Masters: Rástímar á lokadeginum Úrslitin á Mastersmótinu í golfi ráðast í dag og síðasta ráshópur fer af stað kl. 18.40 að íslenskum tíma. Rory McIlroy frá Norður-Írlandi er með fjögurra högga forskot en hann er samtals á 12 höggum undir pari en fjórir kylfingar eru jafnir á -8 í 2.-5. sæti. Golf 10. apríl 2011 13:00
Masters: Staðan fyrir lokadaginn Hinn 21 árs gamli Rory McIlroy frá Norður-Írlandi er með fjögurra högga forskot fyrir lokahringinn á Mastersmótinu í golfi. McIlroy hefur verið í efsta sæti mótsins alla þrjá keppnisdagana og í 19 af síðustu 20 Mastersmótum hefur sigurvegarinn verið í síðasta ráshóp á þriðja keppnisdegi mótsins – líkt og McIlroy var í dag. Keppni hefst um miðjan dag á sunnudag og verður bein útsending á Stöð 2 sport og hefst útsending um kl. 19. Golf 10. apríl 2011 00:45
Masters: Rory McIlroy með fjögurra högga forskot fyrir lokadaginn Rory McIlroy frá Norður-Írlandi er með fjögurra högga forskot fyrir lokahringinn á Mastersmótinu í golfi en hann styrkti stöðu sína á þriðja keppnisdeginum. McIlroy, sem er aðeins 21 árs gamall, lék á 70 höggum í dag eða -2 en hann hefur verið í efsta sæti alla þrjá keppnisdagana. McIlroy er samtals á 12 höggum undir pari og hann hefur sýnt mikinn styrk fram til þessa á fyrsta risamóti ársins. Golf 9. apríl 2011 23:15
Masters: Rástímar á þriðja keppnisdegi - Els verður einn í ráshóp Keppni á þriðja keppnisdegi á Mastersmótinu í golfi hefst kl. 14.35 í dag að íslenskum tíma en þá fer Ernie Els frá Suður-Afríku af stað –og er hann í þeirri óvenjulegu stöðu að vera einn í ráshóp. Aðeins 49 kylfingar hefja leik í dag og eru tveir í hverjum ráshóp – en Els leikur einn og mun dómari telja höggin hans. Bein útsending frá þriðja hringum hefst kl. 19.30 á Stöð 2 sport en síðasti ráshópur með þeim Rory McIlroy frá Norður-Írlandi og Jason Day frá Ástralíu fer af stað kl. 18.45. Golf 9. apríl 2011 14:00
Masters:Tiger Woods ætlar sér ekkert annað en sigur Tiger Woods hefur ekki verið líkur sjálfum sér í golfíþróttinni undanfarna 17 mánuði. Í gær sýndi Woods gamla takta og þokaði sér í þriðja sætið á Mastersmótinu á Augusta vellinum og segir bandaríski kylfingurinn að allur undirbúningur hans á undanförnum mánuðum hafi miðað að því að toppa á réttum tíma í byrjun apríl 2011. Golf 9. apríl 2011 12:17
Masters: Rory McIlroy efstur en Tiger Woods sýndi gamla takta Norður-Írinn Rory McIlroy heldur sínu striki á Mastersmótinu í golfi og er hann efstur á 10 höggum undir pari vallar þegar keppni er hálfnuð. Þetta er í fyrsta sinn sem hinn 21 árs gamli kylfingur er efstur að loknum 36 holum á risamóti. Tiger Woods átti frábæran dag en hann þokaði sér upp í þriðja sætið með því fá 9 fugla og 3 skolla á hringum í dag sem hann lék á -6 eða 66 höggum. Golf 8. apríl 2011 23:27
Masters: Mickelson bætir stöðu sína Það lítur út fyrir að spennan verði mikil á Mastersmótinu í golfi á Augusta vellinum í Georgíu en keppni á öðrum keppnisdegi hófst um hádegi að íslenskum tíma og verður leikið fram undir miðnætti. Rory McIlroy frá Norður-Írlandi og Spánverjinn Alvaro Quiros voru efstir á 7 höggum undir pari eftir fyrsta hringinn og þeir hafa báðir hafið leik í dag. McIlroy hefur leikið 2 holur þegar þetta er skrifað og fékk hann fugl á 2. Braut og er hann því á 8 höggum undir pari líkt og KJ Choi frá Suður-Kóreu en hann er einnig á 8 höggum undir pari. Golf 8. apríl 2011 17:40
Masters: McIlroy vonast til þess að hafa lært af reynslunni Rory McIlroy er ein "heitasta stjarnan“ í golfíþróttinni um þessar mundir og frægðarsól hans reis enn hærra í gær þegar Norður-Írinn tyllti sér í efsta sætið á Mastersmótinu á fyrsta keppnisdegi risamótsins. McIlroy, sem er aðeins 21 ár gamall lék á 7 höggum undir pari vallar eða 65 höggum og deilir hann efsta sætinu með Spánverjanum Alvaro Quiros. Golf 8. apríl 2011 13:15
Masters: Tiger er sex höggum á eftir efstu mönnum Tiger Woods er bjartsýnn á að geta blandað sér í baráttuna um sigurinn á Mastersmótinu í golfi eftir að hafa leikið Augusta völlinn á einu höggi undir pari vallar á fyrsta keppnisdegi risamótsins. "Ég er aðeins sex höggum á eftir efstu mönnum og það er nóg eftir,“ sagði Woods í gær en hann hefur fallið hratt niður heimslistann að undanförnu og er hann í 7. sæti. Golf 8. apríl 2011 11:45
Masters: McIlroy og Quiros gáfu tóninn á Augusta Rory McIlroy frá Norður-Írlandi og Spánverjinn Alvaro Quiros deila efsta sætinu að loknum fyrsta keppnisdegi á Mastersmótinu í golfi á Augustavellinum í Georgíu í Bandaríkjunum. Þeir léku báðir á 7 höggum undir pari eða 65 höggum á fyrsta risamóti ársins. Y.E Yang ig K.J. Choir eru þar á eftir á 5 höggum undir pari. Phil Mickelson hóf titilvörnina með því að leika á -2 eða 70 höggum og Tiger Woods er einu höggi þar á eftir. Golf 8. apríl 2011 01:00
Masters: Mickelson heiðraði Seve Ballesteros Phil Mickelson sá um hátíðarkvöldverð á Augusta golfvellinum í gærkvöld þar sem að fyrrum sigurvegurum mótsins er boðið. Spánverjinn Seve Ballesteros, sem tvívegis hefur sigrað á mótinu, gat ekki mætt að þessu sinni vegna veikinda eftir erfiða meðferð vegna heilaæxlis. Mickelson tileinkaði Ballesteros kvölverðaboðið og var spænskur matur í hávegðum hafður. Golf 7. apríl 2011 18:00
Masters: Fyrrum þjálfari Tiger Woods segir að hann sé bitlaus Butch Harmon fyrrum þjálfari Tiger Woods segir bandaríski kylfingurinn sé "bitlaus“ og hann eigi ekki eftir að bæta met Jack Nicklaus sem sigraði á 18 risamótum á ferlinum. Woods sigraði á 8 risamótum þegar Harmon var þjálfari hans en alls hefur Woods sigrað á 14 risamótum. Golf 7. apríl 2011 12:04
Masters: Sagan segir að Luke Donald eigi ekki möguleika Enski kylfingurinn Luke Donald þarf að skrifa nýjan kafla í sögu Mastersmótsins í golfi ef hann ætlar sér að sigra á fyrsta stórmóti ársins. Donald, sem hefur aldrei sigrað á einu af fjórum risamótum ársins, stóð uppi sem sigurvegari á par 3 holu mótinu sem ávallt er haldið degi áður en Mastersmótið hefst. Sagan er ekki með Donald þar sem að það hefur aldrei gerst að sigurvegarinn á par 3 holu mótinu hafi klætt sig í græna sigurjakkann við verðlaunaafhendinguna á lokadeginum á Augusta. Golf 7. apríl 2011 10:45
Masters: Nökkvi spáir Nick Watney sigri á Augusta Mastersmótið í golfi hefst á fimmtudaginn á Augusta vellinum í Georgíu en þetta er fyrsta risamót ársins af alls fjórum. Phil Mickelson hefur titil að verja á mótinu og er hann líklegur til afreka ef marka má þann hóp manna sem Þorsteinn Hallgrímsson, golfsérfræðingur Stöðvar 2 sport, ræddi við í vikunni. Golf 6. apríl 2011 22:45
Masters: Rástímarnir fyrstu tvo keppnisdagana Phil Mickelson, sem hefur titil að verja á Mastersmótinu í golfi, verður í ráshóp með Geoff Ogilvy og áhugamanninum Peter Uihlein á fyrstu tveimur keppnisdögunum á fyrsta risamóti ársins. Uihlein sigraði á opna bandaríska áhugamannamótinu á síðasta ári og samkvæmt venju fær hann þann heiður að leika með sigurvegaranum á Mastersmótinu þegar hann hefur titilvörnina. Golf 6. apríl 2011 19:30
McDowell tekur Meistaradeildina fram yfir par þrjú mótið á Masters Norður-Írinn Graeme McDowell mun ekki taka þátt í par þrjú-mótinu á Masters, sem markar upphaf Masters-vikunnar, því hann getur ekki hugsað sér að missa af leik Chelsea og Man. Utd í Meistaradeildinni í kvöld. Golf 6. apríl 2011 13:15
Masters: Íslenskir kylfingar hafa enn tröllatrú á Tiger Woods Þrátt fyrir að Tiger Woods hafi ekki sýnt neina snilldartakta á atvinnumótum í golfi á undanförnum mánuðum eru enn margir sem hafa trölltrú á bandaríska kylfingnum fyrir Mastersmótið sem hefst á morgun á Augusta vellinum. Þorsteinn Hallgrímsson, golfsérfræðingur Stöðvar 2 sport, hitti nokkra íslenska kylfinga á dögunum í Hraunkoti í Hafnarfirði þar sem Mastersmótið var umræðuefnið og er greinilegt að Tiger Woods er enn ofarlega á blaði hjá flestum. Golf 6. apríl 2011 08:15
Kylfusveinn á Masters í 50 ár Masters-mótið um helgina verður afar sérstakt fyrir Carl Jackson, kylfusvein Ben Crenshaw. Mótið um helgina verður það fimmtugasta í röðinni hjá þessum aldna heiðursmanni. Golf 5. apríl 2011 22:45
Kviknaði í einkaþotu Lee Westwood Breski kylfingurinn Lee Westwood komst heldur betur í hann krappann um helgina þegar einkaþota hans varð að nauðlenda er eldur kom upp í flugvélinni. Golf 5. apríl 2011 15:15
Mickelson fagnaði sigri í Houston Phil Mickelson vann í dag sigur á Houston Open mótinu í golfi. Þetta var í fyrsta sinn sem hann vinnur mót síðan hann fagnaði sigri á Masters í fyrra en það hefst nú á fimmtudaginn. Golf 3. apríl 2011 23:07
Westwood púttar á teppinu heima fyrir Masters Enski kylfingurinn Lee Westwood æfir sig nú að kappi fyrir Masters mótið í golfi sem hefst næsta fimmtudag. Undirbúningur hans fyrir mótið felst meðal annars í því að pútta á teppi til fá tilfinningu fyrir þeim mikla hraða sem er á flötunum á Augusta National vellinum í Georgíu-fylki, Bandaríkjunum. Golf 3. apríl 2011 22:15
Veðbankar hafa trú á Tiger fyrir Masters Þrátt fyrir að Tiger Woods hafi verið langt frá sínu besta að undanförnu á golfvellinum þá virðast veðbankar hafa óbilandi trú á því að hann blandi sér í baráttuna um sigurinn í fyrsta risamóti ársins í golfinu, Masters mótinu sem hefst næsta fimmtudag. Golf 3. apríl 2011 17:30
Mickelson sjóðheitur fyrir titilvörnina á Masters Bandaríski kylfingurinn Phil Mickelson var sjóðheitur í gær á Houston Open mótinu sem fram fer á bandarísku PGA-mótaröðinni í Texas. Mickelson er efstur í mótinu ásamt landa sínum Scott Verplank eftir að hafa leikið á 63 höggum í gær eða níu höggum undir pari. Hann jafnaði þar með vallarmetið á Redstone vellinum í Houston. Golf 3. apríl 2011 15:45
Tiger hlær að eigin óförum Kylfingurinn Tiger Woods kom ansi mörgum í opna skjöldu er hann ákvað að mæta í spjallþátt Jimmy Fallon. Fallon og kollegar hans hafa lítið annað gert síðustu 18 mánuði en gera grín að Tiger. Golf 18. mars 2011 23:30
Ryderkeppnin skilaði miklum hagnaði fyrir golfíþróttina í Wales Þeir aðilar sem stóðu að því að Ryderkeppnin í golfi fór fram á Celtic Manor í Wales á síðasta ári geta verið ánægðir með þau fjárhagslegu áhrif sem keppnin hafði í Wales. Golf 16. mars 2011 13:30
Gary Player efast um að Tiger Woods nái fyrri styrk Gary Player frá Suður-Afríku er yfirleitt með sterkar skoðanir á hlutunum. Hinn 75 ára gamli kylfingur sem sigraði alls á 9 stórmótum á ferlinum er í miklum vafa um að Tiger Woods nái að bæta met Jack Nicklaus sem sigraði á 18 stórmótum á sínum ferli. Golf 15. mars 2011 11:30
Watney fagnaði sigri á heimsmótinu á Doral vellinum Nick Watney sigraði á heimsmótinu í golfi sem lauk á Doral vellinum í Miami í gær. Þetta er í fyrsta sinn sem hinn 29 ára gamli bandaríski kylfingur sigrar á heimsmótaröðinni. Hann hefur hægt og bítandi skipað sér í hóp bestu kylfinga heims en hann lék lokahringinn á 5 höggum undir pari eða 67 höggum. Watney lék samtals á 16 höggum undir pari var tveimur höggum betri en Dustin Johnson. Golf 14. mars 2011 11:30
Tiger minnti á sig með góðum hring Tiger Woods sýndi í dag að hann kann ennþá sitthvað fyrir sér á golfíþróttinni þrátt fyrir að gengi hans að undanförnu hafi ekki verið upp á marga fiska. Hann lauk keppni á Cadillac mótinu á Heimsmótaröðinni með að leika á 66 höggum eða sex höggum undir pari Blue Monster vallarins í Flórída. Golf 13. mars 2011 20:10
100 metra langt upphafshögg frá Woods vakti mikla athygli Bandaríkjamaðurinn Hunter Mahan er efstur á heimsmótinu í golfi þegar keppni er hálfnuð á Doral vellinum í Miami. Hunter er einu höggi betri en efsti kylfingur heimslistans en Martin Kaymer frá Þýskalandi er annar á -8 ásamt Francesco Molinari frá Ítalíu. Golf 12. mars 2011 11:05
Fáir áhorfendur fylgdust með efstu kylfingum heimslistans Það gerist ekki oft að þrír efstu kylfingar heimslistans keppi á sama atvinnumótinu í golfi og það er enn sjaldgæfara að þeir leiki saman í ráshóp. Á heimsmótinu sem fram fer á Doral vellinum í Miami vakti það athygli hve fáir áhorfendur fylgdust með gangi mála hjá þremur efstu kylfingum heimslistans. Golf 11. mars 2011 19:00