
Eftirför í Mosfellsbæ
Lögregluþjónar veittu manni eftirför þegar hann sinnti ekki stöðvunarmerkjum lögreglu á Vesturlandsvegi í tíunda tímanum í gærkvöldi.
Fréttir af verkefnum lögreglunnar á Íslandi.
Lögregluþjónar veittu manni eftirför þegar hann sinnti ekki stöðvunarmerkjum lögreglu á Vesturlandsvegi í tíunda tímanum í gærkvöldi.
63 ára karlmaður hefur verið ákærður fyrir kynferðislega áreitni með því að hafa laugardagskvöldið 4. ágúst 2018 strokið kynfæri stúlku utan klæða. Stúlkan sem þá var átján ára gat litla mótspyrnu veitt sökum ölvunar.
Síðast var vitað um ferðir konunnar á miðvikudagskvöld.
Ellefu tilkynningar hafa borist lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu það sem af er degi vegna gruns um brot á sóttvarnareglum sem tóku gildi á miðnætti í nótt. 56 greindust með kórónuveiruna innanlands í gær.
Flytja þurfti einn á sjúkrahús í nótt vegna heimilisofbeldis. Fjórar tilkynningar hafa borist um heimilisofbeldi síðasta sólarhringinn. Yfirlögregluþjónn segir málin á frumstigi rannsóknar.
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hafði í þó nokkur horn að líta í gærkvöldi og í nótt.
Eyþór Víðisson, öryggis- og löggæslufræðingur, segir einu réttu viðbrögðin við vopnuðu ráni vera að hlýða þeim sem ógnar manni.
Ungt par sem lenti í vopnuðu ráni í Sólheimum á móti Langholtskirkju í gærkvöldi er í áfalli eftir árásina.
Víðir Reynisson yfirlögregluþjónn segir fólk almennt virða reglur um einangrun og sóttkví hér á landi. En auðviðað séu þó dæmi þess að slíkt sé ekki virt.
Karlmaður sem leitað var að í Stafafellsfjöllum frá því í gærkvöldi fannst um ellefuleytið í morgun heill á húfi. Maðurinn hafðist við í neyðarskýli í nótt en smalar fundu hann eftir að birta tók og komu honum í hendur björgunarsveitarmanna. Maðurinn og björgunarsveitin eru rétt ókomin til Hafnar í Hornafirði.
Lögregla á höfuðborgarsvæðinu þurfti í morgun að hafa afskipti af karlmanni á ferðinni í Mosfellsbæ sem vitað var að var smitaður af Covid-19.
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu leitar tveggja manna vegna rannsóknar á ráni í Sólheimum við Langholtskirkju á níunda tímanum í gærkvöldi.
Maðurinn sem leitað hefur verið að í Stafafellsfjöllum frá því í gærkvöldi er fundinn heill á húfi.
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu handsamaði í dag svan, líkt og það er orðað í dagbókarfærslu lögreglunnar. Svanurinn reyndist vængbrotinn eftir að ekið hafði verið á hann.
Björgunarsveitir á Suðausturhorninu og á Austfjörðum leita nú að manni í Stafafellsfjöllum í Lóni. Þyrla Landhelgisgæslunnar aðstoðar við leitina.
Talið er að eldur sem kviknaði í íbúðarhúsi við Arakór í Kópavogi síðdegis í gær hafi kviknað út frá lampa.
Lögregla á höfuðborgarsvæðinu var kölluð út vegna manns sem væri að stela áfengi í verslun ÁTVR í austurbæ Reykjavíkur um klukkan 11 í morgun.
Lögreglan á Spáni hefur handtekið íslenskan karlmann búsettan í Danmörku sem grunaður er um að hafa misnotað dóttur sína kynferðislega.
Lögreglan á Norðurlandi eystra hefur unnið að smitrakningu á Akureyri vegna smits sem kom upp í gærkvöldi sem tengist veitingastaðnum Berlín við Skipagötu.
Karlmaður á sextugsaldri liggur enn á sjúkrahúsi eftir að hafa orðið fyrir líkamsárás í Borgarnesi á mánudag í síðustu viku.
Faraldur kórónuveirunnar og áhrif hans á samfélagið hafa þó tafið fyrir rannsókn á líkamsárásum í miðbæ Reykjavíkur í lok ágúst.
Á fjórða tug íslenskra karlmanna er til rannsóknar lögreglu fyrir vörslu barnaníðsefnis. Sumir eru fjölskyldumenn. Myndirnar hlaupa á hundruðum þúsunda og sýna margar þeirra grófar nauðganir á börnum allt niður í nokkurra mánaða gömlum. Í Kompás er rætt við rannsakendur málanna, spurt hvers eðlis brotin eru og hvernig það sé að þurfa að skoða þessar hræðilegu myndir.
Lögreglan á Vesturlandi hefur hafið rannsókn bjórsölu sem eigandi brugghússins Steðja í Borgarfirði stendur að en hann hefur sett upp netverslun þar sem átta tegundir bjórs eru til sölu.
Þrír eru í haldi lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu eftir líkamsárás í nótt þar sem eggvopni var beitt.
Lögreglan á Norðurlandi eystra fór meðal annars fram á gæsluvarðhald yfir manni búsettum í Hrísey sem grunaður er um fjölmörg ofbeldisbrot til þess að stöðva afbrotahrinu hans, sem lögreglan segir að virðist hafa verið orðin stjórnlaus.
Karlmaður sem gekk berserksgang á heilsugæslunni á Reyðarfirði í ágúst á síðasta ári hefur verið ákærður.
Málið er nú í höndum lækna, sem kanna hvort veikindi barnsins hafi valdið því að það missti meðvitund á leikskólanum Álfasteini í Hörgársveit á föstudag.
Einar Valur Kristjánsson, framkvæmdastjóri Hraðfrystihússins Gunnvarar sem gerir út frystitogarann Júlíus Geirmundsson, nýtur traust stjórnar til að takast á við þau verkefni sem eru fram undan.
Ekki eru vísbendingar um að saknæmt athæfi hafi átt sér stað í tengslum við húsbílabruna í Grafningi í byrjun þessa mánaðar.
Lögreglan á Vestfjörðum mun ræða við áhöfn frystitogarans Júlíusar Geirmundssonar.