Kauphöllin

Kauphöllin

Fréttir úr Kauphöllinni á Íslandi og af skráðum félögum á markaði.

Fréttamynd

Margar og þéttar greinar í uppgjörstrénu

Lykilpersónur íslenska bankahrunsins tengjast með einum eða öðrum hætti. Jón Aðalsteinn Bergsveinsson gerði tilraun til að rýna í tengslatréð og komst að því að greinarnar eru margar, flóknar og tengjast bæði fjölskyldu- og vinaböndum.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Kauphöllin og endurreisnin

Kauphöll er spegill efnahagslífsins. Þegar vel gengur leita kauphallarvísitölur upp en þegar blikur eru á lofti leita þær niður – og þegar virkilega á bjátar falla þær eins og steinar. Bankahrunið hér á landi hefur svo sannarlega birst í NASDAQ OMX kauphöllinni á Íslandi. Þannig er Úrvalsvísitalan nú 375 stig samanborið við um og yfir 4000 fyrir bankakreppu eftir því hvaða tími er valinn til viðmiðunar. Engin dæmi eru til um svona mikla lækkun meðal þróaðra þjóða í seinni tíð. Spegillinn sýnir því ekki fagra mynd um þessar mundir.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Er bannað að benda?

Miklu máli skiptir að geta verið í friði með sitt. Maður vill gjarnan geta rætt við lækninn sinn í trúnaði, sálfræðinginn eða lögfræðinginn. Nú og auðvitað bankann sinn.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Vilhjálmur skrifar AGS

„Ég mótmælti því að þessi gjaldeyrishöft væru sett. Áhrifin væru þveröfug við þau sem ætlast væri til,“ segir Vilhjálmur Egilsson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Lánuðu sjálfum sér

Nítján svonefndar stórar áhættuskuldbindingar voru hjá stóru bönkunum þremur, um síðustu áramót. Heildarfjárhæð þessara skuldbindinga var ríflega 930 milljarðar króna og um 95 prósent af eiginfjárgrunni bankanna.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Ráðherra orkumála?

Tilkynning forsætisráðherra um tólf aðgerðir til að bæta rekstrarumhverfi fyrirtækja vakti nokkra athygli í gær. Glöggir menn tóku þó eftir litlu atriði í tilkynningunni, sem kann að boða mikil tíðindi. Þar kemur nefnilega fram að iðnaðar- og orkumálaráðherra hafi átt sæti í nefndinni sem mótaði tillögurnar. Hefur sá ráðherratitill ekki sést áður í opinberum tilkynningum og þykir benda til þeirra áherslna sem Össur Skarphéðinsson vill beita sér fyrir í ráðuneytinu. Hefði ekki mátt bæta við olíumálaráðherra?

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Fjármagnsflótti, flot og bankaleynd

Íslenska krónan á sér formælendur fáa um þessar mundir eftir gríðarlegt gengisfall og setningu strangra fjármagnshafta henni til varnar. Það er því eðlilegt að nú sé hugað að því hvort heppilegt sé að landsmenn slái sína eigin mynt til framtíðar. Vandamálið í sinni einföldustu mynd er þó ekki krónan aðeins sjálf – þ.e. gengisáhætta.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Morðgátan um Kaupþing

Íslenskt stjórnkerfi ferðast á hraða snigilsins og fylgdi alls ekki eftir stækkun fjármálageirans í landinu á undanförnum árum. Ísland stóð á endanum uppi eitt og yfirgefið þegar neyðin var sem stærst. Þetta kom fram í máli Sigurðar Einarssonar, fyrrverandi stjórnarformanns Kaupþings, í erindi sem bar yfirskriftina Morðgátan um Kaupþing, sem hann flutti á fundi viðskiptaráðsins í Stokkhólmi í síðustu viku.

Skoðun
Fréttamynd

Stjörnuflug frá Lundúnum

„Við tókum að markaðssetja okkur í Bretlandi fyrir rúmu ári,“ segir Gísli Reynisson, stjórnarformaður Nordic Partners. Félagið hefur í rúm þrjú ár starfrækt einkaþotuleiguna IceJet.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Tólf spor í rétta átt

Forystumenn ríkisstjórnarinnar kynntu í gær tillögur vinnuhóps ráðherra, þingmanna og framkvæmdastjóra flokkanna sem starfað hefur að undanförnu og var ætlað að mæta vanda fyrirtækjanna í landinu í ljósi þeirra þrenginga sem þjóðin gengur nú í gegnum. Eru tillögurnar í tólf liðum og með þeim er að nokkru leyti brugðist við ákalli um bráðaráðstafanir til að afstýra gjaldþroti fjölmargra fyrirtækja með tilheyrandi aukningu á atvinnuleysi.

Skoðun
Fréttamynd

Evruskráning tefst enn um sinn

„Eins og reglur Seðlabankans um gjaldeyrisviðskipti eru núna þá eru þau hindrun fyrir skráningu hlutafjár í evrur," segir Einar Sigurjónsson, framkvæmdastjóri Verðbréfaskráningar Íslands.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Óhagkvæmni eða spilling

Hrun bankanna hefur í grundvallaratriðum breytt valdahlutföllum í íslensku viðskiptalífi. Ríkið á nú alla stóru bankana. Mörg fyrirtæki landsins skulda þessum ríkisbönkum meira en þau hafa burði til þess að borga. Ein stærsta ákvörðunin sem stjórnvöld standa frammi fyrir nú er hvaða leið þau ætla að velja til þess að taka á vanda skuldugra fyrirtækja. Hér þurfa stjórnvöld að hafa tvö markmið að leiðarljósi. Annars vegar er mikilvægt að þau leitist við að skapa skilyrði fyrir hámarks verðmætasköpun í hagkerfinu í framtíð. Hins vegar þurfa þau að leitast við að lágmarka spillingu. Það sem gerir þetta mál erfitt er að þessi tvö markmið stangast á að einhverju leyti.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Teva tekur Barr

Hluthafar í bandaríska samheitalyfjafyrirtækinu Barr Pharma­ceuticals samþykktu um helgina yfirtökutilboð írsaelska lyfjafyrirtækisins Teva.

Viðskipti erlent
Fréttamynd

Bankaleynd ekki aflétt

„Ef svo ólíklega vill til að leynd um einka- eða fjárhagsmálefni einstaklinga verða afnumin sem bersýnlega er andstæð ákvæðum stjórnarskrár um friðhelgi einkalífs og væntanlega einnig brot á tilskipun Evrópusambandsins um þagnarskyldu fjármálafyrirtækja mun bankinn synja um afhendingu gagna nema samkvæmt dómi Hæstaréttar og eftir atvikum niðurstöðu Evrópudómstólsins.“ Svo segir í svari Kaupþings við beiðni Markaðarins og Fréttablaðsins um gögn úr bankanum.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Glitnir kærir til FME

„Nýi Glitnir hefur tilkynnt Fjármálaeftirlitinu um meint brot á þagnarskylduákvæðum laga um fjármálafyritæki,“ segir Tómas Sigurðsson, yfirlögfræðingur bankans.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Af hverju bankaleynd

Athyglisverðum hugmyndum um grundvallarbreytingar á reglum réttarríkisins hefur verið hreyft síðustu daga hér á landi og jafnvel úr ólíklegustu áttum. Svo virðist sem sú staða sé komin upp, að ákvæði stjórnarskrár um eignarrétt eigi ekki lengur við, ekki heldur lög um bankaleynd og meðferð persónuupplýsinga.

Skoðun
Fréttamynd

Banakahólfið: Beðið eftir jólunum

„Svartsýnin er víða í því óvenjulega ástandi sem nú ríkir. Það sést á breyttum neysluvenjum fólks sem velur af kostgæfni hvað það snæðir, sérstaklega um hátíðir,“ segir Xavier Govare, forstjóri Alfesca.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Bankahólfið: Í vist hins opinbera

Eins og fram hefur komið hefur sænska ríkið tekið yfir fjárfestingarbankann Carnegie, sem að hluta var í eigu Íslendinga. Mikael Ericson, sem settist í forstjórastólinn í sumar, var sæmilega sáttur þrátt fyrir allt þegar Markaðurinn heyrði í honum, enda kominn í faðm sænska ríkisins. Óvíst er þó hvort honum líki vistin.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Hagvöxtur og hamingja

Vísindamenn hafa komist að þeirri niðurstöðu að hávaxið fólk sé að jafnaði með hærri laun en aðrir og að ljóshært kvenfólk standi verr að vígi en dökkhært. Þeir sem eru örvhentir hafa að jafnaði 15 prósenta hærri laun en rétthentir kollegar þeirra og myndarlegir menn eru jafnan tekjuhærri.

Skoðun
Fréttamynd

Næstu gjalddagar 2010

„Við erum ekki með gjalddaga á bakinu þar til árið 2010. Það er langur tími í dag,“ segir Björn Sigurðsson, framkvæmdastjóri afþreyingafyrirtækis­ins Senu. Hann segir fyrirtækið í góðri stöðu á íslenskum afþreyingarmarkaði.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Fjalla um fallið áður en yfir fennir

„Þetta verður stutt en snörp bók um mestu efnahagsumbrot í sögu lýðveldisins,“ segir Guðni Th. Jóhannesson sagnfræðingur, en hann vinnur nú að bók um sögu bankahrunsins. „Það hefur verið gríðarleg umræða um hrun bankanna í fjölmiðlum, og það hefur verið mjög erfitt fyrir fólk að fylgjast með hvað er að gerast og hafa yfirsýn yfir umræðuna og atburðarásina,“ segir Guðni.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Í daglegri skoðun

Svo gæti verið að viðskipti hefjist á allra næstu dögum, jafnvel í dag, með hlutabréf Existu, Spron og Straums, ef marka má þann orðróm sem barst víða um bankaheiminn í gær.

Viðskipti innlent