
Grétu og viðurkenndu mistök á erfiðum fundi
Baltasar Kormákur bindur vonir við að hægt verði að fá íslenska reiðmenn til að taka við af spænsku þjálfarateymi, sem uppvíst varð að illri meðferð á hrossum við kvikmyndaframleiðslu Baltasars. Þjálfarateymið hafi viðurkennt mistök á erfiðum fundi, þar sem hópnum var sagt upp störfum.