

Hollywood
Fréttir af fræga fólkinu úti í hinum stóra heimi.

People hefur valið kynþokkafyllsta mann heims
Leikarinn Paul Rudd hefur verið valinn kynþokkafyllsti maður heims að mati bandaríska tímaritsins People. Hann segist eiga erfitt með að meðtaka þennan nýja titil en hann muni þó taka hann alla leið.

Kanye West orðaður við tuttugu og tveggja ára gamla fyrirsætu
Hollywood-spekingurinn Birta Líf Ólafsdóttir fer yfir allt það helsta í Hollywood í Brennslutei vikunnar alla þriðjudagsmorgna á FM 957. Í morgun fór Birta yfir harmleikinn sem átti sér stað á Astroworld-tónlistarhátíðinni um helgina. Þá var einnig rætt um ný ástarsambönd þeirra Kim Kardashian og Kanye West sem virðast bæði vera að horfa fram á veginn.

Vopnavörðurinn segir einhvern hafa sett skot í byssuna
Vopnavörður kvikmyndarinnar Rust segir mögulegt að einhver hafi sett hefðbundið byssuskot í byssu sem notuð var við æfingar fyrir tökur. Leikarinn Alec Baldwin skaut kvikmyndatökustjórann Halynu Hutchins til bana með byssunni.

Kim Kardashian og Pete Davidson saman á Staten Island
Raunveruleikastjarnan Kim Kardashian er í New York þessa stundina og dvelur á RItz-Carlton hótelinu á Manhattan. Í gær fór hún út að borða á Staten Island með Pete Davidson.

Britney kennir mömmu sinni um sjálfræðismissinn
Ofurstjarnan Britney Spears segist kenna móður sinni um að faðir hennara hafi farið með forræði yfir henni síðustu þrettán ár. Söngkonan hefur lítið sem ekkert haft um fjármál sín eða einkamál að segja þennan rúma áratug.

Kristen Stewart trúlofuð
Leikkonan Kristen Stewart er á leið upp að altarinu. Hún tilkynnti í viðtali í þætti hjá Howard Stern í gær að hún væri að fara að giftast Dylan Meyer.

Kim Kardashian orðuð við „Good Luck Chuck“ Hollywood
„Það voru svo margar sögur í vikunni, ég þurfti alveg að sleppa helling en ég sleppi ekki Kim Kardashian og Pete Davidson. Það fór bara eins og eldur í sinu. Þetta var crazy,“ segir Hollywood-spekingurinn Birta Líf Ólafsdóttir, sem fór yfir allt það heitasta úr heimi fræga fólksins vestanhafs í Brennslutei vikunnar í morgun.

Baskin-hjónin stefna Netflix vegna Tiger King 2
Carole Baskin, erkióvinur tígrisdýraræktandans Joe Exotic, hefur kært streymisveituna Netflix vegna þess sem hún vill meina að sé stórfellt brot á samningum sem varða notkun á myndefni af henni og eiginmanni hennar í stiklu annarrar þáttaraðar Tiger King sem frumsýnd verður síðar í mánuðinum.

Baldwin rýfur þögnina um skotið sem banaði Halynu Hutchins
Alec Baldwin tjáði sig við fjölmiðla um voðaskotið sem varð Halynu Hutchins að bana í fyrsta skipti í dag. Hann segir hana hafa verið vinkonu sína og að honum hafi verið bannað að ræða smáatriði málsins þar sem formleg rannsókn væri í gangi.

Zayn kærður fyrir að hafa beitt frænku Gigi ofbeldi
Zayn Malik hefur verið kærður fyrir ofbeldi gegn frænku barsmóður sinnar, Gigi Hadid. Malik hefur tilkynnt dómstóli að hann muni ekki mótmæla kærunni.

Vopnavörðurinn veit ekki hvernig kúlan komst á tökustað
Voðaskotið sem banaði Halynu Hutchins á setti kvikmyndarinnar Rust hefur varpað ljósi á það að sparnaður við kvikmyndaframleiðslu getur ógnað heilsu starfsfólks. Verið sé skera niður við framleiðslu kvikmynda og sjónvarpsþátta og það skapi hættu á tökustöðum. Vopnavörður myndarinnar segist ekki vita hvernig hefðbundin byssukúla rataði á tökustað.

Verður fyrstur Vinanna til að skrifa sjálfsævisögu
Kanadísk-bandaríski leikarinn Matthew Perry hefur ákveðið að setjast við skriftir og rita ævisögu sína og veita þannig lesendum innsýn í tökurnar á Vinum, sjónvarpsþáttunum vinsælu sem framleiddir voru á árunum 1994 til 2004 og skutu Perry upp á stjörnuhimininn.

Halls viðurkennir að hafa ekki skoðað byssuna nógu vandlega
Dave Halls, aðstoðarleikstjóri kvikmyndarinnar Rust, hefur sagt við lögreglu að hann hefði átt að tryggja að ekkert skot væri í byssunni sem hann rétti leikaranum Alec Baldwin, rétt áður en skot úr sömu byssu varð tökustjóranum Halynu Hutchins að bana.

Telja hefðbundna kúlu hafa verið í byssunni
Fógeti Santa Fe-sýslu í Nýju Mexíkó og héraðssaksóknari sýslunnar héldu í dag blaðamannafund um rannsókn þeirra á dauða Halynu Hutchins, kvikmyndatökustjóra, sem dó við gerð kvikmyndarinnar Rust. Þar kom í ljós að talið er að hefðbundið byssuskot hefði verið í byssunni sem leikarinn Alec Baldwin skaut Hutchins með.

Skotvopnið var „alvöru“ og ákærur ekki útilokaðar
Mary Carmack-Altwies, yfirsaksóknari í Santa Fe-sýslu, segir ekki útilokað að ákærur verði gefnar út í tengslum við andlát tökustjórans Halyna Hutchins. Þá segir hún ekki rétt að tala um skotvopnið sem varð Hutchins að bana sem leikmun (e. prop), þar sem um raunverulegt antík skotvopn sé að ræða.

Aðstoðarleikstjóri Rust starfaði við tökur á Íslandi
Aðstoðarleikstjóri kvikmyndarinnar Rust, sem spjótin beinast að vegna dauða kvikmyndatökustjórans Halynu Hutchins, varði tíma hér á landi veturinn 2016/17 vegna framleiðslu myndarinnar Arctic. Dave Halls var einnig aðstoðarleikstjóri þeirrar myndar sem var meðal annars framleidd af Pegasus og Einari Þorsteinssyni.

Trump yngri selur boli og gerir grín að Baldwin
Stjórnmálamenn á hægri væng Bandaríkjanna og bandamenn Donalds Trump, fyrrverandi forseta, hafa gagnrýnt og gert grín að leikaranum Alec Baldwin eftir að hann hleypti skoti af byssu á setti og varð þannig kvikmyndatökustjóranum Halynu Hutchins að bana. Donald Trump yngri, elsti sonur forsetans fyrrverandi seldi til að mynda boli þar sem grín var gert að dauða Hutchins.

Lést við að sinna hættulegasta starfi Hollywood
Tökustjórinn Halyna Hutchins lést er hún var að sinna hættulegasta starfi Hollywood þegar skot hljóp úr byssu leikarans Alec Baldwin, við tökur á kvikmyndinni Rust. Úttekt Deadline sýnir að kvikmyndatökumenn virðast í mestri hættu við störf sín í kvikmynda- og sjónvarpsþáttaframleiðslu.

Vitnisburðir leikstjóra og myndatökumanns varpa ljósi á atburðarásina
Alec Baldwin var að æfa sig að beina byssu að myndavélinni á tökustað kvikmyndarinnar Rust þegar skot reið af með þeim afleiðingum að tökustjórinn Halyna Hutchins lést.

Segir Baldwin hafa verið óhuggandi í margar klukkustundir
„Hann var móðursjúkur og gjörsamlega óhuggandi í marga klukkutíma. Allir vita að þetta var slys en hann er algjörlega eyðilagður.“ Þetta hefur People eftir ónefndum heimildarmanni um ástand leikarans Alec Baldwin, eftir að hann varð tökustjóra að bana við tökur á kvikmyndinni Rust í Santa Fe í Nýju-Mexíkó á föstudag.

„Sjöundi vinurinn“ James Michael Tyler látinn
James Michael Tyler, leikarinn sem er þekktastur fyrir að leika kaffihúsaþjóninn Gunther í Friends, er látinn. Tyler, sem var 59 ára, lést úr blöðruhálskirtilskrabbameini.

Öll spjót beinast að aðstoðarleikstjóranum í máli Baldwin
Kvartað hafði verið undan Dave Halls, aðstoðarleikstjóra myndarinnar Rust, sem rétti Alec Baldwin byssuna sem hann skaut Halyna Hutchins kvikmyndastjóra til bana með, á öðru tökusetti árið 2019 fyrir að fara ekki eftir öryggisreglum. Hann tilkynnti Baldwin að byssan væri óhlaðin þegar hann rétti honum hana.

Hinsta kveðja eiginmannins: „Við söknum þín, Halyna!“
Matthew Hutchins, eiginmaður kvikmyndatökustjórans Halynu Hutchins, sem lést af völdum voðaskots við kvikmyndatökur á fimmtudag, birti fyrr í dag á Instagram hjartnæmar myndir af þeim hjónum og syni þeirra með kveðjunni „Við söknum þín Halyna!“.

Baldwin vissi ekki að skot væri í byssunni
Leikarinn Alec Baldwin vissi ekki að byssa sem aðstoðarleikstjóri kúrekamyndarinnar Rust rétti honum væri hlaðin skoti, annað hvort raunverulegu eða púðurskoti. Tökumenn og aðrir höfðu lagt niður störf nokkrum klukkustundum áður, að hluta til vegna skorts á öryggisráðstöfunum.

Öll í faginu taka slysaskotið til sín
Bandaríski leikarinn Alec Baldwin segist í ólýsanlegu áfalli eftir að hafa orðið kvikmyndatökustjóra að bana á tökustað. Leikmyndahönnuður segir slysið víti til varnaðar fyrir kvikmyndaiðnaðinn.

Baldwin segist niðurbrotinn vegna dauða Halyna Hutchins
Leikarinn Alec Baldwin segist niðurbrotinn vegna dauða Halyna Hutchins sem dó eftir að hann hleypti af byssu við tökur á kvikmynd í Nýju Mexíkó í gær. Hutchins var kvikmyndatökustjóri en auk hennar særðist Joel Souza leikstjóri.

Leikstjórinn fékk skot í öxlina en hefur verið útskrifaður
Leikstjórinn Joel Souza hefur verið útskrifaður af spítala í Santa Fe, eftir að hafa fengið skot í sig úr leikbyssu við tökur á myndinni Rust. Kvikmyndatökustjórinn Halyna Hutchins varð einnig fyrir skoti og var úrskurðuð látin við komuna á sjúkrahús en það var leikarinn Alec Baldwin sem hleypti af vopninu.

Alec Baldwin varð konu að bana við tökur á nýrri mynd
Leikarinn Alec Baldwin er sagður hafa orðið konu að bana við tökur á kvikmynd í Nýju-Mexíkó. Samkvæmt erlendum miðlum hleypti Baldwin af skotvopni sem var einn af leikmunum myndarinnar, með þeim afleiðingum að kona dó og maður særðist.

Hefur áhyggjur af viðbrögðum barnsföður Kourtney við trúlofuninni
Hollywood-spekingurinn Birta Líf Ólafsdóttir fer yfir allt það helsta í Hollywood í Brennslutei vikunnar á þriðjudögum. Í þessari viku fer hún meðal annars yfir trúlofun Kourtney Kardashian og Travis Barker, nýja þætti Kardashian fjölskyldunnar og fréttir af Vanessu Bryant.

Hét áður Kanye West en nú einfaldlega Ye
Bandaríski rapparinn og tónskáldið Ye hét áður Kanye West en hefur nú hlotið blessun dómara í Los Angeles til þess breyta fullu nafni sínu í Ye.