í Grindavík í dag
Úlfar Lúðvíksson, lögreglustjóri á Suðurnesjum, segir að vel hafi gengið í Grindavík í dag. Hann telur að 400 einstaklingar hafi farið inn í bæinn í dag og um 150 aftur út. Einhverjir séu starfsmenn fyrirtækja og eigendur og svo séu líka einstaklingar sem séu á leið heim.

Hættir við málsókn gegn ríkinu vegna aðgengi að Grindavík
Maður sem höfðað mál á hendur íslenska ríkinu vegna lokunar Grindavíkur hefur hætt við. Stefán Kristjánsson, forstjóri og eigandi fiskvinnslufyrirtækisins, hætti við þar sem búið er að opna á aðgengi fólks að bænum.

Hættur leynast enn í Grindavík og jarðkönnun ekki lokið
Frá og með deginum í dag fá Grindvíkingar nær óskertan aðgang að bænum en ekki er ráðlegt að ganga um bæinn því hættur geta leynst þar víða.

Myndi gista í Grindavík, en ekki með börn
Magnús Tumi Guðmundsson jarðfræðingur segist myndu gista í Grindavík ef hann þyrfti þess, en ekki með börn. Hann segir fólk þurfa að vera viðbúið, ætli það sér að dvelja í bænum, að yfirgefa bæinn á hálftíma.

Áhyggjuraddir og spurningaflóð á hitafundi um Grindavík
„Ég er búin að sakna þess að þið upplýsið mig sem íbúa og fyrirtækjaeiganda um stöðuna í sveitarfélaginu og ég óska eftir því að frá og með deginum í dag verði þar breyting á.“

„Við náttúrulega hvorki pissum né kúkum“
Sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs Grindavíkurbæjar segir að byrjað verið að hleypa köldu vatni á bæinn í áföngum á miðvikudag. Hann segir mikilvægt að vandað verði til verka til þess að koma í veg fyrir tjón á mannvirkjum.

Nýtt hættusvæði í uppfærðu hættumati
Líkanareikningar benda til að kvika nái svipaðri stöðu og fyrir síðasta eldgos í lok febrúar eða byrjun mars. Þetta kemur fram í uppfærðu hættumati.