Fannst látin í lendingarbúnaði flugvélar Starfsmenn Lufthansa fundu lík í lendingarbúnaðsrými flugvélar flugfélagsins eftir lendingu í Frankfurt. Flugvélin hafði verið að fljúga frá Teheran, höfuðborg Íran. Erlent 27. október 2022 21:14
„Afglöpum“ Eflingarstarfsmanna um að kenna að mál Ólafar Helgu tapaðist Fyrrverandi stjórnandi og starfsmaður Eflingar gerðu afglöp þegar þeir létu ekki endurnýja trúnaðarmannskosningu Ólafar Helgu Adolfsdóttur hjá Icelandair, að mati Sólveigar Önnu Jónsdóttur, formanns Eflingar. Félagsdómur dæmdi Icelandair í vil þar sem hann taldi að Ólöf Helga hefði ekki lengur notið verndar sem trúnaðarmaður. Innlent 27. október 2022 07:00
Sagðist vera klæddur sprengjuvesti við Keflavíkurflugvöll Aðgerðaáætlun lögreglu og Keflavíkurflugvallar var virkjuð síðdegis í dag vegna sprengjuhótunar sem birtist á Twitter. Hótunin reyndist tilhæfulaus. Innlent 26. október 2022 18:06
Happdrætti fyrir þá sem lenda í miðjusætinu Farþegar ástralska flugfélagsins Virgin Australia sem lenda í því að þurfa að sitja í miðjusætinu í flugferðum félagsins verða skráðir í happdrætti. Þyrlu-pöbbarölt og fríar flugferðir eru meðal vinninga. Erlent 25. október 2022 22:41
Icelandair mátti reka Ólöfu Helgu Félagsdómur telur að Ólöf Helga Adolfsdóttir hafi ekki notið sérstakrar verndar sem trúnaðarmaður þegar Icelandair sagði henni upp störfum í fyrra. Ólöf Helga bauð sig fram til forseta Alþýðusambands Íslands og hefur verið í miðpunkti hatrammra deilna innan Eflingar. Innlent 25. október 2022 16:39
Tæplega tvö hundruð sluppu ómeidd úr flugslysi Tæplega tvö hundruð sluppu ómeidd eftir að flugvél sem þau voru um borð í brotlenti á flugvelli á Filippseyjum. Flugstjórarnir höfðu gert tvær tilraunir til að lenda vélinni áður en það loks tókst en þá lenti vélin út af flugbrautinni og skemmdist. Erlent 24. október 2022 09:52
Tvö lík fundist eftir flugslysið undan strönd Kosta Ríka Fimm þýskir ríkisborgarar og svissneskur flugmaður eru talin af eftir að flugvél fórst í Karíbahafi, undan strönd Kosta Ríka, á föstudaginn. Þýski auðjöfurinn Rainer Schaller, stofnandi líkamsræktarstöðvanna McFit, var um borð í vélinni. Erlent 24. október 2022 08:40
Aftur hrapaði rússnesk herþota á íbúðarhús Rússnesk herþota hrapaði til jarðar á íbúarhús í Irkutsk í Síberíu í nótt. Tveir flugmenn vélarinnar létust. Myndbönd sem birt hafa verið á samfélagsmiðlum sýna herþotuna hrapa til jarðar. Erlent 23. október 2022 13:36
Meint íslenskt óveður reynst dýrkeypt fyrir Vueling Spænska flugfélagið Vueling hefur þurft að greiða um sjötíu farþegum flugfélagsins samtals rúmlega fimm milljónir króna í skaðabætur vegna flugferða á vegum félagsins sem var ýmist seinkað eða aflýst vegna veðurs hér á landi. Í öllum tilvikum var það metið svo að veðrið hafi ekki átt að hafa áhrif á ferðir félagsins. Viðskipti innlent 23. október 2022 10:00
Úkraínskur auðjöfur grunaður um landráð Úkraínska öryggislögreglan hefur handtekið Vyacheslav Boguslaev, einn ríkasta auðjöfur Úkraínu og fyrrverandi eiganda umsvifamikillar hreyflaverksmiðju. Hann er grunaður um landráð. Erlent 23. október 2022 08:15
Þýskur líkamsræktarfrömuður um borð í vélinni sem hvarf Þýski líkamsræktarfrömuðurinn Rainer Schaller er talinn hafa verið um borð í flugvélinni sem hvarf í gærkvöldi. Förinni var heitið frá Mexíkó til Kosta ríka. Yfirvöld telja sig hafa fundið flak vélarinnar í Karíbahafi en hættu við leit í gær vegna slæms veðurs. Erlent 22. október 2022 16:38
Alicante-farar fá engar bætur eftir að Play flaug með leiguflugvél í stað Airbus Fjórir viðskiptavinir Play fá engar skaðabætur úr hendi flugfélagsins eftir að það neyddist til að notast við leiguflugvél í áætlunarflugi til Alicante á Spáni í júní síðastliðnum. Hópurinn kvartaði þar sem hann taldi að um niðurfærslu í flugi væri að ræða og að þau hafi borgað fyrir að fljúga með Airbus-vél flugfélagsins. Neytendur 21. október 2022 10:49
Farþegatekjur Icelandair 54 milljarðar og aldrei verið meiri á einum fjórðungi Icelandair skilaði rekstrarhagnaði (EBIT) upp á 92,7 milljónir Bandaríkjadala, jafnvirði 12,3 milljarða króna, á þriðja ársfjórðungi og jókst hann um 11,2 milljarða frá sama tímabili í fyrra. Forstjóri flugfélagsins segir að með því að skila svo góðu uppgjöri á þessum tímapunkti á grundvelli sterkrar tekjumyndunar sýni „augljóslega að viðskiptalíkan félagsins sé að sanna gildi sitt.“ Innherji 20. október 2022 16:21
Telja fjölda ferðamanna ná nýjum hæðum á næstu árum Fjöldi erlendra ferðamanna sem heimsækir Ísland gæti sett nýtt met innan tveggja ára og náð tæpum þremur milljónum árið 2025. Raunhæft er talið að fjöldinn gæti náð þremur og hálfri milljón fyrir lok áratugsins. Viðskipti innlent 20. október 2022 15:39
Var stöðvaður með kíló af kókaíni í farangrinum Héraðsdómur Reykjaness hefur dæmt austurrískan karlmann í fimmtán mánaða fangelsi fyrir að hafa staðið að innflutningi á tæpu kílói af kókaíni til landsins með flugi frá Amsterdam. Innlent 20. október 2022 14:09
Þyngri dómar í mútumáli vegna bílastæðamiða Hæstiréttur hefur sakfellt fyrrverandi þjónustustjóra hjá Isavia og framkvæmdastjóra tæknifyrirtækis fyrir hlutdeild í umboðssvikum og mútubrot í tengslum við bílastæðamiðakaup til notkunar á bílastæðum Isavia. Þjónustustjórinn var einnig sakfelldur fyrir peningaþvætti. Dómar yfir mönnunum tveimur voru þyngdir um þrjá mánuði. Viðskipti innlent 19. október 2022 15:55
Munu fljúga til Aþenu næsta sumar Flugfélagið Play hefur hafið miðasölu á áætlunarferðum til grísku höfuðborgarinnar Aþenu. Áætlað er að fyrsta ferðin verði farin 2. júní 2023 en flogið verður tvisvar í viku, á mánudögum og föstudögum, út október 2023. Viðskipti innlent 19. október 2022 09:06
Segir alla elska Akureyrarflugvöll Umsvif flugvallarins á Akureyri eru alltaf að aukast og aukast enda mikið um farþegaþotur, sem koma með farþega á völlinn eða fljúga út með farþega í millilandaflugi . Þá er verið að stækka flugstöðina. „Það elska allir flugvöllinn á Akureyri,“ segir flugvallarstjórinn. Innlent 17. október 2022 20:31
Orrustuþota brotlenti á fjölbýlishúsi í Rússlandi Rússnesk orrustuþota brotlenti á fjölbýlishúsi í borginni Yeysk í suðurhluta Rússlands í dag. Minnst tveir eru látnir en mikill eldur kviknaði í húsinu við brotlendinguna. Erlent 17. október 2022 18:07
Daginn sem Icelandair skaut sig í fótinn Á þessum degi í október fyrir 20 árum kynnti Icelandair „Netsmellur“ til sögunnar, helmingi lægri fargjöld en áður höfðu þekkst hjá félaginu. Þessi fargjöld stóðu engan veginn undir kostnaði Icelandair af flugferðunum. Enda var tilgangur þeirra ekki sá, heldur að fórna tekjum með stórfelldum undirboðum til að drepa fyrirhugaða samkeppni frá Iceland Express. Skoðun 17. október 2022 08:01
Margrét Friðriks krefst 29 milljóna vegna brottvísunarinnar Margrét Friðriksdóttir, ritstjóri vefsins Frettin.is, krefst rúmlega 29 milljóna króna vegna brottvísunar úr flugvél Icelandair í septembermánuði. Hún krefst meðal annars bóta vegna aukins launakostnaðar í 7 daga, samtals 150 þúsund krónur á dag. Innlent 16. október 2022 12:03
250 manna flugslysaæfing á Akureyri Fjölmargir tóku þátt í flugslysaæfingu Almannavarna og Isavia á Akureyrarflugvelli í gær. Líkt var eftir því að farþegaflugvél hafi bilað og rekist á aðra vél á flugbrautinni. Innlent 16. október 2022 10:24
Jómfrúin opnar á Keflavíkurflugvelli Veitingastaðurinn Jómfrúin og bistro-staður undir nafninu Elda munu opna í Keflavíkurflugvelli í febrúar næstkomandi. Snorri Victor Gylfason, kokkur á Vox mun sjá um þróun og hönnun á öllum réttum Elda. Viðskipti innlent 14. október 2022 11:02
Innanlandsvélar Icelandair gætu verið knúnar vetni eftir þrjú ár Tækni til að umbreyta olíuknúnum innanlandsflota Icelandair í vetnisknúnar flugvélar verður tilbúin eftir þrjú ár. Þetta kom fram á fundi um orkuskipti í flugi á Reykjavik Edition hótelinu í dag í tengslum við Hringborð norðurslóða. Innlent 13. október 2022 22:23
Bein útsending: Orkuskipti í flugi - tækifæri fyrir Ísland Morgunfundur Icelandair, Isavia, Landsvirkjunar og Samtaka ferðaþjónustunnar sem ber yfirskriftina Orkuskipti í flugi - tækifæri fyrir Ísland hefst í dag klukkan 8:30. Búist er við því að fundinum ljúki klukkan 10. Viðskipti innlent 13. október 2022 08:01
Segist heyra margar kjaftasögur um Play en blæs á þær allar Birgir Jónsson, forstjóri flugfélagsins Play, segist heyra margar kjaftasögur um starfsemi félagsins. Hann blæs á þær allar og minnir á að félagið sé skráð á markað. Viðskipti innlent 12. október 2022 19:41
Viltu segja nafnið á eldfjallinu sem gaus 2010? Þessari spurningu er ég oft beðin að svara í starfi mínu sem landvörður. Og ýmsum fleiri spurningum sem snúa að framburði íslenskunnar, orðum í málinu og nafnavenjum svo eitthvað sé nefnt. Skoðun 12. október 2022 12:00
Ráðinn nýr fjármálastjóri Play Ólafur Þór Jóhannesson hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri fjármálasviðs PLAY. Hann tekur við starfinu af Þóru Eggertsdóttur og hefur störf í byrjun nóvember. Viðskipti innlent 11. október 2022 09:07
Mikil tilhlökkun í stuðningsmönnum á leið til Porto Mikil tilhlökkun var í stuðningsmönnum íslenska kvennalandsliðsins í Flugstöð Leifs Eiríkssonar í morgun þar sem þeir biðu eftir að fara um borð í vél Icelandair á leið til Porto í Portúgal. Stelpurnar okkar mæta landsliði Portúgal síðar í dag. Lífið 11. október 2022 07:36
Hróp og köll gerð að forstjórum Air France og Airbus vegna flugslyssins mannskæða fyrir þrettán árum Aðstandendur þeirra sem létust þegar Airbus-þota franska flugfélagsins Air France hrapaði í Atlantshaf árið 2009 gerðu hróp og köll að forstjórum flugvélaframleiðandans og flugfélagsins þegar dómsmál vegna flugslysins hófst í Frakklandi í dag. Erlent 10. október 2022 22:23