
Mestar líkur á að Liverpool og Man. City dragist á móti Atletico Madrid í dag
Í dag kemur í ljós hvaða lið munu mætast í sextán liða úrslitum Meistaradeildarinnar en fjögur ensk lið eru í pottinum og geta þau ekki mæst.
Keppni hinna bestu í Evrópu.
Í dag kemur í ljós hvaða lið munu mætast í sextán liða úrslitum Meistaradeildarinnar en fjögur ensk lið eru í pottinum og geta þau ekki mæst.
Dagskráin á sportrásum Stöðvar 2 er fjölbreytt í dag.
Cristiano Ronaldo, stórstjarna Juventus, segir að hann vilji gjarnan mæta sínum gömlu félögum í Real Madrid í úrslitaleik Meistaradeildarinnar þetta tímabilið.
Íþróttastjóri Red Bull Salzburg, Christoph Freund, hefur staðfest að félagið sé í viðræðum við Liverpool um sölu á miðjumanninum Takumi Minamino.
Portúgalinn var ekki sáttur með áhorfanda sem hljóp inn á völlinn eftir leik Juventus gegn Bayer Leverkusen í Þýskalandi í gær.
Riðlakeppni Meistaradeildarinnar kláraðist í gærkvöldi og nú er því ljóst hvaða sextán félög verða í pottinum á mánudaginn þegar dregið verður í sextán liða úrslit Meistaradeildarinnar.
Manchester City vann þægilegan sigur á Dinamo Zagreb er liðin mættust í Króatíu í gær en Englandsmeistararnir höfðu betur 4-1. Þeir voru fyrir leikinn komnir áfram í næstu umferð.
Andy Robertson, bakvörður Liverpool, segir að ekkert lið vilji mæta Bítlaborgarliðinu er dregið verður í 16-liða úrslit Meistaradeildarinnar á morgun.
Atletico Madrid varð í kvöld síðasta liðið til þess að tryggja sér sæti í 16-liða úrslitum Meistaradeildarinnar er liðið vann 2-0 sigur á Lokomotiv Moskvu í kvöld.
Jose Mourinho tapaði sínum öðrum leik sem stjóri Tottenham er hann sá lærisveina sína tapa gegn Bayern Munchen, 3-1, er liðin mættust í Þýskalandi í kvöld.
Manchester City og Atalanta áfram upp úr C-riðlinum.
Carlo Ancelotti stýrði ítalska félaginu Napoli inn í sextán liða úrslit Meistaradeildarinnar í gærkvöldi en kvöldið endaði þó ekki vel fyrir Ítalann.
Carlo Ancelotti missti starfið sitt hjá ítalska félaginu Napoli í gær þrátt fyrir 4-0 stórsigur og sæti í sextán liða úrslitum Meistaradeildarinnar. Arnar Björnsson skoðaði tíma Carlo Ancelotti og viðbrögð leikmanna Napoli við brottrekstri hans.
Mohamed Salah skoraði magnað mark þegar Liverpool vann 2-0 sigur á Red Bull Salzburg í gær og tryggði sér sæti í sextán liða úrslitum Meistaradeildarinnar. Knattspyrnustjóri Liverpool vildi hins vegar tala um öll dauðafærin sem Egyptinn klúðraði í leiknum.
Þjóðverjinn baðst afsökunar á blaðamannafundi eftir leik Liverpool og Reb Bull Salzburg í gær.
Ferrán Torres, leikmaður Valencia, fékk högg á eyrað frá samherja sínum, Gabriel, í leiknum gegn Ajax í Meistaradeild Evrópu.
Eftir því var tekið á San Siro í gær að hollenska ungstirnið Frenkie de Jong fylgdist grannt með stöðu mála hjá sínu gamla félagi, Ajax, eftir leik.
Undrabarn Barcelona skrifaði söguna enn á ný upp á nýtt í gær er hann skoraði gegn Inter í Meistaradeildinni.
Nóg um að vera á sportrásunum í dag og kvöld.
Jurgen Klopp, stjóri Liverpool, hrósaði mótherjum Liverpool í kvöld en Evrópumeistararnir unnu 2-0 sigur á Red Bull Salzburg á útivelli í Meistaradeildinni.
Liverpool og Napoli eru komin áfram í 16-liða úrslit Meistaradeildarinnar.
Liverpool hefur farið alla leið í úrslitaleik Meistaradeildarinnar undanfarin tvö tímabil en í bæði skiptin þurfti liðið að ná í úrslit í lokaleik riðlakeppninnar. Liverpool liðið er í sömu stöðu í kvöld en þarf nú að klára dæmið á útivelli en árin á undan fór umræddur leikur fram á Anfield.
Jürgen Klopp lét ekki túlkinn fara með fleipur á blaðamannafundi fyrir leik Liverpool og Red Bull Salzburg.
Norðmaðurinn Erling Braut Håland hefur skotist á stjörnuhimininn eftir frammistöðu sína í Meistaradeildinni á þessu tímabili og leikmenn Liverpool þurfa heldur betur að passa sig á honum í kvöld.
Tottenham og Manchester City eru bæði búin að tryggja sér sæti í sextán liða úrslitum Meistaradeildarinnar en þriðjudagurinn 10. desember er aftur á móti leikur upp á líf eða dauða fyrir hin tvö ensku liðin í keppninni, Liverpool og Chelsea.
Úrslitin ráðast í riðlakeppni Meistaradeildar Evrópu í kvöld en síðasta umferðin í riðlum E, F, G og H fer fram í dag.
Lionel Messi vann Gullboltann í sjötta sinn í vikunni og fór þar með fram úr Cristiano Ronaldo.
Aleksander Ceferin, forseti UEFA, er ekki hrifinn af VAR og segir að þetta sé bara vandræði sem ekki verði snúið til baka úr.
Callum Hynes varð óvænt að hetju í Meistaradeildarleik Tottenham og gríska liðsins Olympiakos í síðustu viku þegar þessi ungi boltastrákur "aðstoðaði“ við eitt marka Tottenham manna í leiknum. Knattspyrnustjórinn Jose Mourinho hrósaði honum sérstaklega eftir leikinn.