Sigmar og Vilhelm breyta banka í veitingastað og bar Viðskiptafélagarnir Sigmar Vilhjálmsson og Vilhelm Einarsson breyta Arion banka húsnæði í Barion. Viðskipti innlent 3. október 2019 22:50
540 ungmenni á Landsmóti Samfés Norrænt ungmennaþing fer fram í Mosfellsbæ um helgina. Innlent 3. október 2019 21:30
Lentu í sjálfheldu við Tröllafoss Björgunarsveitir voru kallaðar út um hádegisbil í dag. Innlent 29. september 2019 13:45
„Þetta mál snýst ekki um mig og Dag B. Eggertsson“ Fjármálaráðherra gefur lítið fyrir gagnrýni formanns Miðflokksins um að samgöngusáttmálinn sé stuðningur við Dag B. Eggertsson. Innlent 28. september 2019 12:45
Segir samgöngusáttmála lífsgæðaáætlun um góðar samgöngur og gott samfélag Samkomulag sem felur í sér 120 milljarða króna vegagerð á höfuðborgarsvæðinu á næstu fimmtán árum, og þar með borgarlínu, var undirritað síðdegis. Engar útfærslur eru á því hvað þetta þýðir í auknar álögur á bíleigendur. Innlent 26. september 2019 21:05
120 milljarðar í samgönguframkvæmdir á höfuðborgarsvæðinu næstu 15 árin Ríkisstjórnin og sex sveitarfélög á höfuðborgarsvæðinu, Garðabær, Hafnarfjörður, Kópavogur, Mosfellsbær, Reykjavík og Seltjarnarnes undirrituðu í dag sáttmála um uppbyggingu á samgönguinnviðum og almenningssamgöngum á höfuðborgarsvæðinu til fimmtán ára. Sáttmálin gerir ráð fyrir 120 milljarða framkvæmdum í samgöngumannvirkjum á höfuðborgarsvæðinu á tímabilinu. Innlent 26. september 2019 17:20
Samkomulag um uppbyggingu á samgönguinnviðum kynnt í dag Samkomulag ríkisins og sex sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu um uppbyggingu á samgönguinnviðum og almenningssamgöngum á höfuðborgarsvæðinu til fimmtán ára verður undirritað síðar í dag. Innlent 26. september 2019 09:36
Ökuníðingurinn veittist að lögreglu eftir að hafa valdið stórhættu á Vesturlandsvegi Ökuníðingurinn sem stöðvaður var með naglamottu í Mosfellsbæ á tólfta tímanum í dag hafði mælst á rúmlega 200 km/klst hraða á Vesturlandsvegi við Hvalfjarðargöng. Innlent 24. september 2019 15:28
För ökuníðings stöðvuð í Mosfellsbæ Mikill viðbúnaður var hjá lögreglu í Mosfellsbæ á tólfta tímanum í dag þar sem von var á ökumanni ofan af Akranesi sem ók bíl sínum langt umfram löglegan hámarkshraða. Innlent 24. september 2019 12:58
Samkomulag um stórátak í samgöngumálum í bígerð Unnið er að samkomulagi milli ríkis og sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu um stórátak í samgöngumálum þar sem framkvæmdir, sem alla jafna myndu taka áratugi, verða framkvæmdar á næstu tíu til fimmtán árum. Innlent 21. september 2019 08:30
Stal áfengi í samkomuhúsi í Mosfellsbæ Rúða var brotin og leikur grunur á að áfengi hafi verið stolið. Innlent 20. september 2019 08:23
Ræddu ný drög að uppbyggingu samgangna á höfuðborgarsvæðinu Drög að breyttu samkomulagi var sent á bæjarstjóra sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu í gærkvöldi Innlent 19. september 2019 09:34
Ástandið á flakinu gerir rannsakendum erfitt fyrir Ekki liggur fyrir hvers vegna lítil eins hreyfils flugvél brotlenti á Skálafellsöxl, nærri Móskarðshnjúkum um miðjan dag í gær. Rannsókn á tildrögum slyssins gæti tekið langan tíma. Innlent 18. september 2019 11:23
Á sandi byggði… Merkilega hljótt hefur verið um alvarleg mistök stjórnenda og stjórnar Sorpu, sem kosta munu skattgreiðendur á höfuðborgarsvæðinu hátt á annan milljarð. Skoðun 18. september 2019 10:00
Rannsókn lokið á vettvangi flugslyssins Vettvangsrannsókn á flugslysi sem varð við Skálafellsöxl í dag lauk á ellefta tímanum. Innlent 17. september 2019 23:00
Fundu flugmanninn gangandi við topp Skálafells Viðbragðsaðilum á höfuðborgarsvæðinu barst nú á fjórða tímanum tilkynning um flugatvik við Móskarðshnjúka. Innlent 17. september 2019 15:38
GDRN valin bæjarlistamaður Mosfellsbæjar Tónlistarkonan Guðrún Ýr Eyfjörð, sem betur er þekkt undir listamannsnafni sínu GDRN, var í útnefnd bæjarlistamaður Mosfellsbæjar árið 2019. Tónlist 1. september 2019 15:28
Skammbyssa reyndist vera dótabyssa Alls kom 101 mál inn á borð lögreglu í gærkvöldi og í nótt. Innlent 1. september 2019 07:51
Komi til greina að bæta við forgangsakrein fyrir þá sem sameinast í bíla Íbúar Mosfellsbæjar hafa síðustu daga kvartað undan þungri umferð til Reykjavíkur á morgnanna, sem margir hverjir ferðast einir í bíl. Bæjarstjóri Mosfellsbæjar segir það koma til greina að bæta við forgangsakrein fyrir almenningssamgöngur og þá sem sameinast í bíla. Innlent 28. ágúst 2019 20:00
Mosfellingar langþreyttir á þungri umferð Bæjarstjórinn segir verstu daga ársins standa yfir. Innlent 27. ágúst 2019 13:55
Foreldrar tvístígandi: „Á ég að senda barnið mitt sem er með einkenni?“ Rakaskemmdir komu í ljós á síðasta ári en framkvæmdir hófust í vor. Skólastarf hófst með formlegum hætti í gær en foreldrar eru tvístígandi. Innlent 27. ágúst 2019 10:56
Herdís snýr sér að rekstri á Reykjalundi Herdís Gunnarsdóttir, fyrrverandi forstjóri Heilbrigðisstofnunar Suðurlands, hefur verið ráðin framkvæmdastjóri endurhæfingarsviðs Reykjalundar. Viðskipti innlent 23. ágúst 2019 10:21
Braust blóðugur í andliti inn í íbúð í Mosfellsbæ Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu handtók mann sem grunaður var um húsbrot í Mosfellsbæ rétt upp úr miðnætti í nótt. Innlent 22. ágúst 2019 07:00
Sitja pikkföst í umferð vegna malbikunar Malbikunarframkvæmdir á Vesturlandsvegi hafa sett svip á umferðina úr Mosfellsbæ þennan morguninn. Innlent 21. ágúst 2019 08:37
Íslenskur óperusöngvari slær i gegn í Austurríki Unnsteinn Árnason, 28 ára óperusöngvari var mjög hissa en jafnframt mjög stoltur af því að hafa verið í síðasta mánuði valin besti ungi listamaðurinn þegar austurrísku tónleikahúsaverðlaunin voru afhent við hátíðlega athöfn. Innlent 29. júlí 2019 19:45
Tilkynntur til lögreglu fyrir að reykja fisk Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu var í gær tilkynnt um mann sem var að reykja fisk við opinn eld í Mosfellsbæ. Innlent 23. júlí 2019 07:19
Í vímu með þrjú börn í bílnum Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu stöðvaði ökumann bifreiðar í Mosfellsbæ skömmu fyrir klukkan níu í gærkvöldi. Ökumaðurinn er grunaður um akstur bifreiðar undir áhrifum fíkniefna og/eða lyfja. Innlent 14. júlí 2019 07:38
Vilja reisa eins konar kastala í Mosfellsbæ Bílapartasalan ehf. sem á lóðina að Völuteig 8 í Mosfellsbæ vill hefja uppbyggingu á lóðinni og reisa þar eins konar kastala. Innlent 12. júlí 2019 12:15
Vesturlandsvegi lokað vegna malbikunarframkvæmda Síðdegis í dag og fram til morguns er stefnt að því að fræsa og malbika akrein og hringtorg á Vesturlandsvegi við Álafossveg. Innlent 8. júlí 2019 13:21
Afturelding vill selja nafnréttinn Bæjarráð Mosfellsbæjar hefur samþykkt með þremur atkvæðum að fela Haraldi Sverrissyni bæjarstjóra að ræða við fulltrúa Aftureldingar um fyrirkomulag merkinga á íþróttamannvirkjum og að niðurstaðan verði kynnt bæjarráði. Þetta kemur fram í fundargerð bæjarráðs í gær. Handbolti 5. júlí 2019 12:30