

Enski boltinn
Fréttir, myndbönd og tölfræði úr ensku deildinni.
Leikirnir

Vængbrotið Man Utd flaug áfram í bikarnum
Manchester United lagði Wigan Athletic í 3. umferð ensku bikarkeppninnar í kvöld. Lokatölur 2-0 gestunum í vil sem mæta Newport County eða Eastleigh í 4. umferð.

Henderson ekki á leið til Liverpool á nýjan leik ef marka má Klopp
Miðjumaðurinn Jordan Henderson hefur fengið nóg af Sádi-Arabíu aðeins örfáum mánuðum eftir að flytja þangað. Hann er þó ekki á leið í sitt fyrrum félag Liverpool ef marka má orð Jürgen Klopp.

Liverpool lánar Carvalho strax aftur
Fábio Carvalho var ekki lengi hjá Liverpool eftir að þýska félagið RB Leipzig sagði upp lánssamningi sínum.

De Bruyne: Meiðslin mín kannski lán í óláni
Kevin De Bruyne lék aftur með Manchester City um helgina þegar liðið vann stórsigur á Huddersfield Town í enska bikarnum.

Líkir Alexander-Arnold við Gerrard
Martin Keown var afar hrifinn af frammistöðu Trents Alexander-Arnold á miðjunni þegar Liverpool vann Arsenal í ensku bikarkeppninni í gær og líkti honum við sjálfan Steven Gerrard.

Sjáðu stórkostlegt mark Bamford í bikarnum
Patrick Bamford, leikmaður Leeds, skoraði ótrúlegt mark fyrir liðið á útivelli gegn Peterborough í FA-bikarnum í gær.

Arteta: Spiluðum vel gegn líklega besta liði í Evrópu
Mikel Arteta, þjálfari Arsenal, segir að liðið sitt hafi spilað vel gegn Liverpool, þrátt fyrir tapið.

„Erfitt fyrir Virgil að líta illa út en hann náði því“
Jurgen Klopp, þjálfari Liverpool, var að vonum ánægður með sigur síns liðs gegn Arsenal í FA-bikarnum í dag.

Jesus að glíma við meiðsli á hné
Það var enginn Gabriel Jesus í leikmannahópi Arsenal gegn Liverpool í dag en hann er að glíma við meiðsli.

Samherji Alberts nálgast Tottenham
Rúmenski varnarmaður Genoa og samherji Alberts Guðmundssonar, Radu Dragusin, nálgast félagsskipti til Tottenham.

Úrvalsdeildarliðin í stökustu vandræðum
Sjö leikjum var að ljúka í ensku bikarkeppninni rétt í þessu og nokkur óvænt úrslit litu dagsins ljós. Úrvalsdeildarliðin West Ham, Nottingham Forest og Luton Town lentu í vandræðum, leikjum þeirra lauk með jafntefli og verða endurspilaðir.

Liverpool áfram eftir sigur á Emirates
Liverpool komst áfram í FA-bikarnum í dag eftir sigur á Arsenal á Emirates vellinum.

De Bruyne sneri aftur í fimm marka sigri
Ríkjandi bikarmeistarar Manchester City fóru létt með Huddersfield í 3. umferð ensku bikarkeppninnar í fótbolta. Kevin De Bruyne sneri aftur á völlinn eftir langa fjarveru og lagði síðasta mark leiksins upp í 5-0 sigri.

Hvaða leikmanna mun þitt lið sakna?
Enska úrvalsdeildin hefur tekið saman lista yfir alla leikmenn sem verða fjarverandi næstu misserin vegna Asíu- og Afríkumótanna.

Ivan Toney undirbýr endurkomu: Skoraði þrennu í æfingaleik með B-liðinu
Ivan Toney nálgast endurkomu í ensku úrvalsdeildina eftir átta mánaða langt bann. Hann undirbýr sig þessa dagana með B-liði Brentford og skoraði þrennu í gær.

Elokobi vill snúa aftur heim og mæta Wolves
George Elokobi stýrði Maidstone til sigurs gegn Stevenage í 3. umferð FA bikarsins. Maidstone spilar í sjöttu efstu deild og sigurinn því nokkuð óvæntur en Stevenage leikur í League One, þriðju efstu deild England.

Ungur leikmaður Blackburn látinn spila í öðruvísi treyju
Rory Finneran skráði sig í sögubækurnar í gær sem næst yngsti leikmaður til þess að spila keppnisleik fyrir Blackburn Rovers í 5-2 sigri gegn Cambridge United í FA bikarnum.

Arteta: Það á að breyta þessu
Mikel Arteta, þjálfari Arsenal, vill að reglunum verði breytt varðandi leiki í FA-bikarnum.

„Hann verður að halda áfram að brosa og vera jákvæður“
Mauricio Pochettino, þjálfari Chelsea, var að vonum ánægður með sigur síns liðs gegn Preston North End í FA-bikarnum í gær.

Nkunku aftur að glíma við meiðsli
Það var enginn Christopher Nkunku í leikmannahópi Chelsea í kvöld er liðið bar sigur úr býtum gegn Preston í FA-bikarnum. Pochettino segir að hann sé að glíma við ný meiðsli.

Henderson er sagður vilja yfirgefa Al-Ettifaq
Jordan Henderson, fyrrum leikmaður og fyrirliði Liverpool, er sagður vilja snúa aftur í ensku úrvalsdeildina en hann gekk til liðs við Al-Ettifaq frá Liverpool síðasta sumar.

Tottenham að fá Werner á láni
Timo Werner, leikmaður RB Leipzig og fyrrum leikmaður Chelsea, virðist vera á leið til Tottenham á láni.

Arnór skoraði og lagði upp í bikarnum
Tíu leikjum var að ljúka í FA-bikarnum á Englandi en þar ber helst að nefna viðureign Blackburn og Cambridge þar sem Arnór Sigurðsson var í byrjunarliði Blackburn og kom heldur betur við sögu.

Chelsea fór létt með Preston | Matty Cash hetja Villa
Chelsea komst áfram í FA-bikarnum í kvöld með sigri á Preston North End á Stamford Bridge.

Newcastle bar sigur úr býtum í norðanslagnum
Þriðja umferð elstu bikarkeppni heims, FA bikarsins á Englandi, hélt áfram í dag. Alls fóru fimm leikir fram í hádeginu en hæst bar af 3-0 sigri Newcastle á útivelli gegn Sunderland. Óvænt úrslit litu svo dagsins ljós þegar 6. deildar liðið Maidstone lagði League One (3. deildar) liðið Stevenage af velli.

Ósmekkleg ummæli Joey Barton vekja hörð viðbrögð
Joey Barton hefur ekki setið auðum höndum síðan honum var sagt upp störfum sem knattspyrnustjóri hjá Bristol Rovers í haust en eins og margir auðnuleysingjar virðist hann helst verja tíma sínum á samfélagsmiðlum í misgáfulegum tilgangi.

Tottenham áfram í bikarnum
Tottenham er komið áfram í enska bikarnum eftir 1-0 sigur á Burnley. Sigurinn var töluvert öruggari en lokatölurnar gefa til kynna en Burnley-menn voru aldrei líklegir til stórræða í leiknum.

Fulham marði Rotherham í einstefnuleik
Fulham varð í kvöld fyrsta liðið til að tryggja sig áfram í 4. umferð ensku bikarkeppninnar þegar liðið lagði B-deildarlið Rotherham 1-0 á heimavelli.

Ten Hag segir fyrstu viðræðurnar við Ratcliffe hafi verið mjög jákvæðar
Það var gott hljóð í Erik ten Hag, knattspyrnustjóra Manchester United, þegar hann var spurður út í fund sinn með Sir Jim Ratcliffe og INEOS fólkinu hans.

Segir þurfa „ótrúlegt tilboð“ til að Toney fái að fara
Thomas Frank, knattspyrnustjóri enska úrvalsdeildarfélagsins Brentford, segir að það þurfi að berast ótrúlegt tilboð í eftirsótta framherjann Ivan Toney til að hann fái að yfirgefa félagið í janúar.