
Ánægður með frumvarp sjálfstæðismanna
Verkalýðshreyfingin fagnar frumvarpi sjálfstæðismanna um afnám stimpilgjalda. Formaður VR segir útilokað að þingmenn fái nokkurn tímann sæti við borðið við gerð kjarasamninga.
Verkalýðshreyfingin fagnar frumvarpi sjálfstæðismanna um afnám stimpilgjalda. Formaður VR segir útilokað að þingmenn fái nokkurn tímann sæti við borðið við gerð kjarasamninga.
Hluti þingflokks Sjálfstæðisflokksins vill afnema stimpilgjöld við kaup einstaklings á fasteign. Fyrsti flutningsmaður frumvarpsins segir gjöldin úrelt og óþarfa og er bjartsýnn á að það verði samþykkt.
Eins og hlutirnir hafa verið að þróast í samfélaginu undanfarin ár með auknum kröfum á stjórnvöld og sveitarfélög er að mínu viti að byggjast upp mikil spenna á milli kynslóða. Þessi spenna lýsir sér þannig að unga fólkið sem er að koma sér af stað í samfélaginu með því að stofna fjölskyldur kallar eftir meiri og meiri stuðningi opinberra aðila við að koma sér þaki yfir höfuðið og eignast börn. Nýjasta krafan sem fékkst fram eru fríar máltíðir í skólum óháð efnahag foreldra.
Fasteignamarkaðurinn ber nú merki um aukið jafnvægi milli framboðs og eftirspurnar samhliða minni áhrifum vegna Grindavíkur, þrátt fyrir að eftirspurn sé enn mikil. Merki eru um að fasteignamarkaðurinn á höfuðborgarsvæðinu sé enn á valdi seljenda og á leigumarkaði virðast fleiri nú leigja hjá ættingjum eða vinum.
Rúmlega sex af hverjum tíu nýbyggingum sem auglýstar voru til sölu á höfuðborgarsvæðinu á fyrri hluta árs eru óseldar. Aðeins 15 prósent af heildarframboði nýbygginga eru auglýst eða seld undir 65 milljónum króna.
Fjármálaráðherra og verðandi formaður fjárlaganefndar eru ósammála um hvort endurnýja skuli almenna heimild til að nýta séreignasparnað inn á húsnæðislán. Þingmaður Pírata segir stjórnarmeirihlutann með þessu senda misvísandi skilaboð til almennings sem lofi ekki góðu fyrir komandi þingvetur. Almenningur eigi betra skilið.
Dagmóðir þarf ekki að afla samþykkis allra íbúa fjölbýlishúss til þess að reka daggæslu þar. Húsfélag hússins hélt því fram að starfsemin raskaði friði í húsinu og rýrði virði íbúða í því.
Formaður Samfylkingarinnar segir almennt launafólk ekki verða vart við aukinn kaupmátt, enda ekki tekið tillit til mikillar vaxtabyrði heimilanna. Fjármálaráðherra segir fjárlagafrumvarpið hins vegar styðja við heimilin í landinu á sama tíma og verðbólga fari minnkandi.
Formaður Starfsgreinasambandsins er forviða yfir ákvörðun stjórnvalda um að framlengja ekki heimild til ráðstöfunar séreignarsparnað inn á húsnæðislán. Hann spyr sig hvort úrræðið hafi gagnast millitekjufóki of vel að mati stjórnvalda, enda sé innborgun inn á höfuðstól það besta sem komi fyrir fólk.
Útgjöld ríkisins aukast um 55 milljarða króna á næsta ári samkvæmt fjárlagafrumvarpi ríkisstjórnarinnar. Fjármálaráðherra segir frumvarpið engu að síður styðja við hjöðnun verðbólgu og þar með lækkun vaxta.
Verkalýðshreyfingin hefur boðað til mótmæla við þingsetningu á morgun. Verkalýðsforkólfar segjast skynja mikla reiði vegna langvarandi verðbólgu og háum vöxtum og krefjast þess að stjórnvöld setji heimilin í landinu í forgang.
Meginkrafa mótmæla stærstu heildarsamtaka launafólks landsins á morgun er að ríkisstjórnin vakni af blundi og ráðist í markvissar aðgerðir gegn háu vaxtastigi og verðbólgu, að sögn formanns VR. Hann segir mótmælin söguleg.
Einstæð móðir á örorkubótum hefur með harðfylgi og útsjónarsemi náð að eignast og halda íbúð. Hún festi vexti fyrir nokkrum árum og hefur greitt 120.000 krónur á mánuði af lánunum. En svo „féll snjóhengjan“, vextirnir losnuðu og núna á hún að greiða 270.000 krónur í hverjum mánuði.
Nýverið birti RÚV viðtal við Sigríði Andersen, fyrrum ráðherra, þó ekki bara fyrrum ráðherra, heldur einn af fáum slíkum sem hefur þurft að svara fyrir misgjörðir í starf og misst stöðu sína í kjölfarið.
Með nánast einu pennastriki væri hægt að raungera fyrirsögnina hér að ofan. Með einu pennastriki væri hægt að hrinda í framkvæmd breytingu sem myndi á afar skömmum tíma, örfáum mánuðum, skila einhverjum mestu umbótum fyrir íslensk heimili og fyrirtæki sem um getur.
Alma íbúðafélag sem hingað til hefur gert allt að fimm ára leigusamninga hefur ákveðið að bjóða aðeins upp á 13 mánaða leigusamning. Tilefnið er ný húsaleigulög sem tóku gildi um mánaðamótin.
BYKO býður upp á fjölbreytt úrval af smáhýsum og húseiningum sem henta fyrir margvíslegar þarfir. Þetta nær yfir allt frá einföldum húseiningum til fullbúinna húsa að innan og utan.
Allir meðlimir peningastefnunefndar Seðlabanka Íslands voru sammála seðlabankastjóra um að halda vöxtum óbreyttum, þegar þeir höfðu þegar staðið í 9,25 prósentum í heilt ár.
Formenn Samtaka leigjenda og húseigenda vísa ummælum fjármálaráðherra um að fullnægjandi samráð hafi verið haft við alla hagaðila á leigumarkaði, við gerð frumvarps um húsaleigulög, alfarið á bug. Formaður Samtaka leigjenda segist hafa fengið boð á einn hálftímalangan fund sem fór allur í þrætur við formann nefndarinnar.
Jæja, hvað er að frétta af næstu úthlutun hlutdeildarlána HMS til fyrstu kaupenda? Einhverja hluta vegna benda allir hver á annan og enginn hefur svör. Og því spyr ég hér opinberlega – hvað er að frétta? Getur fjármálaráðherra, innviðaráðherra eða forstjóri HMS svarað?
Fyrrverandi innviðaráðherra hafnar því að ekki hafi verið haft samráð við húseigendur og leigjendur þegar unnið var að breytingum á húsaleigulöggjöfinni. Formenn Samtaka leigjenda og húseigenda hafa lýst yfir mikilli óánægju með breytingarnar og kalla eftir nýrri löggjöf.
Leigjendur og húseigendur lýsa yfir mikilli óánægju með breytingu á húsaleigulögum. Forsvarsfólk þeirra segir að lítið sem ekkert samráð hafi verið haft við þau meðan lögin voru í smíðum. Kallað er eftir nýrri húsaleigulöggjöf.
Gagnsleysi aðgerða Seðlabanka Íslands gegn verðbólgu verður sífellt augljósara. Í nýjum verðbólgumælingum er verðbólga á ársgrundvelli án húsnæðis, komin niður í 3,6% og fer hægt og örugglega lækkandi.
Formaður samtaka leigjenda gagnrýnir harðlega breytingu á húsaleigulögum sem tók gildi nú um mánaðarmótin. Um sé að ræða aðför að leigjendum þar sem staða leigusalans sé fyrst og fremst styrkt. Ekki hafi verið tekið tillit til krafna samtakanna við breytingu laganna heldur þvert á móti.
Reykjavík er iðandi og fjölbreytt borg með mörg skemmtileg einkenni sem finnast hvergi annars staðar. Allt frá hinum þrönga miðbæjarreit í Kvosinni og upp á Skólavörðuholtið, fjölskyldustemningunni í Hlíðunum og Laugardalnum og upp í úthverfin með fjallasýnina í Grafarvogi, Grafarholti og Úlfarsársdal.
Á sunnudaginn taka gildi ný lög um breytingar á húsaleigulögum, en markmið breytinganna er að bæta réttarstöðu leigjenda og auka húsnæðisöryggi. Með breytingum verður vísitölutenging styttri samninga óheimil, auk þess sem skilyrði verða sett fyrir því að leigjendur eða leigusalar geti farið fram á breytingar á leigufjárhæð.
Í dag var gengið frá samkomulagi um mestu framkvæmdir í miðbæ Hafnarfjarðar í áratugi. Alger bylting verður á í nýjum húsakosti bókasafns bæjarins, að sögn bæjarstjórans.
Frá miðju síðasta ári hafa um tvö af hverjum þremur nýjum störfum sem bættust við íslenskan vinnumarkað orðið til hjá opinbera geiranum á meðan vísbendingar eru um að það dragi á sama tíma talsvert úr fjölgun starfa í einkageiranum. Framkvæmdastjóri Samtaka iðnaðarins segir að stjórnvöld hljóti að leita allra leiða til að draga úr spennu á vinnumarkaði, sem hefur átt sinn þátt í að viðhalda þrálátri verðbólgu, með því að horfa þar til eigin umsvifa.
Formaður Leigjendasamtakanna sakar stjórnvöld um að vísvitandi búa til þjóðfélagshóp sem búi ekki við húsnæðisöryggi og segir staðan á leigumarkaði talsvert verri en tölur Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar gefa til kynna.
Vísbendingar eru um að tekið sé að draga sundur milli leigjenda á almennum markaði og þeirra sem leigja hjá óhagnaðardrifnum félögum. Samkvæmt nýrri skýrslu er ekki útlit fyrir að draga fari úr eftirspurnarspennu á húsnæðismarkaði í bráð.