

Ferðamennska á Íslandi
Fréttir af ýmsum málum tengdum ferðamennsku á Íslandi.

Langþreyttur á biðinni og sagði löggunni að sekta sig
Sigtryggur A. Magnússon stöðvarstjóri segir sótt að leigubílsstjórum úr öllum áttum.

Þoturnar voru 36 í fyrra, núna duga 2-3 til að flytja farþegana
Icelandair er að taka sextán Boeing 757 þotur úr notkun um þessar mundir. Níu þeirra fara til geymslu í bandarískri eyðimörk en hinar verða seldar eða rifnar í varahluti, meðal annars í Keflavík.

Icelandair kallar eftir fyrirsjánleika vegna næsta árs
Forstjóri Icelandair segir erfitt fyrir ferðaþjónustuna almennt að hafa ekki fyrirsjáanleika varðandi fyrirkomulag á landamærum vegna sölu ferða til Íslands á næsta ári. Forsætisráðherra segir margar leiðir til skoðunar.

Ísland með sterk skilaboð
Í dag fer ferðakaupstefnan Vestnorden fram með rafrænum hætti í fyrsta skipti í 34 ára sögu þessa mikilvæga viðburðar þar sem ferðaþjónustufyrirtækjum gefst kostur á að mynda ný viðskiptasambönd og viðhalda þeim sem fyrir eru.

Auglýsingastofa höfðar mál vegna öskurherferðarinnar
Íslensk auglýsingastofa er nú með lögsókn í undirbúningi vegna keppni og aðdraganda kynningarherferðarinnar „Ísland saman í sókn“ sem ráðist var í eftir að heimsfaraldur kórónuveirunnar skall á.

Forsendur fjárlaga um verðmætasköpun samfélagsins standa og falla með fyrirsjáanleika í sóttvörnum
Hvert er samhengi fjárlaga og sóttvarnaraðgerða á landamærum?

Magnaðar myndir frá sögulegu sumri á Íslandi
Sumarið 2020. Sumarið sem Íslendingar upp til hópa nýttu til að kynnast landinu sínu betur útaf svolitlu.

Dómur staðfestur yfir rútubílstjóra fyrir manndráp af gáleysi
Landsréttur hefur staðfest sex mánaða skilorðsbundinn dóm yfir rútubílstjóra sem ók rútu aftan á fólksbíl með þeim afleiðingum að tveir ferðamenn létust.

66 manns sagt upp hjá Hertz
Öllu starfsfólki bílaleigunnar Hertz á Íslandi var sagt upp fyrir helgi. Var alls um 66 manns að ræða.

Fækkun ferðamanna heldur aftur af hækkun í leiguverði
Verulega hefur hægt á þróun leiguverðs hér á landi á síðustu mánuðum. Því má þakka færri ferðamönnum og fleiri íbúðum til útleigu innanlands.

Ekki aðeins ferðaþjónustukreppa
Við undirritun Lífskjarasamnings í apríl 2019 var hagvaxtar að vænta á komandi árum og allt benti til þess að atvinnulífið gæti staðið undir þeim launahækkunum sem um var samið. Nú blasir við breyttur veruleiki.

Kórónuðu ömurlega umgengni með falleinkunn
Guðrún Valdís Þórisdóttir, sem leigir út íbúðir til ferðamanna á Selfossi, segist aldrei hafa lent í öðru eins og þegar hún opnaði dyrnar að einni íbúðinni í gær.

Fjórir erlendir ferðamenn handteknir, grunaðir um brot á sóttkví
Erlendur ferðamaður sem var handtekinn í miðborg Reykjavíkur í gærkvöldi er grunaður um brot á sóttkví. Maðurinn er sagður hafa verið afar ölvaður og reynt að efna til slagsmála. Þrír aðrir erlendir ferðamenn voru handteknir fyrir að brjóta sóttkví í gærkvöldi.

Segir ósanngjarnt að kenna frönsku ferðamönnunum um þriðju bylgjuna
Kári Stefánsson, forstjóri Íslenskrar erfðagreiningar segir það ekki rétt að tveir franskir ferðamenn, sem greindust með veiruna hér á landi um miðjan ágúst, beri ábyrgð á þriðju bylgju kórónuveirufaraldursins sem nú gengur yfir landið.

Krafa um sóttkví á fæstum áfangastaða Wizz air
Á tíu af ellefu áfangastöðum Wizz Air eru engar hertar aðgerðir á landamærum. Aðeins í Búdapest í Ungverjalandi þurfa farþegar að fara í sóttkví við komu.

Telur allt tal um launahækkanir hlægilegt
„Málamiðlun, þar sem allir leggja sitt af mörkum, er góð málamiðlun.“

Frysting er eina vitið!
Lífskjarasamningarnir sem undirritaðir voru í apríl 2019 eru nú til endurskoðunar. Verkalýðshreyfingin hefur þegar gefið það út, að hún muni fyrir sitt leyti, ekki segja samningnum upp, sem er skiljanleg afstaða þeim megin við borðið í ríkjandi ástandi.

Kreppan að skella á fólki í ferðaþjónustunni af miklum þunga
Jóhannes Þór Skúlason kallar á hjálp fyrir hönd síns fólks.

Hápunktur ársins að smala með íslenskum bændum
Ráðskonurnar í fjárleitunum á Landmannaafrétti eru ákveðnar í því að reglum um sóttvarnir og aðskilnað smalamanna sé fylgt. Erlendir ferðamenn gengust undir sóttkví og tvöfalda skimun til að fá að taka þátt í leitunum, sem þeir segja hápunkt ársins.

Ekki þótti tilefni til að sekta frönsku ferðamennina
Frönsku ferðamennirnir tveir, sem tengdir eru við mörg tilfelli kórónuveirunnar sem greinst hafa hér á landi síðustu daga, brutu ekki einangrun.

Von á stuðningsaðgerðum fyrir menningu og listir á næstu dögum
Ríkistjórnin kynnir stuðningsaðgerðir fyrir menningu og listir á landinu á allra næstu dögum. Samstarf hefur verið við forsvarsfólk úr geiranum um aðgerðirnar. Samtök iðnaðarins og ferðaþjónustunnar kalla einnig eftir aðgerðum af hálfu stjórnvalda.

Krefst þess að sóttvarnayfirvöld tali ekki í gátum
Jóhannes Þór Skúlason spyr hvað það þýði að hugsanlega eigi að loka öllum vínveitingastöðum?

Er ástæða til að kaupa í Icelandair?
Í meira en 20 ár hefur stór hluti af minni vinnu verið að kynna og selja Ísland sem áhugaverðan áfangastað ferðamanna fyrir ferðaheildsölum og ferðaskrifstofum út um allan heim.

Covid-aðgerðir innanlands mildari hér en víða
Sóttvarnaraðgerðir innanlands í kórónuveirufaraldrinum hafa verið í mildari kantinum sé miðað við erlendis.

383 milljarða neysla ferðamanna hér á landi á síðasta ári
Heildarneysla erlendra ferðamanna hér á landi nam 383,4 milljörðum króna á síðasta ári. Svisslendingar voru gjarnastir á það að rífa upp veskið hér á landi á meðan Kínverjar voru eyðslugrannastir sé miðað við hverja gistinótt.

Ríkissjóður hefur greitt átta milljarða í laun starfsmanna á uppsagnarfresti
Ríkissjóður hefur þegar greitt tæpa átta milljarða króna vegna launakostnaðar starfsmanna á uppsagnafresti hjá fyrirtækjum tengd ferðaþjónustu síðustu mánuði.

Icelandair mikilvægt í endurreisn Íslands
Uppgangur í flugi og ferðaþjónustu síðasta áratuginn hefur gjörbylt efnahagslífi landsins, skapað verðmæti og störf, bætt lífskjör og haft góð áhrif á byggðaþróun. Samfara hröðum vexti hafa verðmæti innviða aukist til muna.

„Við reiknum með að nánast allir verði farnir heim um næstu eða þarnæstu mánaðamót“
Að óbreyttu verða níutíu prósent starfsfólks í ferðaþjónustu búin að glata starfi sínu um næstu eða þarnæstu mánaðamót, segir formaður Samtaka ferðaþjónustunnar. Greinin kallar eftir rekstrarstyrkjum.

Bankarnir með líf margra ferðaþjónustufyrirtækja í sínum höndum
Níu af hverjum tíu ferðaþjónustufyrirtækjum leggjast í dvala um næstu og þarnæstu mánaðarmót og fjöldi fólks er á leið á atvinnuleysisbætur að sögn framkvæmdastjóra Eldingar. Greinin tali fyrir því að fá rekstrarstyrki frá ríkissjóði svo hægt sé að viðhalda ráðningarsambandi við starfsfólk.

Úrlausnarefnið er ferðaþjónustan
Formaður Miðflokksins segir óljóst hver markmið aðgerða ríkisstjórnarinnar í annarri bylgju kórónuveirufaraldursins sé. Þá hafi lítið samráð verið haft við ferðaþjónustuna. Forsætisráðherra segir úrlausnarefni nú hvernig hægt sé að styðja við greinina.