

Íslenski boltinn
Fréttir, beinar lýsingar, úrslit og myndbönd úr efstu deildum í fótbolta á Íslandi.

Misstu Örnu til Vals en fá aðra Örnu í staðinn
Arna Eiríksdóttir mun spila með Þór/KA í Bestu deildinni í sumar en Þór/KA fær hana á láni frá Val út tímabilið.

Umfjöllun og viðtöl: Valur - Þróttur 2-0 | Meistararnir hefja titilvörnina á sigri
Valur hafði betur gegn Þrótti á heimavelli í fyrstu umferð Bestu deildar kvenna í kvöld en lokatölur urðu 2-0.

Umfjöllun og viðtöl: ÍBV - Stjarnan 1-1 | Jafnt í opnunarleik Bestu-deildarinnar
ÍBV tók á móti Stjörnunni í opnunarleik Bestu deildar kvenna árið 2022 og skildu liðin jöfn eftir níutíu mínútur, 1-1.

Ekki spennandi að láta Valgeir fara rétt fyrir mót
Þrátt fyrir áhuga sumra af bestu liðum landsins á Valgeiri Valgeirssyni er útlit fyrir að þessi knái U21-landsliðsmaður í fótbolta muni spila áfram með HK í sumar, í Lengjudeildinni.

KR hefur tapað fyrsta heimaleik sumarsins undanfarin þrjú ár
KR-ingum gengur illa að byrja knattspyrnusumur vel á heimavelli sínum og það varð ekki breyting á því í gærkvöldi.

Besta spá kvenna 2022: Endurtekið efni á toppnum
Íþróttadeild Vísis og Stöðvar 2 Sports spáir því að Breiðablik og Valur endi í 2. og 1. sæti Bestu deildar kvenna í sumar.

Sjáðu hvernig Blikar kláruðu KR og FH-ingar snéru tapi í sigur
Tveir síðustu leikir annarrar umferðar Bestu deildar karla í fótbolta fóru fram í gærkvöldi og þar fögnuðu Blikar og FH-ingar sigri.

Fór úr 3. deild í þá Bestu: „Hélt að þetta væri erfiðara“
Eftir að hafa aldrei spilað ofar en í D-deild hefur Sindri Þór Ingimarsson byrjað báða leiki Stjörnunnar í Bestu-deildinni í sumar. Hann segir að stökkið hafi ekki verið jafn stórt og hann bjóst við.

Pablo á leið í myndatöku: „Fékk eitthvað smá í hnéð“
Pablo Punyed var hvergi sjáanlegur þegar Íslandsmeistarar Víkings steinlágu á Akranesi í annarri umferð Bestu deildar karla í fótbolta. Hann meiddist lítillega á æfingu og þarf að fara í myndatöku vegna þessa.

Umfjöllun og viðtöl: FH – Fram 4-2 | Rosalegar lokamínútur í Kaplakrika
FH kom til baka undir lok leiks gegn Fram og vann á endanum 4-2 sigur á nýliðum Fram í 2. umferð Bestu deildar karla í fótbolta. Umfjöllun og viðtöl væntanleg.

Það hafa komið leikir þar sem við höfum fengið 30 færi og ekki skorað eitt einasta mark
Breiðablik vann góðan sigur á KR á Meistaravöllum í Vesturbænum í Bestu deild karla í knattspyrnu í kvöld, 0-1. Óskar Hrafn Þorvaldsson, þjálfari Breiðabliks, var gríðarlega sáttur í leikslok.

„Ekki hægt að biðja um meira en mark og sigur í fyrsta deildarleik“
FH vann Fram í sex marka leik. Máni Austmann Hilmarsson, leikmaður FH, spilaði sinn fyrsta deildarleik fyrir félagið og skoraði þriðja mark FH.

Umfjöllun, viðtöl og myndir: KR - Breiðablik 0-1 | Loks náðu Blikar í þrjú stig gegn KR
Breiðablik vann góðan sigur á KR á Meistaravöllum í Vesturbænum í Bestu deild karla í knattspyrnu í kvöld. Lokatölur 0-1 eftir tvískiptan leik þar sem KR hafði yfirhöndina í fyrri hálfleik en Blikar í þeim síðari.

Áfall fyrir Þrótt: Linda Líf ekkert með og Ólöf Sigríður frá meirihluta tímabils
Þróttur Reykjavík verður án tveggja sterkra leikmanna framan af sumri í Bestu deildinni í fótbolta. Linda Líf Boama verður ekkert með liðinu og þá er Ólöf Sigríður Kristinsdóttir frá næstu þrjá mánuðina eða svo.

Tekst Óskari Hrafni loksins að vinna KR í kvöld?
Stórleikur kvöldsins í Bestu deild karla er heimsókn Blika í Vesturbæinn en lið KR og Breiðabliks unnu stærstu sigrana í fyrstu umferðinni og voru því í efstu sætunum áður en önnur umferðin hófst.

Besta-spáin 2022: Stuð á Suðurlandi og Stjarnan skín
Íþróttadeild Vísis og Stöðvar 2 Sports spáir því að Selfoss og Stjarnan endi í 4. og 3. sæti Bestu deildar kvenna í sumar.

Fimmta sumarið í röð þar sem Stjörnustrákur skorar fyrir átján ára afmælið sitt
Ungir leikmenn fá tækifæri hjá Stjörnunni og þeir eru líka að nýta þau. Hinn sautján ára gamli Adolf Daði Birgisson opnaði markareikning sinn í efstu deild í gær.

Umfjöllun og viðtöl: ÍA – Víkingur 3-0 | Skagamenn rúlluðu yfir meistarana
Skagamenn fengu Víkinga í heimsókn á Norðurálsvöllinn í 2. umferð Bestu deildar karla í knattspyrnu í kvöld. Leikurinn fór rólega af stað en opnaðist fljótlega og eftir mikla baráttu fóru Skagamenn, sem voru hvattir vel áfram úr stúkunni, með sigur af hólmi og lokatölur 3-0.

Jón Þór: Frábær liðsframmistaða og það í 90 mínútur
Jón Þór Hauksson, þjálfari ÍA, var gríðarlega ánægður með öflugan 3-0 sigur sinna manna gegn Íslands- og bikarmeisturum Víkings í Bestu deild karla í knattspyrnu en leikurinn fór fram á Norðurálsvelli á Akranesi.

Umfjöllun og viðtöl: Keflavík – Valur 0-1 | Naumur sigur Valsara í Keflavík
Valur er með fullt hús stiga eftir fyrstu tvo leikina í Bestu deildinni í fótbolta.

„Skrýtin orka í Leiknisliðinu“
Leiknismenn fengu skell gegn Stjörnunni í Bestu deildinni í fótbolta í dag.

„Veit hvað við höfum inni í klefa“
Nýliðar ÍBV fara rólega af stað í Bestu deildinni í fótbolta og fengu skell í fyrsta heimaleik sínum í deildinni í dag.

Umfjöllun og viðtöl: Leiknir R. - Stjarnan 0-3 | Stjarnan sigldi sigrinum í höfn í Breiðholtinu
Stjarnan innbyrti sinn fyrsta sigur í Bestudeild karla í fótbolta þegar liðið vann sannfærandi 3-0 gegn Leikni í leik liðanna á Domusnova-vellinum í Breiðholtinu í kvöld.

Umfjöllun og viðtöl: ÍBV 0–3 KA | Akureyringar sóttu stigin þrjú í Vestmannaeyjum
Sólin skein og lognið var á smá hreyfingu þegar Eyjamenn tóku á móti gulklæddum KA mönnum á Hásteinsvelli í dag, í leik sem gestirnir unnu 0-3.

Besta-spáin 2022: Hetjur snúa heim í norður en uppbyggingin í Dalnum á enda
Íþróttadeild Vísis og Stöðvar 2 Sports spáir því að Þór/KA og Þróttur Reykjavík endi í 6. og 5. sæti Bestu deildar kvenna í sumar.

Þrjú D-deildarlið komust áfram í 32-liða úrslit
Átta leikir fóru fram í 2.umferð Mjólkurbikarsins í fótbolta víða um land í dag.

Besta-spáin 2022: Má ekki miklu muna í Mosó á meðan Eyjakonur vilja horfa upp töfluna
Íþróttadeild Vísis og Stöðvar 2 Sports spáir því að Afturelding og ÍBV endi í 8. og 7. sæti Bestu deildar kvenna í sumar.

Sjáðu upphitunarþáttinn fyrir Bestu deild kvenna
Helena Ólafsdóttir og sérfræðingar Bestu marka kvenna hituðu vel upp fyrir tímabilið í Bestu deild kvenna í sérstökum þætti í fyrradag.

Sandra og Arnar vekja athygli í strætóskýlum
Fyrsta leiktíðin í Bestu deildum karla og kvenna í fótbolta er hafin eða að hefjast og nýjar leiðir hafa verið farnar til að kynna deildirnar.

Ógnvænlegur sóknardúett nái þær að spila sig saman
Besta deild kvenna í fótbolta fer af stað á þriðjudaginn kemur, 26. apríl, með tveimur leikjum. Valskonur eiga titil að verja og það verður að segjast að liðið er ekki á flæðiskeri statt þegar kemur að sóknarþenkjandi leikmönnum.