
Svakalega fyndið ímyndunarafl
Bráðfyndin saga með frábærum persónum sem ætti að höfða bæði til barna og foreldra þeirra.
Gagnrýni á kvikmyndum, bókmenntum, tónlist, leikhúsverkum og fleiru.
Bráðfyndin saga með frábærum persónum sem ætti að höfða bæði til barna og foreldra þeirra.
Ekki fullkomnir tónleikar, en sönggleðin var grípandi.
Kiasmos er samstarfsverkefni þeirra Ólafs Arnalds, sem hefur getið sér ágætis orð fyrir tilraunakennda tónlist undir klassískum áhrifum, og hins færeyska Janusar Rasmussen, sem er þekktastur sem aðaldriffjöðrin í rafpoppsveitinni Bloodgroup.
Falleg saga um vináttu og von.
Vel sungið en hljómburðurinn fer lögunum illa.
Táknsaga um íslenska þjóð á tuttugustu öld sem ber mörg bestu einkenni höfundarins.
Það er varla hægt að tala um "reggí-endurreisn“ á Íslandi, því það er ekki eins og það hafi verið til einhverjar reggíhljómsveitir hér á landi fyrir aldamót.
Lokahlutinn í mögnuðum bálki sögulegra skáldsagna sem hófst með Óvinafagnaði árið 2001. Frásagnarkaflarnir eru margir magnaðir en innskot sögumanns orka tvímælis.
Reykjavíkdansfestival var vel heppnuð hátíð íslenskra og erlendra dansunnenda og ýtti enn og aftur við hugmyndum áhorfenda um eðli listdansins.
Vel heppnuð úrvinnsla úr glæpasagnaminnum, kaldranaleg skáldsaga um persónur sem standa frammi fyrir vali sem sker úr um innræti þeirra og siðferði.
Eftirtektarverð sýning sem þarf skýrari þráð og úrvinnslu en Kriðpleir er sviðslistahópur sem vert er að fylgjast með.
Einstaklega skemmtileg og falleg lýsing á táningsárum manns og borgar.
Nóvemberhátíð RDF byrjar vel, ekki síst sem félagslegur listviðburður. Verkin sem sýnd hafa verið eru áhugaverð en mættu vera vandaðri.
Tilkomumikil sinfónía eftir Vaughan-Williams var flott, nýr sellókonsert eftir John Speight var aðdáunarverður.
Ef fiðluleikurinn væri betri væri þetta frábær geisladiskur.
Bráðfyndin saga sem byggir á norrænum sagnaarfi en fjallar ekki síður um nútímasamfélag.
Uniimog er hliðarverkefni þeirra Þorsteins Einarssonar og Guðmundar Kristins Jónssonar, sem eru líklega þekktastir fyrir að vera meðlimir reggísveitarinnar Hjálma.
Rökrétt framhald er önnur breiðskífa Grísalappalísu en fyrsta skífan, Ali, féll nokkuð í skugga framúrskarandi frammistöðu hljómsveitarinnar á fjölmörgum tónleikum undanfarin misseri, sem hafa vakið verðskuldaða athygli.
Áhugaverð og frumleg útfærsla þar sem persónulegur tónn er sleginn í klassískri sögu.
Stórskemmtileg og spennandi bók, sem tekur á stórum, mikilvægum málefnum í bland við smærri. Bók fyrir stráka og stelpur. Og gamlar frænkur.
Ágæt afþreying en skilur ekki mikið eftir.
Frumleg og fersk ástarsaga sem opnar lesandanum nýjar víddir.
Unglingabók um mörg mikilvæg málefni sem snertir lesendur í hjartastað. Falleg ástarsaga snert af djúpum harmi.
Lög Þorvalds Gylfasonar og Sigvalda Kaldalóns voru heillandi í vönduðum flutningi Kórs Langholtskirkju og Tómasar Guðna Eggertssonar.
Fyrsta skáldsaga efnilegs höfundar sem hefur marga kosti en verður á köflum langdregin. Aðalpersónan er vel mótuð en aukapersónur stundum ótrúverðugar.
Bráðskemmtileg, frumleg og athyglisverð sýning lengi vel framan af eða allt þar til öfgafull réttsýnin sparkar undan henni fótunum.
Áhugaverð bók sem ber sterk höfundareinkenni Steinunnar Sigurðardóttur, bæði í stíl og efni.
Koparakur geymir smásögur eins og þær verða bestar frá hendi Gyrðis. Í Lungnafiskunum sleppir hann fram af sér beislinu, smáprósarnir þar eru með því allra besta sem hann hefur skrifað, sprenghlægilegir og hyldjúpir í senn.
Hefðbundin en heldur daufleg saga úr flokknum um lögreglumennina Erlend og Marion. Vel skrifuð og plottuð en ansi þunn í roðinu.
Vel spilaðar en misskemmtilegar útsetningar sem í þokkabót hljóma illa.