

Menning
Sviðslistir, bókmenntir, sagnfræði, tónlist, myndlist og aðrar listasýningar.

Nýtt lag væntanlegt frá Bríeti
Íslenska súperstjarnan og söngkonan Bríet er flestum kunnug þar sem hún hefur sungið sig inn í hjörtu landsmanna á síðastliðnum árum.

Einstakt listaverkasafn afhent Listasafni Íslands
Listasafn Íslands fékk í dag afhent einstakt listaverkasafn Ingibjargar Guðmundsdóttur og Þorvaldar Guðmundssonar sem kenndur var við Síld og fisk. Listaverkasafnið inniheldur margar af perlum íslenskrar myndlistar.

Fyrsta rokklag ársins?
Suð fagnar nýju ári með nýrri smáskífu af væntanlegri plötu. Lagið Freak Out er því líklega eitt fyrsta rokklag ársins á Íslandi en það kom út á nýársdag og fylgir eftir laginu Made sem hefur fengið glimrandi góðar viðtökur.

Bóksölulisti uppgjör: Glæpasagnadrottningin Yrsa hrifsar til sín krúnuna
Fyrir liggur uppgjör um bóksölu á síðasta ári. Glæpasagnadrottningin Yrsa Sigurðardóttir er á toppi lista.

Hin íslenska Alma Goodman samdi lag fyrir Katy Perry
Tónlistarkonan og lagahöfundurinn Alma Goodman er enginn nýgræðingur í tónlistarheiminum en hún var meðal annars hluti af stelpu bandinu Nylon sem þróaðist síðar yfir í The Charlies.

Ye vinnur að Dondu 2
Tónlistarmaðurinn Ye er að vinna að nýrri plötu, Donda 2. Þetta verður fyrsta framhaldsplata Ye sem einnig er þekktur sem Kanye West.

Spjótin beinast að Fríðu
Þriðji þátturinn af Svörtu söndum, í leikstjórn Baldvin Z, fór í loftið á Stöð 2 á sunnudagskvöldið en þættirnir fjalla um Anítu, þrítuga lögreglukonu, sem neyðist aftur á æskuslóðirnar sem hún flúði fyrir 14 árum.

Með um 40 hljóðfæri inn í herbergi hjá sér í Keflavík
Einn efnilegasti tónlistarmaður á Suðurnesjum er ekki nema 17 ára gamall en þrátt fyrir það spilar hann á fjölda hljóðfæra. Saxófóninn er í mestu uppáhaldi hjá honum.

Hætta með sér verðlaun fyrir söngvara og söngkonu ársins
Kyngreindir verðlaunaflokkar verða felldir út af Íslensku tónlistarverðlaununum frá og með árinu í ár. Verðlaun fyrir söngvara og söngkonu ársins verða sameinuð í ein verðlaun, söng ársins.

„Þá finn ég eitthvað og átta mig á því að það er lík í sjónum“
Þættirnir Baklandið hófu göngu sína á Stöð 2 í gærkvöldi en þeir fjalla um þegar fyrstu viðbragðsaðilar mæta á alvarlegan slysavettvang.

Elma Lísa var stjörf og stíf þegar hún horfði á Skaupið
Hjónin Reynir Lyngdal, leikstjóri Skaupsins, og Elma Lísa Gunnarsdóttir eiginkona hans, aðalleikari Áramótaskaupsins 2021, eru hæstánægð með hvernig til tókst.

Maggi Eiríks hvergi nærri hættur
Einn ástsælasti lagahöfundur þjóðarinnar, Magnús Eiríksson eða Maggi Eiríks, segist hvergi nærri hættur. Hann varð 76 ára gamall á síðasta ári og segir lykilatriði að spila á gítarinn á hverjum degi til að halda puttunum í lagi.

Þetta eru 100 vinsælustu lög Bylgjunnar árið 2021
Bylgjan hefur tekið saman lista yfir hundrað vinsælustu lög stöðvarinnar árið 2021.

Tekst á við ástina og efasemdirnar
Álfrún Kolbrúnardóttir og Birgir Örn Magnússoni sem koma fram sem Alyria og Bixxi voru að senda frá sér lagið I´m a Scorpion.

Hermigervill og Unnsteinn slúttuðu Kryddsíldinni
Tónlistarmennirnir Unnsteinn Manuel og Hermigervill héldu uppi stuðinu í Kryddsíldinni, árlegum áramótaþætti Stöðvar 2, í gær, gamlársdag.

Samdi lagið eftir mótorhjólatúr um langjökul
Fyrir ekki svo löngu sendi tónlistarmaðurinn Freyr Torfason eða Kráka frá sér lagið Regn. Lagið er létt en textinn hefur mikla meiningu, segir Kráka.

Friðrik ráðinn framkvæmdastjóri nýrrar Sviðlistamiðstöðvar
Friðrik Friðriksson, leikari og framkvæmdastjóri Tjarnarbíós, hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri Sviðslistamiðstöðvar Íslands og hefur hann störf 1.febrúar næstkomandi.

Betty White er látin
„Jafnvel þótt Betty væri að verða 100 ára hélt ég að hún myndi lifa að eilífu,“ segir Jeff Witjas, umboðsmaður og náin vinur leikkonunnar Betty White, sem lést fyrr í dag.

Jón Jónsson og GDRN með lag ársins á FM957
Á þessum síðasta degi ársins er vert að líta yfir farinn veg í tónlistarheiminum en Árslisti FM957 kynnti fyrr í dag vinsælustu lög ársins 2021.

Unnsteinn Manuel og Hermigervill frumfluttu nýtt lag
Tónlistarmennirnir Unnsteinn Manuel og Hermigervill komu með stemninguna með sér í Kryddsíldina, áramótaþátt Stöðvar 2. Þar frumfluttu þeir nýtt lag, sem ber heitið Eitur.

360 gráðu heimsókn á ljósmyndasýningu RAX í München
Í München stendur nú yfir sýning Ragnars Axelssonar, ljósmyndara Vísis. Sýningin hefur yfirskriftina Where the World is Melting. Sýningarstjóri er Einar Geir Ingvarsson en um er að ræða viðamestu yfirlitssýningu á verkum RAX.

Bein útsending: Ljósverkum Ólafs Elíassonar varpað á glerhjúp Hörpu
Tólf nýjum ljósverkum listamannsins Ólafs Elíassonar verður varpað á glerhjúp Hörpu í Reykjavík á gamlársdag og nýársdag. Ólafur gaf Hörpu verkin tólf í tilefni af tíu ára afmæli Hörpu. Hægt verður að fylgjast með verkunum í spilaranum að neðan en sýningin hefst strax á miðnætti.

Johnson segir færslu Diesels til marks um óheiðarleg brögð
Dwayne „Grjótið“ Johnson segir ekki séns á því að hann taki aftur þátt í Fast and the Furious kvikmyndunum. Þá segir hann færslu leikarans Vin Diesel á samfélagsmiðlum um að hann ætti að snúa aftur hafa komið sér á óvart.

Risastór gullstytta af Ronaldo afhjúpuð í Indlandi
Risavaxin gullstytta af portúgalska fótboltamanninum Cristiano Ronaldo var afhjúpuð í Goa á Indlandi á dögunum.

Vandræðaleg ræða í heimkomupartí þar sem Steinunn fer á kostum
Á jóladag var frumsýndur á Stöð 2 fyrsti þátturinn af Svörtu söndum, í leikstjórn Baldvin Z en þættirnir eru framleiddir af Glassriver. Áhorfendur Stöðvar 2 fengu einn þátt á jóladag og síðan aftur þátt á öðrum degi jóla.

Árið byrjar með látum á Stöð 2+
Það er mikið af spennandi efni væntanlegt á efnisveitunni Stöð 2+.

Sabine Weiss látin
Ljósmyndarinn Sabine Weiss lést nýverið á heimili sínu í París, 97 ára að aldri. Hún er af mörgum talin vera frumkvöðull á sviði ljósmyndunar og var síðasti eftirlifandi ljósmyndarinn sem tilheyrði frönsku húmanistastefnunni.

Horfðu frítt á jólatónleika Páls Rósinkranz og Ágústu Evu
Ágústa Eva og Páll Rósinkranz buðu öllum landsmönnum á jólatónleika þann annan í jólum kl 20:00.

Framleiðendur Ace Ventura í mál við Netflix vegna Tiger King
Morgan Creek Entertainment, fyrirtækið sem framleiddi kvikmyndirnar um gæludýra-einkaspæjarann Ace Ventura, hefur höfðað mál gegn Netflix. Það er vegna myndefnis úr Ace Ventura 2: When Nature Calls sem notað var í þáttaröðina Tiger King, sem naut gífurlegra vinsælda á Netflix í fyrra.

Norðmenn fá ekki norsk handrit sem Árni færði Dönum að gjöf
Danir hafa hafnað ósk Norðmanna um að fá afhent sjö handrit sem segja sögu norsks samfélags á öldum áður. Norðmenn fóru þess á leit síðasta sumar að fá afhent handritin með það í hyggju að þau yrði hluti af varanlegri sýningu á Þjóðarbókasafninu í Osló.