

Fréttir af flugi
Allt það helsta sem viðkemur flugi.

Seinkun á heimkomu Íslendinga eftir ofsaakstur sem lauk á flugbraut
Fjölmörgum flugferðum, þeirra á meðal flugi WOW Air frá Lyon til Íslands, þurfti að fresta í dag eftir að lögregla handtók mann sem hafði ekið í leyfisleysi inn á flugbrautina.

Icelandair óstundvísast á styttri leiðum í Bretlandi
Stundvísi flugferða Icelandair frá Bretlandseyjum hefur versnað hratt á síðastliðnu ári, ef marka má úttekt bresku neytendasamtakana.

Starfsmenn WOW beðnir um að eyða myndum af "hryllilegri“ árás í starfsmannagleði
Starfsmaður var barinn í höfuðið með diski og var mikið blóð á vettvangi að sögn sjónarvotta.

Herþotur bannaðar á flugsýningu vegna samnings um engin hernaðarumsvif
Borgarstjóri var afdráttarlaus í fyrra þegar kanadísk herþota sýndi listir sínar.

Skúli segir útboð Wow á lokametrunum
Skúli Mogensen, stofnandi og forstjóri Wow Air, áætlar að skuldabréfaútboði flugfélagsins ljúki öðru hvoru megin við helgina.

Segist hafa fengið rangar upplýsingar
Njáll Trausti Friðbertsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, gagnrýnir að hafa fengið rangar upplýsingar í samgönguráðuneytinu um uppsetningu ILS-lendingarbúnaðar við Akureyrarflugvöll.

Erlent ráðgjafafyrirtæki kemur að ráðningu nýs forstjóra hjá Icelandair
Þetta kemur fram í tilkynningu frá Icelandair Group.

Farþegar flugvélar frá Dubai í einangrun í New York
Fregnum fer ekki saman um hve margir eru veikir en Emirates segir þá vera um tíu.

Ókláraðar þotur hrannast upp hjá Boeing
Bandaríski flugvélaframleiðandinn Boeing skortir nú pláss í grennd við verksmiðju fyrirtækisins í Washington-ríki Bandaríkjanna.

Spá 3,3 milljarða króna tapi WOW air á árinu
Sérfræðingar Pareto segja flugfélagið þurfa nauðsynlega að bæta rekstrarafkomuna. Stjórnendur WOW air hyggjast birta fjárhagsupplýsingar eftir hvern ársfjórðung.

Eftir miklu að slægjast í vösum asískra ferðamanna
Flestir auðjöfrar heimsins koma nú frá ríkjum Austur-Asíu

Blaðamaður Business Insider hraunar yfir „nýjasta lággjaldaflugfélag Íslands“
Blaðamaður Business Insider er afar óvæginn í garð flugfélagsins Primera Air í upplifunarpistli sem birtur var á vef miðilsins í gær.

Á móti vindi
Það er eitthvað mikið að hjá Icelandair.

Skúli tryggt sér milljarða króna
Fjárfestar fá kauprétt að hlutafé í WOW air á 20 prósenta afslætti þegar félagið fer á markað. Nokkrir erlendir fjárfestar hafa skráð sig fyrir stórum hluta skuldabréfaútboðsins. Vextir á bréfunum í kringum 9 prósent.

Icelandair bregst við hækkandi olíuverði
Icelandair hefur tilkynnt umboðs- og söluaðilum sem eru í samstarfi við félagið að félagið hyggist hækka eldsneytisálag á flugmiðum félagsins frá og með 1. september næstkomandi.

Ferðamenn gista í svefnpokum og hengja föt til þerris í Leifsstöð
Farþega, sem átti leið í gegnum Flugstöð Leifs Eiríkssonar á miðnætti í gær, blöskrar sá mikli fjöldi ferðamanna sem lagst hafði til svefns í flugstöðinni.

Icelandair flytur störf til útlanda
Áhafnir verða þá áfram íslenskar.

Gæslan neitar að sýna spilin í þyrlumáli
Eftir fjögurra vikna yfirlegu hafnar Landhelgisgæslan því að afhenda afrit af samskiptum við Airbus. Gæslan fullyrti að samkvæmt Airbus ætti þyrluslys í Suður-Kóreu sér aðrar orsakir en galla í gírkassa, eins og þeim sem eru í þyrlum sem eru á leið til landsins frá Noregi

Óþarfa afskipti
Það varð okkur til happs að íslenska ríkið gekkst ekki í ábyrgð fyrir bankana þegar þeir hrundu fyrir hartnær tíu árum.

Segir að rekja megi vanda Icelandair til þess að stóru flugfélögin séu hætt að hunsa félagið
Vandi Icelandair er fólgin í því að offramboð er á flugsætum á flugleiðum félagsins að mati sérfræðings. Segir hann einnig að stóru flugfélögin sem fljúgi milli Evrópu og Bandaríkjanna séu hætt að hunsa Icelandair.

Dýr olía þyngir róður evrópskra félaga
Afkoma evrópskra flugfélaga fer versnandi vegna hækkunar á olíuverði og launum. Greinandi segir mörg flugfélög þurfa nauðsynlega á því að halda að flugfargjöld hækki. Fjárfestar og stjórnendur flugfélaga telja sameiningar á evrópskum flugmarkaði óumflýjanlegar.

„Ekki ólíklegt“ að lánaskilmálar brotni
Forstjóri Icelandair Group segir að félagið sé fjárhagslega sterkt og geti auðveldlega unnið úr stöðunni komi hún upp. Stjórn Icelandair Group mun ræða hver ábyrgð hennar sé en félagið hefur birt þrjár afkomuviðvaranir í ár. Forst

WOW áformar útgáfu breytanlegra bréfa
Útgáfa breytanlegra skuldabréfa myndi gefa fjárfestum færi á að breyta bréfunum síðar í hlutafé. Pantanabókin opnuð í dag og gert ráð fyrir að útboðið muni klárast á næstu dögum.

Þung skref að stíga til hliðar
Fráfarandi forstjóri Icelandair hefur fulla trú á félaginu til lengri tíma litið. Hann segir eðlilegt að í flugrekstri séu uppsveiflur og niðursveiflur.

Leysigeisla beint að flugvél í aðflugi að Keflavík
Þetta kemur fram í tilkynningu frá lögreglunni á Suðurnesjum.

Stjórnarformaður Icelandair: „Rykið þarf að setjast“
Stjórnarformaður Icelandair Group segir allan kraft og fókus vera á að styrkja flugreksturinn og að félagið sé vel í stakk búið til þess að takast á við áföll sem dunið hafa yfir að undanförnu.

Íslenskir flugrekendur juku koltvísýringslosun um rúm 13%
Tölurnar ná ekki til Ameríkuflugs íslenskra félaga og ekki heldur til losunar vegna ferða erlendra félaga til og frá Íslandi.

Hlutabréf í Icelandair fallið um 20 prósent
Hlutabréf í Icelandair hafa fallið skarpt það sem af er morgni.

Segja flugfélög lengja ferðir til að kaupa sér svigrúm
Flugferðir taka lengri tíma en þær gerðu fyrir áratug, þrátt fyrir stórstígar tækniframfarir í flugiðnaðinum

Wow Air segir óljósri upplýsingagjöf Icelandair um að kenna
Upplýsingafulltrúi WOW Air hafnar því að rangar upplýsingar um Icelandair komi fram í viðbótarskjölum við útboðskynningu WOW í gær. Hún kennir óljósri upplýsingagjöf Icelandair um rangan samanburð á einingakostnaði félaganna.