

Keppni hinna bestu í Evrópu.
Pep Guardiola, knattspyrnustjóri Manchester City, var kaldhæðinn í svörum er hann var spurður út í ákvarðanir hans í stórum leikjum í Meistaradeild Evrópu.
Karim Benzema skaut stórstjörnulið Paris Saint Germain út úr Meistaradeildinni á dögunum þegar hann skoraði þrennu á aðeins sautján mínútum.
Evrópumeistarar Chelsea mæta Real Madrid í átta liða úrslitum Meistaradeildar Evrópu. Dregið var í átta liða og undanúrslit keppninnar í Nyon í Sviss í dag.
Síðasti dráttur tímabilsins í Meistaradeildinni fer fram í dag því þá mun koma í ljós hvaða leið átta bestu liðin þurfa að fara ætli þau sér að komast í úrslitaleikinn.
Pressan á Massimiliano Allegri, knattspyrnustjóra Juventus, mun aukast til muna eftir afar óvænt 0-3 tap liðsins á heimavelli gegn Villarreal í 16-liða úrslitum Meistaradeildarinnar.
Þrátt fyrir öll lætin utan vallar þá virðist það lítið hafa áhrif á spilamennsku Chelsea. Chelsea vann í kvöld þriðja leikinn í röð eftir að eignir Roman Abramovich, eiganda Chelsea, voru frystar. Chelsea vann 1-2 útisigur á Lille og þar með 1-4 samanlagðan sigur úr leikjunum tveimur.
David de Gea og félagar í Manchester United duttu út úr Meistaradeildinni á heimavelli sínum í gærkvöldi. Spænski markvörðurinn segir liðið vera langt frá því að geta keppt um titlana í ensku úrvalsdeildinni og í Meistaradeildinni. Að hans mati er þetta enn eitt „slæma árið“.
Ralf Rangnick, bráðabirgðastjóri Manchester United, var eðlilega niðurlútur eftir að liðið féll úr leik í Meistaradeild Evrópu eftir 1-0 tap á heimavelli gegn Atlético Madrid í gær.
Portúgalska liðið Benfica er komið í átta liða úrslit Meistaradeildar Evrópu eftir 1-0 sigur gegn Ajax í kvöld.
Spánarmeistarar Atlético Madrid eru á leið í átta liða úrslit Meistaradeildar Evrópu eftir 1-0 útisigur gegn Manchester United á Old Trafford í kvöld.
Manchester United endurheimtir Bruno Fernandes fyrir leikinn mikilvæga á móti Atletico Madrid í sextán liða úrslitum Meistaradeildarinnar í kvöld.
Lionel Messi og Neymar voru að spila á heimavelli í gær en hafa sjaldan fengið verri móttökur en á þessu sunnudagseftirmiðdegi í París.
Heiðursstúkan er þáttur sem verður einu sinni í viku á Vísi en fimmti þátturinn er nú kominn inn á vefinn.
Þegar Karim Benzema setur skóna upp í hillu, sem ekkert bendir til að verði á næstunni, verða mínúturnar sautján gegn Paris Saint-Germain kannski stærsta varðan á ferli hans.
Evrópska knattspyrnusambandið UEFA rannsakar nú hegðun forseta Paris Saint-Germain, Nasser Al-Khelaifi, og íþróttastjóra liðsins, Leonardo, eftir að þeir félagar létu öllum illum látum eftir að liðið féll úr leik í Meistaradeild Evrópu á miðvikudagskvöldið.
Gærkvöldið var ekki kvöld franska stórliðsins Paris Saint Germain sem enn á ný mistókst að fara alla leið í Meistaradeildinni. Nú ekki lengra en í sextán liða úrslitin.
Real Madrid er komið í átta liða úrslit Meistaradeildarinnar í fótbolta eftir 3-1 endurkomusigur á Paris Saint Germain á Santiago Bernabeu í gærkvöldi.
Pep Guardiola, knattspyrnustjóri Manchester City, segir lið sitt ekki óttast það að mæta liði úr ensku úrvalsdeildinni þegar dregið verður í átta liða úrslit Meistaradeildarinnar.
Forráðamenn Paris Saint-Germain voru öskuillir eftir leik Real Madrid og Paris Saint-Germain í Meistaradeildinni í gærkvöldi þar sem Real sló PSG út.
Örlög Mauricio Pochettino hjá PSG virðast endanlega ráðin eftir að liðið féll enn á ný snemma úr leik í Meistaradeild Evrópu í fótbolta, með tapinu gegn Real Madrid í 16-liða úrslitum í gær.
Pep Guardiola, knattspyrnustjóri Manchester City, var ánægður að vera kominn áfram í 8-liða úrslit Meistaradeildarinnar eftir samanlagðan 5-0 sigur á Sporting frá Lisbon. Guardiola hrósaði sérstaklega hinum 36 ára gamla þriðja markverði liðsins, Scott Carson.
Þrenna Benzema skilaði Real Madrid áfram í 8-liða úrslit Meistaradeildar Evrópu í fótbolta eftir 3-1 sigur Real Madrid á Paris Saint-Germain.
Þrenna Benzema skilaði Real Madrid áfram í 8-liða úrslit Meistaradeildar Evrópu í fótbolta eftir 3-1 sigur Real Madrid á Paris Saint-Germain.
Manchester City þurfti ekki að hafa fyrir hlutunum í seinni viðureign sinni gegn Sporting sem endaði með markalausu jafntefli á Etihad vellinum.
Joan Laporta, forseti Barcelona, horfði á eftir Lionel Messi fara frá Barcelona á sínu fyrsta ári í formannsstólnum en segist samt ekki sjá eftir neinu.
Arsene Wenger, fyrrum knattspyrnustjóri Arsenal, var allt annað en sáttur þegar hans gamli lærisveinn, Alexis Sanchez, var rekinn af velli í seinni leik Liverpool og Internazionale í sextán liða úrslitum Meistaradeildarinnar í gær.
Mohamed Salah, framherji Liverpool, var nokkuð kátur eftir leik liðsins gegn Inter í Meistaradeild Evrópu. Þrátt fyrir tap fór liðið áfram í átta liða úrslit og Salah segir það vera það mikilvægasta.
Liverpool er á leið í átta liða úrslit Meistaradeildar Evrópu þrátt fyrir 1-0 tap gegn Ítalíumeisturum Inter í kvöld. Liverpool vann fyrri leik liðanna 2-0 og fer því áfram eftir samanlagðan 2-1 sigur.
Þýsku meistararnir í Bayern München unnu afar sannfærandi 7-1 sigur gegn austurríska félaginu Red Bull Salzburg í síðari leik liðanna í 16-liða úrslitum Meistaradeildar Evrópu í kvöld.
Kylian Mbappé, framherji franska stórliðsins Paris Saint-Germain, verður í leikmannahópi Parísarliðsins gegn Real Madrid í Meistaradeild Evrópu á morgun þrátt fyrir að hafa meiðst á æfingu í vikunni.