

Fótbolti
Allt það helsta sem gerist í fótbolta um víða veröld.

Bankastarfsmaðurinn sem fór úr 3. deild í KR
Eiður Gauti Sæbjörnsson er nafn sem fáir knattspyrnuunnendur könnuðust við áður en hann hóf að leika fyrir HK í Bestu deildinni í sumar. Það er ekki furða enda hefur sá leikið fyrir Ými í 3. og 4. deild allan sinn feril. Nýlega færði Eiður sig um set og er nýjasti leikmaður KR.

„Gaman að heyra hann öskra á bakvið mann“
„Þetta er ótrúleg tilfinning. Maður bjóst einhvern veginn aldrei við þessu. Við bræðurnir saman í uppeldisfélaginu okkar,“ segir markvörðurinn Jökull Andrésson eftir mikinn gleðidag í Mosfellsbæ í gær, þegar nýliðar Aftureldingar í Bestu deildinni kynntu til leiks fjóra leikmenn.

Amorim skoraði hjá Nuno í bikarúrslitaleik
Fyrir fjórtán árum skoraði Ruben Amorim hjá Nuno Espírito Santo í bikarúrslitaleik í Portúgal. Á morgun mætast þeir sem stjórar í leik Manchester United og Nottingham Forest í ensku úrvalsdeildinni.

Atalanta á toppinn
Ademola Lookman skoraði sigurmark Atalanta gegn AC Milan, 2-1, í ítölsku úrvalsdeildinni í kvöld. Með sigrinum komst Atalanta á topp deildarinnar.

Hákon skoraði í sigri Lille
Lille vann 3-1 sigur á Brest í frönsku úrvalsdeildinni í fótbolta í kvöld. Hákon Arnar Haraldsson var á skotskónum í liði heimamanna.

Karólína hafði betur gegn Sveindísi og fór á toppinn
Bayer Leverkusen vann 1-0 sigur á Wolfsburg í þýsku úrvalsdeildinni í fótbolta. Þar hafði Karólína Lea Vilhjálmsdóttir betur gegn Sveindísi Jane Jónsdóttur.

Þungavigtarbikarinn hefst í janúar
Er jólunum lýkur styttist snarlega í Íslandsmótið í fótbolta og upphitun hefst fyrir það strax í janúar.

„Heyrt margar reynslusögur“
„Þegar Afturelding hafði samband þá var ekki aftur snúið,“ segir Oliver Sigurjónsson sem genginn er til liðs við Aftureldingu frá Íslandsmeisturum Breiðabliks. Hann hlakkar mikið til að taka þátt í fyrstu leikjum nýliðanna í Bestu deildinni næsta sumar.

Aðeins 1899 eintök í boði af nýja afmælisbúningi AC Milan
AC Milan heldur upp á 125 ára afmælið sitt í ár og af því tilefni mun liðið spila einn leik í sérstökum afmælisbúningi.

Mourinho svaraði Guardiola: Ég vann mína þrjá titla drengilega
Það borgar sig aldrei að skjóta á portúgalska knattspyrnustjórann Jose Mourinho ef þú vilt ekki fá fast skot til baka. Því fékk Pep Guardiola að kynnast.

Glódís í 41. sæti í heiminum
Glódís Perla Viggósdóttir, landsliðsmiðvörður í fótbolta, hefur bætt rós í hnappagat sitt. Eftir að hafa verið tilnefnd til Gullboltans í haust, fyrst Íslendinga, er hún nú í 41. sæti lista The Guardian yfir bestu fótboltakonur í öllum heiminum.

Rafa Benítez hefur áhuga á því að taka við norska landsliðinu
Rafael Benítez segir það alveg koma til greina að taka við norska karlalandsliðinu í fótbolta. Umræða um Spánverjann sem næsta þjálfara norska liðsins flæðir um norska fjölmiðla þessa dagana.

Bræðurnir saman í Mosó og Íslandsmeistari mættur
Nýliðar Aftureldingar eru staðráðnir í að láta til sín taka á sinni fyrstu leiktíð í Bestu deild karla í fótbolta. Félagið kynnti í dag fjóra leikmenn til leiks sem taka munu slaginn með liðinu, og í þeim hópi eru afar öflugir bræður og Íslandsmeistari.

Ísland með eitt yngsta liðið í Evrópu
Meðalaldur leikmanna íslenska karlalandsliðsins í fótbolta á þessu ári var einn sá lægsti hjá landsliðunum 54 í Evrópu.

„Held að þetta sé ekki algengt á Íslandi“
Íslandstenging er danska úrvalsdeildarfélaginu Lyngby mikilvæg. Þess vegna hefur félagið ráðið njósnara hér á landi, Vigfús Arnar Jósefsson. Hann mun benda þeim á og fylgjast með efnilegum og góðum leikmönnum á Íslandi.

United fjölskyldan syrgir Kath Phipps en hún þjónaði félaginu í 55 ár
Manchester United greindi frá fráfalli Kath Phipps á miðlum sínum í gær en hennar verður sárt saknað hjá þeim sem þekktu hana sem voru flestir sem hafa komið við sögu hjá félaginu undanfarna fimm áratugi.

Fór að rífast við áhorfendur eftir leik
Ange Postecoglou, knattspyrnustjóri Tottenham, fór að skipta sér að áhorfendum eftir sáran tapleik á móti Bournemouth í ensku úrvalsdeildinni í gærkvöldi.

Þriðji stóri heimasigur Bournemouth á tímabilinu
Bournemouth lyfti sér upp fyrir Tottenham og í 9. sæti ensku úrvalsdeildarinnar með sigri í leik liðanna í kvöld. Lokatölur á Vitality leikvanginum, 1-0.

Fulham upp í sjötta sætið
Alex Iwobi skoraði tvö mörk þegar Fulham sigraði Brighton, 3-1, í ensku úrvalsdeildinni í kvöld.

Fær Úlfaleikinn til bjarga starfinu
West Ham United ætlar ekki að reka Julen Lopetegui fyrir leikinn gegn Wolves í ensku úrvalsdeildinni.

Framkvæmdastjóraskipti hjá Val
Jóhanna Gunnlaugsdóttir hefur verið ráðin framkvæmdastjóri Vals. Hún tekur við starfinu af Styrmi Þór Bragasyni um áramótin.

Arnór hættur með Sögu
Arnór Sigurðsson, leikmaður Blackburn í Englandi og íslenska landsliðsins, er einhleypur. Nýlega slitnaði upp úr sambandi hans og sænsku kærustunnar Sögu Palffy.

Hver snjóbolti kostaði fimmtíu þúsund
Stuðningsmenn dönsku knattspyrnuliðanna AGF og Nordsjælland köstuðu snjóboltum inn á völlinn í leik liðanna í nóvember, og það hefur nú leitt til þess að hvort félag þarf að greiða 5.000 danskar krónur í sekt.

Verið meiddur í fjögur og hálft ár
Hinn 29 ára gamli Luke Shaw, varnarmaður Manchester United, er algjörlega miður sín eftir að hafa í enn eitt skiptið á sínum ferli meiðst.

Ronaldo skaut til baka: „Hver er þessi náungi?“
Cristiano Ronaldo sá ástæðu til að senda stutt skilaboð eftir gagnrýnina frá fyrrverandi liðsfélaga sínum, Hollendingnum Rafael van der Vaart.

Spilaði tímamótaleik en endaði í óvinsælum hóp með Carra og Faes
Craig Dawson lék í gær sinn þrjú hundraðasta leik í ensku úrvalsdeildinni en kvöldið endaði ekki vel fyrir reynsluboltann.

Nicolas Jover er nýja hetjan hjá Arsenal
Arsenal vann 2-0 sigur á Manchester United í ensku úrvalsdeildinni í gærkvöldi en bæði mörkin i leiknum komu eftir hornspyrnur.

Fyrsta skóflustunga tekin og KR spilar á gervigrasi
Í dag verður fyrsta skóflustunga tekin á Meistaravöllum, heimavelli KR-inga, þar sem leggja á gervigras í stað grasvallarins sem þetta stórveldi í íslenskum fótbolta hefur spilað heimaleiki sína á.

Ten Hag gæti orðið samstarfsmaður Klopp
Þýska félagið RB Leipzig er sagt vera íhuga það að skipta um þjálfara hjá sér og að stjórnarmenn félagsins horfi í staðinn til fyrrum knattspyrnustjóra Manchester United.

Liðsfélagi Alberts laus af gjörgæslu
Edoardo Bove, miðjumaður Fiorentina, er á réttri leið eftir að hafa hnigið niður í leik ítalska liðsins um síðustu helgi.