
Hipsumhaps og Dikta sameinast í nýju stuðningsmannalagi Álftnesinga
Það er allt fyrst á Álftanesi í ár og þar á meðal er nýtt lag sem varð til eftir samvinnu tveggja manna úr vinsælum hljómsveitum á Íslandi.
Fréttir af leikmönnum og liðum í körfubolta, bæði á Íslandi og erlendis.
Það er allt fyrst á Álftanesi í ár og þar á meðal er nýtt lag sem varð til eftir samvinnu tveggja manna úr vinsælum hljómsveitum á Íslandi.
Golden State Warriors mun tefla fram liði í WNBA-deildinni frá og með árinu 2025. WNBA hefur samþykkt umsókn Warriors og ákveðið þar með að fjölga liðum í deildinni.
Keflavík og Njarðvík eiga tvö af sigursælustu körfuboltafélögum landsins og viðureignir liðanna eru tveir af hápunktum hvers tímabils. Þess vegna vekja vangaveltur frá fyrrum formanni körfuknattleiksdeildar Njarðvíkur athygli.
Benedikt Guðmundsson, þjálfari Njarðvíkur, var ánægður með stigin tvö en var svekktur með frammistöðu liðsins eftir þriggja stiga sigur gegn Stjörnunni.
Höttur gerði sér lítið fyrir og lagði mikið breytt lið Grindavíkur í 1. umferð Subway-deildar karla í körfubolta. Gestirnir voru einfaldlega miklu betri en heimamenn og virtust hafa leikinn í hendi sér svo til allan tímann.
Grindvíkingar fóru flatt í fyrsta leik haustsins í Subway-deild karla í kvöld þegar liðið tapaði á heimavelli gegn Hetti 87-104. Heimamenn mættu fáliðaðir til leiks en Jóhann Þór Ólafsson, þjálfari liðsins, sagði að hans menn hefðu í raun grafið sína eigin gröf að þessu sinni.
Ívar Ásgrímsson, þjálfari Breiðabliks, var að vonum svekktur eftir stórt taps síns liðs gegn Haukum í Subway deild karla í dag.
Njarðvík hafði betur gegn Stjörnunni í 1. umferð Subway-deildar karla. Leikurinn var í járnum og þrátt fyrir að Njarðvík hafi verið töluvert betri í fjórða leikhluta fékk Arnþór Freyr Guðmundsson tækifæri til að jafna en klikkaði. Leikurinn endaði með sigri Njarðvíkur 91-88.
Nýliðar Hamars tóku á móti Keflavík í 1. umferð Subway-deildar karla í körfubolta. Eftir jafnan leik framan af þá höfðu gestirnir betur, lokatölur í Hverageri 103-111.
Eftir gott tímabil á síðustu leiktíð þá má segja að Haukar hafi byrjað tímabilið 2023-2024 í Subway-deild karla í fimmta gír. Liðið mætti í Smárann og kjöldró lánlausa Blika í 1. umferð deildarinnar.
Íslandsmeistarar Tindastóls eru úr leik í Evrópubikar FIBA. Þetta er ljóst þó enn sé einn leikur eftir af forkeppninni. Tindastóll endar í 2. sæti í sínum riðli með stigamun upp á -1 stig.
Joel Embiid, miðherji Philadelphia 76ers í NBA-deildinni í körfubolta, hefur ákveðið að spila fyrir Bandaríkin á Ólympíuleikunum á næsta ári en hann á rætur að rekja til Frakklands og Kamerún.
Subway deild karla í körfubolta hefst í kvöld og Vísir telur niður í mótið með því að spá fyrir um lokaröð liða deildarinnar næstu daga. Í dag er komið að lokakaflanum og þeim þremur liðum sem við teljum að muni berjast um deildarmeistaratitilinn í vetur.
Tindastóll eygir enn von um sæti í riðlakeppni Evrópubikarsins í körfuknattleik. Liðið getur ekki unnið sinn undanriðil en gæti engu að síður náð að framlengja Evrópuævintýri sitt.
Landsliðsmaðurinn Tryggvi Snær Hlinason átti góðan leik þegar lið hans Bilbao vann góðan sigur á Obradoiro í ACB-deildinni í körfubolta í kvöld.
Haukar unnu góðan sigur á Íslandsmeisturum Vals þegar liðin mættust að Hlíðarenda í Subway-deild kvenna í körfubolta í kvöld.
Haukar unnu sex stiga sigur gegn Val á útivelli 61-67. Bjarni Magnússon, þjálfari Hauka, var afar ánægður með varnarleik liðsins í kvöld.
Dregið var í 32-liða úrslit VÍS-bikarsins í körfuknattleik í dag. Stórleikur verður strax í fyrstu umferðinni en umferðin fer fram í lok október.
Lið Tindastóls tapaði gegn BC Trepca frá Kósóvó í undankeppni Evrópubikarsins í körfubolta en leikið var í Eistlandi í dag. Tapið þýðir að liðið á ekki möguleika á að komast í riðlakeppnina.
Subway deild karla í körfubolta hefst annað kvöld og Vísir telur niður í mótið með því að spá fyrir um lokaröð liða deildarinnar næstu daga. Í dag er komið að þeim þremur liðum sem við teljum að muni berjast um fjórða sætið og fá þar með heimavallarrétt í úrslitakeppninni næsta vor.
Tindastóll varð í gær fyrsta íslenska körfuboltaliðið til þess að vinna Evrópuleik í sautján ár.
Raquel Laneiro var að vonum ánægð með sigur síns liðs gegn Þór í Subway deild kvenna í kvöld. Laneiro átti sjálf stórleik í liði Fjölnis.
Suðurnesjaliðin þrjú, Keflavík, Njarðvík og Grindavík, unnu öll örugga sigra í viðureignum sínum í Subway-deild kvenna í körfubolta í kvöld.
Raquel Laneiro átti stórleik í liði Fjölnis er liðið vann sinn fyrsta sigur í Subway deild kvenna í kvöld gegn nýliðum Þórs.
Íslandsmeistarar Tindastóls eru aðeins einum sigri frá sæti í riðlakeppni Evrópubikarsins í körfubolta eftir sjö stiga sigur gegn eistneska liðinu Parnu í dag, 62-69.
Kevin Kone, nýr erlendur leikmaður karlaliðs Stjörnunnar í körfubolta, missir af upphafi tímabils í Subway deild karla eftir að hafa kjálkabrotnað þegar Adomas Drungilas, leikmaður Tindastóls, gaf honum olnbogaskot í æfingaleik liðanna á dögunum. Arnar Guðjónsson, þjálfari Stjörnunnar, segir meiðsli Kone bæta gráu ofan á svart fyrir liðið sem er ansi þunnskipað þessa stundina.
Subway deild karla í körfubolta hefst á fimmtudaginn kemur og Vísir telur niður í mótið með því að spá fyrir um lokaröð liða deildarinnar næstu daga. Í dag er komið að þeim þremur liðum sem við teljum að muni berjast um síðustu tvö sætin inn í úrslitakeppnina.
Jimmy Butler, leikmaður Miami Heat, fer óhefðbundnar leiðir þegar kemur að hárgreiðslum og útliti á fjölmiðladegi NBA-deildarinnar.
Íslenski körfuboltamaðurinn Orri Gunnarsson byrjar atvinnumannaferilinn vel með austurríska félaginu Swans Gmunden.
New York Liberty er komið í úrslitaeinvígi WNBA deildarinnar í körfubolta þar sem liðið mætir ríkjandi meisturum í Las Vegas Aces.