
Eurovision: Svona dansa þau á sviðinu - myndband
Bakraddasöngvararnir Erna Hrönn, Pétur Örn Guðmundsson og Heiða Ólafs, voru hress þegar þau sýndu okkur danssporin sem þau stíga í Telenor-höllinni í úrslitakeppni Eurovision á laugardagskvöldið.
Fréttir af framlagi Íslendinga og annarra þjóða í Söngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðva.
Bakraddasöngvararnir Erna Hrönn, Pétur Örn Guðmundsson og Heiða Ólafs, voru hress þegar þau sýndu okkur danssporin sem þau stíga í Telenor-höllinni í úrslitakeppni Eurovision á laugardagskvöldið.
„Ég er bara að heimsækja Heru og peppa hana aðeins upp fyrir laugardag," segir Eiríkur Hauksson söngvari sem flutti lagið Valentine lost árið 2007 fyrir Íslands hönd en komst ekki upp úr undankeppninni. „Sko lagið er ekki alveg í mínum stíl sko en ég held mikið upp á Heru og lagið er vel samið."
Við settum inn þetta stutta myndskeið sem tekið var af Heru Björk og umboðsmanni hennar, Valla Sport, í gærdag. Þar má sjá Heru ganga á milli fjölmiðlamanna sem fengu aðeins 10 mínútur með henni. Þrátt fyrir þéttskipaða dagskrá náði hún að vera með dóttur sinni og foreldrum í 2 klukkustundir í gær.
Við hittum Elínu Reynisdóttur stjörnusminku og Birnu Björnsdóttur sem gegna mikilvægu hlutverki í Osló.
Hera Björk sparar ekki stóru orðin en hún hefur dásamlega tilfinningu fyrir úrslitakvöldinu á morgun og fulla trú á laginu sínu.
Í viðtalinu sem tekið var við Heru í dag sendir hún Íslendingum hlýjar kveðjur og líka syni sínum sem er staddur á Íslandi, Viðari Kára, sem verður 7 ára gamall á þessu ári.
Tilfinningarnar eru blendnar. Þetta segir Páll Magnússon útvarpsstjóri um þá velgengni sem íslenska lagið í Eurovisjón á að fagna í Evrópu. Hann bendir á að Norðmenn hafa varið meira fé til keppninnar en því sem RÚV veltir á ári. Ef Íslands sigraði í keppninni þyrfti að leita samstarfs við önnur lönd.
„Ég hef verið að gefa eiginhandaráritanir og svona. Mjög skemmtilegt," segir Emilía Tómasdóttir hárgreiðslukona Heru Bjarkar í Osló.
Á meðan Hera Björk stendur í ströngu við að kynna land og þjóð við fjölmiðlafólk í Osló í Noregi barst henni hlý kveðja frá leikskólanum Foldakoti í Grafarvogi.
Páll Óskar lofaði að Íslendingar myndu upplifa sama spenning og þegar Selma Björns barðist um fyrsta sætið árið 1999 í viðtali á Bylgjunni í dag.
Við mynduðum Heru Björk nánast úr launsátri í dag þegar hún veitti erlendum fjölmiðlum óteljandi viðtöl á hótelinu í Osló þar sem íslenski Eurovisionhópurinn dvelur á. Fjölmiðlarnir spyrja Heru að ólíklegustu hlutum eins og um heilsu hennar, ástandið á Íslandi, hvaða lönd eru líkleg til að sigra Eurovision, fjölskylduna og eldgosið svo eitthvað sé nefnt.
Karlmennirnir í íslenska hópnum þurftu að standa í kringum Heru eins og lífverðir á skemmtistaðnum Euroclub í gærkvöldi.
Valgeiri Magnússyni umboðsmanni hefur með ótrúlegum hætti tekist að búa til spennandi stemningu í kringum Heru.
Hera Björk bræddi utanríkisráðherra Noregs, Jonas Gahr Störe, með nærveru sinni. Hann vildi ólmur hitta hana í gær.
Við sýnum þennan stutta myndbút sem var tekinn af Heru Björk og Jónatan þegar þau mættu á fjölmiðlafundinn sem haldinn var í Telenor höllinni eftir fyrri undanúrslitakeppni Eurovision sem fram fór í fyrradag.
Við fylgdumst með Heru Björk í hádeginu í dag þegar hún tók á móti fjölmiðlum á hótelinu í Osló þar sem hún dvelur ásamt fylgdarliði.
Við hittum Jónatan Garðarsson sem heldur utan um íslenska Eurovisionhópinn í Osló í hádeginu í dag. „Það sem ég geri er að skipuleggja þetta frá a-ö. Núna eru margir í hópnum sem hafa gert þetta áður og vita hvaða kröfur ég geri," segir Jónatan. Sjá viðtalið í meðfylgjandi myndskeiði.
Annað kvöld verður tveimur keppendum sem Bretum þykir að hafi slegið í gegn í gærkvöldi boðið að vera í beinni útsendingu á BBC þegar seinni riðillinn er sýndur þar annað kvöld. Hera Björk er annar af keppendunum en ekki hefur fengist uppgefið hver hinn keppandinn er. Fólk er að velta fyrir sér hvort það sé Grikkinn eða Belginn. Breski Eurovisionklúbburinn hefur spáð Heru Björk sigri í ár.
Langflestir norrænir fjölmiðlar slá því upp að Hera Björk hafi komist áfram í umfjöllun sinni um undankeppni Eurovision í gærkvöldi.
„Ég verð fyrsti Íslendingurinn til að sigra Eurovisionkeppnina,“ segir Hera Björk meðal annars í myndskeiðinu.
Hér má sjá þegar Jónatan Garðarsson dregur töluna 16 á blaðamannafundi í gærkvöldi. Þetta þýðir að Ísland verður númer 16 á sviðið af 25 löndum.
Við spjölluðum við söngvarann og lagahöfundinn Giorgos Alkaios, fulltrúa Grikklands í Eurovisionkeppninni, eftir lokaæfinguna í gærdag. Við spurðum gríska goðið út í atriðið hans og hvernig honum líst á íslenska hópinn. Grikkinn komst upp úr fyrri undanúrslitakeppninni með lagið OPA sem fram fór í Telenor höllinni í Osló í gærkvöldi.
Hera Björk grét eins og fegurðardrottningarnar þegar úrslitin voru kynnt í gærkvöldi.
Örlygur Smári lagahöfundur framlags Íslands í Eurovision og Kristjana Stefánsdóttir söngkona veittu okkur viðtal eftir æfinguna fyrir utan Telenor höllina í gærdag.
Hera, sem var í sigurvímu eins og allir í íslenska Eurovisionhópnum, var ekki lengi að svara á léttu nótunum aðspurð hvort hún persónulega stoppaði eldgosið á Íslandi.
Búist er við miklu álagi á íslenska símkerfið í kvöld enda eru Íslendingar jafnan manna duglegastir að taka þátt í kosningunni í Eurovision.
Hera Björk og Örlygur Smári höfundar lagsins Je Ne Sais Quoi eru ánægð með síðustu æfinguna sem fram fór í Telenor höllinni í Osló dag. Í kvöld flytur Hera ásamt söngvurum lagið í beinni útsendingu í fyrra undanúrslitakvöldi Evrópusöngvakeppninnar sem hefst klukkan 19:00 í kvöld. Sautján lög verða flutt og komast tíu lög áfram í úrslitakeppnina á laugardag. Skoða má Heru Björk og hennar fólk í myndasafninu en þau verða síðust á svið í kvöld.
Sigmar Guðmundsson sjónvarpsmaður trúir því eins og íslenska þjóðin að Hera Björk og hennar föruneyti komist áfram í aðalkeppnina sem er á laugardaginn næsta.
Við kíktum í morgun á hótelið þar sem íslenski hópurinn dvelur. Þar hittum við Emilíönu Tómasdóttur hárgreiðslukonu, Kristjönu Stefánsdóttur söngkonu, Elínu Reynisdóttur förðunarfræðing og Birnu Gyðu Björnsdóttur danshöfund.
Örlygur Smári segist ekki vera kominn til Noregs til að baða sig í athygli. Hann er ánægður með að fókusinn sé á Heru.