
Íslendingur kom að gerð Óskarsverðlaunamyndar
Kvikmyndin Guillermo del Toro's Pinocchio vann til Óskarsverðlauna í nótt fyrir bestu teiknimynd. Gunnar Heiðar, Íslendingur búsettur í Oregon, kom að gerð myndarinnar.
Fréttir af fræga fólkinu úti í hinum stóra heimi.
Kvikmyndin Guillermo del Toro's Pinocchio vann til Óskarsverðlauna í nótt fyrir bestu teiknimynd. Gunnar Heiðar, Íslendingur búsettur í Oregon, kom að gerð myndarinnar.
Leikarinn Morgan Freeman klæddist þrýstihanska á sviðinu á Óskarsverðlaununum í nótt. Hanskann notar hann vegna bílslyss sem hann lenti í fyrir fimmtán árum síðan.
Að Óskarsverðlaunahátíðinni lokinni er kvöldið þó rétt að byrja hjá stjörnunum sem tínast í hin ýmsu eftirpartý. Langstærst er eftirpartý tímaritsins Vanity Fair en þangað flykkjast allar stærstu stjörnurnar.
Vandræðalegt viðtal við breska leikarann Hugh Grant á kampavínslitaða dreglinum á Óskarsverðlaunahátíðinni í gær hefur vakið töluverða athygli. Netverjar eru ekki á sama máli um hvort sökin sé hjá leikaranum eða konunni sem tekur viðtalið við hann
Ljósmyndari hrasaði er hann reyndi að taka myndir af söng- og leikkonunni Lady Gaga á kampavínslitaða dreglinum á Óskarsverðlaunahátíðinni.
Ruth E. Carter varð í nótt fyrsta svarta konan til að hafa unnið til tvennra Óskarsverðlauna. Carter, sem er búningahönnuður, fékk verðlaunin fyrst árið 2019 fyrir Marvel-myndina Black Panther og að þessu sinni hlaut hún verðlaunin fyrir framhaldsmyndina Black Panther: Wakanda Forever.
Kvikmyndin Everything, Everywhere All At Once er ótvíræður sigurvegari Óskarsverðlaunahátíðarinnar 2023. Myndin hreppti sjö verðlaun, meðal annars fyrir bestu leikkonu í aðalhlutverki, leikstjórn og sem besta mynd. Þýska stríðsmyndin All Quiet on the Western Front kom næst á eftir með fern verðlaun.
Sara Gunnarsdóttir vann ekki Óskarsverðlaun fyrir teiknaða stuttmynd sína, My Year of Dicks. Teiknimyndin The Boy, the Mole, the Fox and the Horse hreppti þess í stað verðlaunin.
Óskarsverðlaunin fara fram í kvöld í Dolby leikhúsinu þar sem allar skærustu stjörnur kvikmyndaheimsins koma saman og vonast eftir því að fara heim með gullstyttu. Dóra Júlía og Kristín Ólafsdóttir ætla að halda uppi vaktinni í nótt og fara með lesendum í gegnum rauða dregilinn og hátíðina. Dröfn Ösp Snorradóttir-Rozas er svo að lýsa hátíðinni í beinni á Stöð 2.
Óskarsverðlaunin verða afhent við hátíðlega athöfn, í 95. sinn, í kvöld. Íslenska listakonan Sara Gunnarsdóttir er tilnefnd fyrir teiknuðu stuttmyndina My Year of Dicks og er hún talin sérstaklega sigurstrangleg.
Aðdáendur Star trek stjörnunnar William Shatner eru í áfalli eftir að leikarinn, sem er 91 árs, kom fram í viðtali nýlega og sagðist ekki eiga mikið eftir.
Razzie-verðlaunin svokölluðu voru veitt í Hollywood nú í morgun, degi á undan Óskarsverðlaunahátíðinni. Verðlaunin voru fyrst veitt árið 1980 en skipuleggjendur lýsa þeim sem „ljóta frænda Óskarsverðlaunanna“, þar sem þeir „verðlauna“ það sem þeir telja verstu myndir ársins sem og verstu frammistöðu einstakra leikara í kvikmyndum ársins.
Dóra Júlía Agnarsdóttir og Kristín Ólafsdóttir ætla að fylgja lesendum Vísis í gegnum Óskarinn á sunnudaginn. Þær, ásamt Samúel Karli Ólasyni, þjófstörtuðu gleðinni með stórskemmtilegum upphitunarþætti sem sjá má hér að neðan.
Leikkonan Sharon Stone segist hafa misst forræði yfir syni sínum í forræðisdeilu vegna atriðis í kvikmyndinni Basic Instinct. Hún segir áreitið eftir að myndin kom út hafa verið gífurlegt.
Netheimar hafa logað síðustu daga vegna drama á milli tónlistarkonunnar Selenu Gomez og fyrirsætunnar Hailey Bieber. Í mörg ár hefur þeim stöllum verið stillt upp á móti hvor annarri og er þetta nýja drama svo sannarlega bensín á þann eld.
Hin umdeilda tískusýning undirfatarisans Victoria's Secret verður haldin í ár í fyrsta sinn eftir fjögurra ára hlé. Fyrirtækið hefur gengist við því að hafa verið of lengi að bregðast við breyttum heimi. Forstjórinn segir að nú sé kominn tími til að hætta að gera það sem karlmenn vilja og fara að gera það sem konur vilja.
Raunveruleikastjarnan Kourtney Kardashian er orðin ljóshærð. Hún sýndi nýja hárið á Instagram síðu sinni og vakti það mikla athygli. Ólíkt systrum sínum hefur Kourtney haldið sig við dökka hárið alveg síðan hún steig fyrst fram í sviðsljósið, þar til nú.
Pönkprinsessan Avril Lavigne og rapparinn Tyga eru nýjasta par Hollywood. Parið opinberaði samband sitt með kossi á tískuvikunni í París í gær.
Eiginkona stórleikarans Bruce Willis hefur beðið papparassa og fréttamenn um að láta eiginmann hennar í friði. Hann var nýverið greindur með framheilabilun.
Barnastjarnan Sophia Grace Brownlee, sem sló eftirminnilega í gegn í The Ellen DeGeneres Show, hefur eignast sitt fyrsta barn. Hún komst í sviðsljósið aðeins átta ára gömul þegar hún rappaði lagið Super Bass með Nicki Minaj ásamt frænku sinni Rosie McClelland.
Ónefndur sonur tónlistarparsins Rihönnu og A$AP Rocky er líklega eitt frægasta barn heims án þess að hann hafi nokkra hugmynd um það. Á nýrri mynd sem Rihanna birti af drengnum í gær sprengir hann alla krúttskala.
Bandaríski grínistinn Pete Davidson og kærasta hans, Chase Sui-Wonders, lentu í bílslysi í Beverly Hills í Los Angeles í fyrrinótt.
Chris Rock segir leikarann Will Smith vera tík fyrir að hafa slegið sig á Óskarsverðlaunahátíðinni í fyrra. Rock gaf í skyn að illindi hans og Smith hafi byrjað árið 2016.
Sú þáttaröð af spjallþáttunum Rachael Ray sem er í framleiðslu núna verður sú síðasta. Gerðar hafa verið sautján þáttaraðir og hefur þátturinn unnið til fjölda verðlauna í gegnum árin.
Leikarinn Tom Sizemore er látinn, 61 árs að aldri. Greint var frá því fyrr í vikunni að hann myndi ekki vakna úr dái eftir að hafa fengið stórt heilablóðfall.
Poppstjarnan Birtney Spears hefur selt heimili sitt í Calabasas í Kaliforníu. Um er að ræða sannkallaða höll sem hún keypti nokkrum dögum eftir að hún gekk í hjónaband með Sam Asghari á síðasta ári.
Raunveruleikastjórnurnar Joey Sasso og Kariselle Snow hafa slitið trúlofun sinni. Þau trúlofuðu sig í lokaþætti Netflix-þáttaraðarinnar Perfect Match.
Rapparinn Drake segist sjá eftir því að hafa nafngreint fyrrverandi kærustur sínar í lögum sínum. Hann hafi aldrei gert það með neitt illt í huga en ein þeirra skammaði hann fyrir það.
Það vakti gífurlega athygli þegar leikarinn Will Smith löðrungaði grínistann Chris Rock í beinni útsendingu á Óskarsverðlaunahátíðinni í fyrra. Samkvæmt upplýsingum frá Netflix mun Rock tala almennilega um löðrunginn í nýju uppistandi sínu.
Tónlistarmaðurinn Ed Sheeran tilkynnti um væntanlega plötu í dag. Ásamt því opnaði hann sig um ýmsa erfiðleika sem hann hefur gengið í gegnum. Þessi röð áfalla olli því að hann byrjaði upp á nýtt á plötunni.