

Körfubolti
Fréttir af leikmönnum og liðum í körfubolta, bæði á Íslandi og erlendis.

Annar lykilmaður Tindastóls framlengir samning sinn
Sigtryggur Arnar Björnsson hefur skrifað undir nýjan samning við Íslandsmeistara Tindastóls í körfubolta og er nú á mála hjá liðinu til ársins 2025.

Íslandsmeistararnir framlengja við Drungilas
Adomas Drungilas hefur framlengt samning sinn við Íslandsmeistara Tindastóls til næstu tveggja ára. Drungilas var lykilmaður hjá liðinu í vetur.

Hannes kjörinn í stjórn FIBA Europe
Hannes S. Jónsson, framkvæmdastjóri KKÍ, var í gær kjörinn í stjórn FIBA Europe sem er Evrópuhluti Alþjóðakörfuknattleikssambandsins.

Úrslitaeinvígið blasir við Denver Nuggets
Denver Nuggets er komið í afar góða stöðu gegn Los Angeles Lakers í úrslitaeinvígi Vesturdeildar NBA eftir sigur í þriðja leik liðanna í Los Angeles í nótt. Denver leiðir 3-0 í einvíginu.

Elvar Már og félagar byrja undanúrslitin á sigri
Elvar Már Friðriksson setti niður fjögur stig og gaf 3 stoðsendingar í átta stiga sigri Rytast á Jonava í fyrsta leik liðanna í undanúrslitum efstu deildar Litháen í körfubolta í dag.

Grindavík fær Ólöfu Rún frá nágrönnunum
Grindavík hefur fengið Ólöfu Rún Óladóttur frá nágrönnum sínum í Keflavík. Ólöf Rún er uppalin í Grindavík og snýr heim fyrir næsta tímabil í Subway-deildinni.

Miami í góðri stöðu eftir frábæran endasprett
Miami Heat er komið í lykilstöðu í úrslitaeinvígi Austurdeildar NBA-deildarinnar eftir sigur í fyrstu tveimur leikjunum gegn Boston. Liðin leika næst í Miami.

Fékk afsökunarbeiðni frá KR eftir að hafa misst af verðlaunaafhendingu
Hulda Ósk Bergsteinsdóttir leikmaður KR í körfubolta var valin í lið ársins í 1. deild kvenna en missti af verðlaunaafhendingunni þar sem stjórn KR gleymdi að láta hana vita.

Hermann: Pavel er einstakur
Pavel Ermolinskij vann sinn níunda Íslandsmeistaratitil þegar hann stýrði Tindastóls til sigurs gegn Val á fimmtudagskvöld. Körfuknattleikssérfræðingurinn Hermann Hauksson segir Pavel vera einstakan.

Harlem Globetrotters kemur við á Íslandi
Sýningar- og skemmtiliðið Harlem Globetrotters mun leika listir sínar í Laugardalshöllinni í september næstkomandi. Liðið kom fyrst í heimsókn til Íslands árið 1982.

Spoelstra: Er líklega það besta sem hefur gerst fyrir NBA síðasta áratuginn
Erik Spoelstra er að gera frábæra hluti með lið Miami Heat í úrslitakeppni NBA-deildarinnar í ár. Flórídaliðið er nú komið í 1-0 á móti Boston Celtics í úrslitum Austurdeildarinnar.

Grindvíkingar bæta líka leikmönnum við kvennaliðið sitt
Grindvíkingar eru að safna liði í körfuboltanum þessa dagana og það á ekki bara við um karlalið félagsins sem hefur fengið marga öfluga leikmenn að undanförnu.

„Titillinn skipar mjög stóran sess í hjarta mínu, fjölskyldu minnar vegna“
Sigríður Inga Viggósdóttir, stuðningsmaður Tindastóls í húð og hár, er í skýjunum með árangur meistaraflokks karla í körfuknattleik sem lyfti fyrsta Íslandsmeistarabikarnum eftir spennuþrunginn leik gærkvöldsins.

Í fjórða skiptið sem Íslandsmeistaratitilinn vinnst á einu stigi í oddaleik
Tindastóll er Íslandsmeistari í fyrsta sinn eftir að hafa unnið fimmta og síðasta leik úrslitaeinvígis Subway deildar karla í körfubolta með minnsta mun. Spennan í úrslitaeinvíginu gat ekki verið meiri.

Kári og Eva Margrét valin best
Kári Jónsson úr Val og Eva Margrét Kristjánsdóttir úr Haukum voru í dag valin leikmenn ársins í Subway deildunum í körfubolta en KKÍ stóð þá fyrir árlegri verðlaunahátíð sinni fyrir úrvals- og fyrstu deildir.

Hlífar fékk gullið um hálsinn og tók svo til hendinni á Hlíðarenda
Fimmtán ára stuðningsmaður Tindastóls hlýtur mikið lof eftir framgöngu sína í gær í kjölfar oddaleiks Tindastóls og Vals. Hlífar er fyrirmyndar stuðningsmaður sem lagði sitt af mörkum með sjálfboðaliðum Vals.

Frægir Íslendingar í fínni sætum urðu vitni að sögulegum úrslitum
Þjóðþekktir Íslendingar voru áberandi við svokölluðum „courtside“ sætum sem í boði voru í Origohöllinni að Hlíðarenda í gær á oddaleik Vals og Tindastóls í úrslitum Subway deildar karla í körfubolta.

Níu titlar Pavels
Pavel Ermolinskij varð Íslandsmeistari á fyrsta ári sem þjálfari eftir að hafa endaði leikmannaferil sinn sem Íslandsmeistari ári fyrr.

Pavel gaf gullið sitt
Tindastóll varð í gærkvöldi Íslandsmeistari karla í körfuknattleik í fyrsta skipti eftir 82-81 sigur á Val í oddaleik að Hlíðarenda. Stólarnir fögnuðu vel og rækilega eftir leik og heppinn ungur stuðningsmaður fékk verðlaunapening Pavels Ermolinski, þjálfara Tindastóls.

Seinkaði Orlando ferðinni og varð Íslandsmeistari: Brotnaði niður á pallinum
Ef það var einhver Tindastólsmaður sem var búinn að bíða eftir að sá stóri kæmi á Krókinn þá væri það Herra Skagafjörður sem er búinn að vera með frá upphafi í þessu körfuboltaævintýri fyrir norðan.

Murray gerði út um vonir Lakers í fjórða leikhluta
Denver Nuggets er komið 2-0 yfir í einvígi sínu gegn Los Angeles Lakers í úrslitaeinvígi vesturdeildar NBA. Lokatölur næturinnar 108-103, Denver í vil.

Myndasyrpa | Stórkostleg skemmtun þegar Tindastóll varð Íslandsmeistari í fyrsta sinn
Tindastóll varð í gærkvöldi Íslandsmeistari í körfuknattleik í fyrsta skipti eftir sigur á Val í Origo-höllinni. Fögnuður leikmanna og stuðningsmanna í leikslok var ósvikinn.

Pétur Rúnar: Þetta er ósvikin gleði og ég á eiginlega engin orð til að lýsa þessu, bara takk!
Leikmenn Tindastóls áttu erfitt með að koma hugsunum sínum í orð strax eftir leik. „Ólýsanlegt“ var orð sem var þeim greinilega ofarlega í huga, en Pétur Rúnar Birgisson, sem var hágrátandi á verðlaunapallinum rétt fyrir viðtal, viðurkenndi fúslega að hann væri að upplifa mikla geðshræringu.

Umfjöllun, viðtöl og myndir: Valur - Tindastóll 81-82 | Tindastóll Íslandsmeistari eftir háspennuleik að Hlíðarenda
Tindastóll varð í kvöld Íslandsmeistari karla í körfuknattleik í fyrsta skipti eftir 82-81 sigur á Val í oddaleik að Hlíðarenda.

Finnur: Við erum bara mjög stoltir af tímabilinu
„Þetta er bara sportið sem maður valdi sér. Stundum vinnur maður og stundur tapar þú í þessu. Mér fannst við gera nóg hérna undir lok til að vinna. Stólarnir búnir að vera mjög góðir allan leikinn og þetta var bara 50/50 allan tímann. Svo gera þeir vel að koma til baka, Woods setur stór víti trekk í trekk og var svona kannski bara maðurinn.“

Skagfirðingar fagna með balli í Miðgarði í Varmahlíð
Nýkrýndir Íslandsmeistarar Tindastóls verða hylltir í hinu fornfræga félagsheimili Skagfirðinga, Miðgarði í Varmahlíð, annaðkvöld, föstudagskvöld. Þar verður uppskeruhátíð og sveitaball.

Twitter fór á hliðina þegar Stólarnir unnu: Stytta af Pavel á Króknum
Það var mikið um að vera á Twitter á meðan á leikur Vals og Tindastóls fór fram í kvöld. Það er óhætt að segja að margir hafi samglaðst leikmönnum Tindastóls eftir að þeir tryggðu sér Íslandsmeistaratitilinn.

Pavel: Vildi fá að vera farþegi í þessu sem er að eiga sér stað núna
Pavel Ermolinskij, þjálfari Tindastóls, var hálf agndofa yfir stuðningsmönnum Tindastóls sem fögnuðu eins og óðir væru eftir að fyrsti Íslandsmeistaratitill félagsins var í höfn. Pavel sagði ekki ljóst hvort hann yrði áfram þjálfari liðsins.

Axel: Þetta er ólýsanleg tilfinning
Axel Kárason hefur marga fjöruna sopið með Tindastól á sínum ferli en líkt og aðrir Skagfirðingar var hann að fagna Íslandsmeistaratitlinum í fyrsta skipti í kvöld.

Jón Axel og félagar enn á lífi í úrslitakeppninni
Lið Pesaro vann góðan sigur á Milan í úrslitakeppni ítalska körfuboltans í kvöld. Staðan í einvíginu er 2-1 fyrir Milan en þrjá leiki þarf til að komast áfram í undanúrslit.