

Meistaradeildin
Keppni hinna bestu í Evrópu.
Leikirnir

Umfjöllun, viðtöl og myndir: Víkingur-Malmö 3-3 | Víkingar geta borið höfuðið hátt
Víkingar eru úr leik í Meistaradeild Evrópu eftir ótrúlega tvo leiki gegn Svíþjóðarmeisturum Malmö heima og að heiman. Víkingar fara nú í undankeppni Sambandsdeildar Evrópu og geta borið höfuðið hátt eftir frábærar frammistöður gegn jafn sterkum mótherja og raun bar vitni.

„Ég bað um frammistöðu sem yrði okkur til sóma og ég fékk hana“
„Er í fyrsta lagi stoltur af mínum drengjum,“ sagði Arnar Gunnlaugsson, þjálfari Víkings eftir ótrúlegt 3-3 jafntefli við Malmö í undankeppni Meistaradeildar Evrópu. Malmö fer áfram með 6-5 sigri samanlagt en Íslands- og bikarmeistarar Víkings gáfu sænsku meisturunum heldur betur leik, og einvígi.

Liverpool býður börnum sem mættu á úrslitaleikinn í París frítt á völlinn
Enska úrvalsdeildarfélgaið Liverpool mun bjóða börnum, og forráðamönnum þeirra, sem mættu á úrslitaleik Meistaradeildar Evrópu að koma frítt á völlinn er liðið tekur á móti Strasbourg í vináttuleik á Anfield.

Víkingar allra landsmanna eiga erfitt verkefni fyrir höndum
Víkingur mætir Malmö í síðari leik liðanna í undankeppni Meistaradeildar Evrópu í kvöld. Víkingar eiga á brattan að sækja eftir fyrri leikinn gegn Svíþjóðarmeisturunum en einvígið er vel á lífi þökk sé marki ofur-varamannsins Helga Guðjónssonar undir lok leiks ytra.

Sagði að Malmö þyrfti að einbeita sér að litlu atriðunum og að Ísland væri hans annað heimili
Miloš Milojević, þjálfari Malmö, var mættur á sinn gamla heimavöll er hann ræddi við fjölmiðla á blaðamannafundi fyrir leik Víkings og Malmö í undankeppni Meistaradeildar Evrópu í dag.

Einn af stærstu leikjum í sögu félagsins
Víkingur tekur á móti sænska stórliðinu Malmö í forkeppni Meistaradeildar Evrópu á morgunn. Malmö leiðir einvígið með einu marki eftir 3-2 sigur í fyrri leiknum. Leikurinn á morgun verður sá stærsti í sögu Víkings samkvæmt Arnari Gunnlaugssyni, þjálfara liðsins.

Ferdinand kemur Ronaldo til varnar
Rio Ferdinand, fyrrum leikmaður Manchester United, segist skilja gremju Cristiano Ronaldo vel og segir að hann sjálfur væri óánægður hjá félaginu ef það væri í sömu stöðu og það er í dag, á hans tíma hjá Manchester United.

Alfons spilaði allan leikinn í þægilegum sigri
Alfons Sampsted, lék allan leikinn í stöðu hægri bakvarðar, þegar lið hans Bodø/Glimt vann sannfærandi 3-0 sigur gegn KÍ frá Klaksvík í fyrri leik liðanna í undankeppni Meistaradeildar Evrópu í fótbolta karla í Bodø í dag.

Mörk, rautt spjald og dramatík er Víkingur hélt Evrópudraumnum á lífi
Íslands- og bikarmeistarar Víkings mættu Svíþjóðarmeisturum Malmö ytra í fyrri leik liðanna í undankeppni Meistaradeildar Evrópu í fótbolta á þriðjudag. Mörkin úr 3-2 sigri Malmö má sjá hér að neðan sem og rauða spjaldið sem Kristall Máni Ingason fékk fyrir að „ögra“ stuðningsfólki Malmö eftir að hann jafnaði metin í fyrri hálfleik.

Segir að Kristall kunni ekki reglurnar
Í 3-2 tapi Víkings gegn Malmö í 1. umferð forkeppni Meistaradeildar Evrópu í gær lét Kristall Máni Ingason reka sig af velli eftir að hann jafnaði metin í 1-1 fyrir Íslandsmeistarana og sussaði á áhorfendur. Ola Toivonen, leikmaður sænska liðsins, segir að Kristall kunni líklega ekki reglurnar.

Segir Milos hafa kennt sér að sussa í Rimaskóla
Jasmín Erla Ingadóttir, leikmaður kvennaliðs Stjörnunnar í fótbolta, er ein þeirra sem leggur orð í belg vegna ákvörðunar moldóvsks dómara leiks Malmö og Víkings um að áminna bróður hennar, Kristal Mána Ingason í annað skipti í leiknum fyrir að sussa á stuðningsmenn sænska liðsins eftir að hann skoraði jöfnunarmark Fossvogsliðsins.

Víkingur sýndi mikinn karakter eftir vafasama dómgæslu
Víkingur gerði sér ferð til Svíþjóðar og mætti Malmö í Meistaradeild Evrópu í fótbolta karla í kvöld. Malmö fór með 3-2 sigur af hólmi en Kristall Máni Ingason fékk sitt annað gula spjald og þar með rautt á 40. mínútu eftir að hafa jafnað leikinn og sussað á stuðningsmenn Malmö er hann fagnaði marki sínu.

Arnar reyndi að fá Kára til að taka skóna af hillunni: „Ekki í myndinni“
Vegna manneklu Íslands- og bikarmeistara Víkings í öftustu línu bað Arnar Gunnlaugsson, þjálfari liðsins, miðvörðinn fyrrverandi Kára Árnason að taka skóna af hillunni. Kári starfar í dag sem yfirmaður knattspyrnumála hjá Víkingum.

Víkingar mæta til Malmö með sjálfstraustið í botni
Íslands- og bikarmeistarar Víkings mæta Malmö ytra í undankeppni Meistaradeildar Evrópu í dag. Víkingar mæta fullir sjálfstrausts í leikinn, sem er sýndur beint á Stöð 2 Sport, eftir átta sigurleiki í röð.

McLagan missir af leikjunum við Malmö
Stórt skarð hefur verið hoggið í lið Víkings fyrir viðureign þeirra við Malmö í 1. umferð forkeppni Meistaradeildar Evrópu. Varnarmaðurinn Kyle McLagan mun missa af leikjunum við Malmö sem og tveimur leikjum í Bestu deild karla.

Thibaut Courtois kominn með nýtt húðflúr tileinkað sigrinum á Liverpool
Belgíski markvörðurinn Thibaut Courtois var öðrum fremur maðurinn á bak við fjórtánda sigur Real Madrid í Evrópukeppni meistaraliða en hann var stórkostlegur í 1-0 sigri Real Madrid á Liverpool í úrslitaleiknum í París í maílok.

Forseti UEFA nennir ekki að hlusta á vælið í Guardiola og Klopp lengur
Aleksander Čeferin, forseti Knattspyrnusambands Evrópu, hefur fengið sig fullsaddan af kvarti og kveini Pep Guardiola, þjálfara Englandsmeistara Manchester City, og Jürgen Klopp, þjálfara Liverpool.

Umfjöllun, myndir og viðtöl: Inter - Víkingur 0-1 | Kristall Máni tryggði Víkingi farseðilinn til Malmö
Íslandsmeistarar Víkings unnu torsóttan sigur þegar liðið mætti Inter Escaldes frá Andorra í úrslitaleik forkeppni Meistaradeildar Evrópu í fótbolta karla á Víkingsvellinum í kvöld.

Mætir Arnari 23 árum eftir að hann mætti honum inni á vellinum
Íslands- og bikarmeistarar Víkings mæta Inter Club d'Escaldes frá Andorra í úrslitaleik um sæti í 1. umferð forkeppni Meistaradeildar Evrópu í Víkinni í kvöld. Í liði gestanna er einn allra reyndasti fótboltamaður heims.

Pablo Punyed: Betri á pappír en allt getur gerst í fótbolta
Víkingur kjöldróg Levadia frá Tallinn í undanúrslitum forkeppni Meistaradeildar Evrópu fyrr í kvöld. Pablo Punyed stjórnaði miðjunni og leik sinna manna af einstakri list, lagði upp tvö mörk og var einn af mönnum leiksins.

Umfjöllun, myndir og viðtöl: Levadia - Víkingur 1-6 | Víkingar skrefi nær undankeppni Meistaradeildarinnar
Víkingur mætti fullt af orku út í leikinn og voru mikið meira með boltann allan leikinn í dag þegar þeir rúlluðu yfir Levadia Tallin í undanúrslitum forkeppni Meistaradeildar Evrópu. Leikar enduðu 6-1 fyrir þá rauðsvörtu úr Fossvoginum og gat þetta ekki farið betur.

„Bæði lið eiga að líta á þennan leik á eftir sem úrslitaleik“
Íslandsmeistarar Víkings taka á móti eistneska liðinu Levadia Tallin í undanúrlslitum umspilsins um laust sæti í forkeppni Meistaradeildar Evrópu í kvöld. Arnar Gunnlaugsson, þjálfari liðsins, kveðst spenntur fyrir verkefninu og segir að um hálfgerðan úrslitaleik sé að ræða.

Inter Escaldes í úrslit á Víkingsvelli
Inter Escaldes frá Andorra leikur til úrslita í umspili um sæti í forkeppni Meistaradeildar Evrópu eftir 2-1 sigur gegn La Fiorita frá San Marínó. Í kvöld kemur svo í ljós hvort Íslandsmeistarar Víkings eða eistneska liðið Levadia Tallin verður andstæðingur þeirra.

Hafa aldrei unnið Evrópuleik en ætla að breyta því í kvöld
Íslands- og bikarmeistarar Víkings hafa ekki unnið Evrópuleik. Víkingur mætir Levadia Tallinn í kvöld og stefnir á að breyta þeirri staðreynd.

Dagskráin í dag: Evrópa og Besta-deildin
Það eru fjórir fótboltaleikir í beinni útsendingu á sport rásum Stöðvar 2 í tveimur mismunandi keppnum sem báðar fara fram á Íslandi. Stúkan verður svo að sjálfsögðu í beinni útsendingu til að gera upp daginn.

Áttu að vera upplifa drauminn en héldu að þau myndu deyja
Að fara á úrslitaleik Meistaradeildar Evrópu í fótbolta ætti að vera góð skemmtun en fyrir stuðningsfólk Liverpool reyndist það hreint helvíti. Morðhótanir, piparúði og troðningur bættist ofan á tap Liverpool.

Mismunandi og miserfiðar leiðir sem Víkingur getur farið
Víkingur frá Reykjavík tekur þátt í forkeppni fyrir undankeppni Meistaradeildar Evrópu í fótbolta í næstu viku. Ljóst er að Víkingar eiga fram undan Evrópueinvígi sama hvernig fer, en mögulegir andstæðingar eru breytilegir eftir því hversu langt þeir komast.

Víkingar myndu mæta sínum gamla þjálfara
Ef að Íslands- og bikarmeistarar Víkings komast í gegnum forkeppnina í Meistaradeild Evrópu í fótbolta bíður þeirra slagur við sænska meistaraliðið Malmö.

Biðst afsökunar á að hafa beitt táragasi á stuðningsmenn Liverpool
Lögreglustjóri Parísar hefur beðist afsökunar á að táragasi hafi verið beitt á stuðningsfólk Liverpool fyrir leik liðsins gegn Real Madríd í úrslitum Meistaradeildar Evrópu. Leiknum lauk með 1-0 sigri Real.

Víkingur mætir Levadia í forkeppni Meistaradeildarinnar
Víkingur mætir Levadia Tallinn í undanúrslitum í forkeppni Meistaradeildar Evrópu í Víkinni í Fossvogi þann 21. júní næstkomandi. Liðið þarf að vinna þann leik og úrslitaleik þremur dögum síðar til að komast í undankeppni Meistaradeildarinnar.