

Fréttir af leikmönnum og liðum í körfubolta, bæði á Íslandi og erlendis.
Doc Rivers, þjálfari Los Angeles Clippers, hélt hjartnæma og áhrifamikla einræðu um ástandið í Bandaríkjunum eftir sigur liðsins í úrslitakeppni NBA-deildarinnar í nótt.
Söfnunin fyrir körfuknattleikskonuna Berglindi Gunnarsdóttur tókst frábærlega en hápunktur hennar var mjög vel heppnuð hlaupahátíð í bænum hennar Stykkishólmi um síðustu helgi.
Umdeilt atvik átti sér stað í úrslitakeppni NBA-deildarinnar í nótt þegar leikmaður Los Angeles Clippers steig á ökkla Luka Doncic. Var þetta viljandi eða ekki?
Frábær frammistaða Jamal Murray kom öðru fremur í veg fyrir að Utah Jazz kæmist áfram í úrslitakeppni NBA-deildarinnar í körfubolta í nótt en Los Angeles Clippers er aftur komið yfir í einvígi sínu eftir stórsigur á Dallas Mavericks.
Green Bay Packers og Milwaukee Bucks eru meðal íþróttafélaga í Wisconsin-ríki í Bandaríkjunum sem hafa kallað eftir breytingum í samfélaginu í kjölfar þess að lögreglan skaut enn og aftur svartan mann.
Það er við hæfi að hér eftir þurfi fólk að keyra veginn hans Kobe Bryant til þess að komast að Staples Center.
LeBron James talaði um stöðu síns fólks í Bandaríkjunum og komandi kosningar í nóvember í viðtali eftir stórleik sinn og Lakers liðsins í nótt.
Leikmenn Los Angeles Lakers heiðruðu Kobe Bryant í nótt með því að yfirspila Portland Trail Blazers í úrslitakeppni NBA-deildarinnar og komast í 3-1 í einvígi liðanna.
Haukar hafa fengið Austin Magnús Bracey til liðs við sig en hann kemur frá Val.
Önnur af stórstjörnum Los Angeles Clippers hefur alls ekki fundið taktinn gegn Dallas Mavericks í úrslitakeppni NBA-deildarinnar í körfubolta.
Luka Doncic átti enn einn stórleikinn í úrslitakeppni NBA í nótt þegar Dallas jafnaði sitt einvígi, Utah komst í lykilstöðu og bæði Boston Celtics og meistarar Toronto Raptors komust áfram í næstu umferð.
LeBron James er búinn finna taktinn með Los Angeles Lakers sem tapaði óvænt fyrir Portland Trail Blazers í fyrstu umferð úrslitakeppni NBA-deildarinnar.
Los Angeles Lakers, Milwaukee Bucks, Miami Heat og Oklahoma City Thunder unnu öll í úrslitekeppni NBA-deildarinnar í körfubolta í nótt.
Alls fóru fjórir leikir fram í úrslitakeppni NBA-deildarinnar í körfubolta í nótt. Toronto Raptors og Boston Celtics eru komin 3-0 yfir í einvígum sínum og þurfa aðeins einn sigur til viðbótar. Utajh Jazz og Los Angeles Clippers eru 2-1 yfir.
Einn nýrra leikmanna Njarðvíkur í Domino´s deild karla er á leið til Íslands og birti áhugaverða mynd úr flugvélinni þar sem hann virðist vera Palli einn í heiminum.
Los Angeles Lakers vann sinn fyrsta leik í úrslitakeppni síðan árið 2012 er þeir jöfnuðu metin gegn Portland Blazers í 1. umferðinni.
Luka Doncic gerði 28 stig er Dallas jafnaði metin í 1-1 gegn LA Clippers í úrslitakeppni NBA-deildarinnar. Lokatölur 127-114.
Ástæðan fyrir óvæntu tapi Los Angeles Lakers gegn Portland Trail Blazers í úrslitakeppni NBA-deildarinnar í körfubolta var einföld að mati LeBron James.
Berglind Gunnarsdóttir, landsliðskona í körfubolta, ræddi við Svövu í Sportpakka kvöldsins um slysið sem hún lenti í upphafi árs. Skyldi það hana eftir lamaða fyrir neðan axlir.
Körfuknattleiksdeild Fjölnis tilkynnti í dag að kvennalið félagsins hefði samið við tvo nýja leikmenn sem munu leika með liðinu í Dominos-deild kvenna á næsta tímabili.
Portland Blazers gerðu sér lítið fyrir og skelltu toppliði vesturdeildarinnar, LA Lakers, í fyrsta leik liðanna í úrslitakeppninni.
Tveimur af fjórum leikjum kvöldsins, og næturinnar, í úrslitakeppni NBA-deildarinnar er nú lokið. Lauk þeim báðum með 12 stiga sigrum.
Friðrik Pétur Ragnarsson og Sverrir Þór Sverrisson eiga það sameiginlegt að hafa gert Njarðvíkurlið að Íslandsmeisturum. Þeir snúa líka báðir aftur í þjálfun hjá Njarðvík í vetur.
Úrslitakeppni NBA-deildarinnar hófst í nótt með fjórum leikjum en í stórleiknum hafði Denver betur gegn Utah.
Fyrsta leik úrslitakeppni NBA-deildarinnar er lokið með tíu stiga sigri Denver Nuggets á Utah Jazz í framlengdum leik.
Úrslitakeppnin NBA-deildarinnar í körfubolta hefst í kvöld með fjórum leikjum.
Pétur Ingvarsson er orðinn aðalþjálfari karlaliðs Breiðabliks í körfubolta á nýjan leik eftir að hafa stigið til hliðar í lok mars.
Komist Los Angels Lakers liðið áfram upp úr fyrstu umferð úrslitakeppni NBA-deildarinnar í körfubolta þá munu þeir spila í sérstakri treyju til minningar um Kobe Bryant.
Portland Trail Blazers tryggði sér sæti í úrslitakeppni NBA-deildarinnar í körfubolta eftir fjögurra stiga sigur á Memphis Grizzlies í kvöld.
Damian Lillard, leikmaður Portland Trail Blazers, hefur verið valinn verðmætasti leikmaður NBA-kúlunnar svokölluðu.