Birtu fyrstu myndina af Mette-Marit eftir aðgerðina Líkt og langflestir Norðmenn þá fylgdist Mette-Marit, eiginkona Hákonar krónprins, spennt með leik Noregs og Brasilíu á HM í fótbolta sem fram fór í gær og lauk með frækilegum sigri Norðmanna. Norska konungshöllin birti í morgun mynd af Mette-Marit, þeirri fyrstu sem birt er eftir að hún gekkst undir lungnaígræðslu í síðasta mánuði. Lífið 6.7.2026 07:48
„Eins og þjóðhátíðardagur og gamlárskvöld í senn“ Norðmenn safnast nú saman fyrir utan konungshöllina í Osló og fagna saman stórkostlegum árangri norska karlalandsliðsins í fótbolta. Fótbolti 5.7.2026 22:49
Margir orðnir þreyttir á Norðmönnum á HM og halda með Brasilíu Norðmenn eru að blómstra á þessu heimsmeistaramóti í fótbolta og þótt stærsta prófið sé fram undan hafa þeir unnið alla þrjá leikina með sitt besta lið. Hinum megin við landamærin eru Svíar ekkert alltof kátir með uppkomu nágranna og erkifjenda sinna. Fótbolti 5.7.2026 08:00
Mette-Marit krónprinsessa fékk ný lungu í vel heppnaðri aðgerð Mette-Marit krónprinsessa Noregs hefur gengist undir vel heppnaða lungnaígræðslu en hún greindist með lungnasjúkdóm sem kallast lungnatrefjun fyrir um ári síðan. Í september 2025 fór hún í veikindaleyfi vegna þess og hefur undandarið sést með súrefnisgleraugu. Erlent 17. júní 2026 08:22
Erfiðir tímar fyrir norsku konungsfjölskylduna Mál Mariusar Borg Høiby, sonar krónprinsessu Noregs, hefur reynst krúnunni mjög erfitt en töluvert hefur dregið úr stuðningi og trausti í garð norsku konungsfjölskyldunnar undanfarin misseri. Erlent 15. júní 2026 22:13
Sonur krónprinsessunnar áfrýjar dómi Marius Borg Høiby, sonur krónprinsessu Noregs, ætlar að áfrýja fjögurra ára fangelsisdómi sem hann hlaut í morgun fyrir nauðganir og fleiri afbrot. Saksóknarar höfðu krafist rúmlega sjö og hálfs árs refsingar yfir honum. Erlent 15. júní 2026 15:25
Sonur krónprinsessunnar dæmdur í fjögurra ára fangelsi Norskur dómstóll dæmdi Marius Borg Høiby, son krónprinsessu Noregs, í fjögurra ára fangelsi fyrir nauðganir og fleiri afbrot í morgun. Saksóknarar höfðu krafist rúmlega sjö og hálfs árs refsingar yfir honum. Erlent 15. júní 2026 06:37
Skipagöngin samþykkt eftir pólitísk hrossakaup Skipagöngin við Stað í Noregi verða að veruleika eftir áratuga undirbúning og pólitískar deilur. Þetta varð ljóst eftir að minnihlutastjórn Verkamannaflokksins var niðurlægð með hrossakaupum í norska Stórþinginu við afgreiðslu fjáraukalaga í nýliðinni viku. Fréttir 14. júní 2026 08:32
Tveir látnir eftir að bíl var ekið í hlið húss Bíl var ekið á miklum hraða í hlið húss í Lærdal í Sogni í vestanverðum Noregi síðdegis í dag með þeim afleiðingum að ökumaður og farþegi létust. Erlent 12. júní 2026 19:40
Norðmenn ekki aðeins með lið á HM heldur einnig lögreglumenn Norska lögreglan leggur sitt af mörkum til öryggisgæslu á heimsmeistaramótinu í fótbolta Fótbolti 11. júní 2026 22:02
Rússar vígbúast við mörk Norðurlanda Rússar hafa á síðustu árum aukið umsvif sín á herstöðvum við landamærin að Norðurlöndum og Eystrasaltsríkjunum. Loftmyndir sýna hvernig gróður hefur vikið fyrir hervirkjum á sama tíma og umferð herbíla hefur aukist á svæðunum. Erlent 10. júní 2026 11:16
Marius sleppur ekki eftir allt saman Marius Borg Høiby verður ekki látinn laus úr gæsluvarðhaldi til að vera við hlið veikrar móður sinnar eftir allt saman. Lögmannsrétturinn í Borgarþingi, annað dómsstig, féllst á sjónarmið saksóknara sem skaut málinu þangað. Erlent 10. júní 2026 10:19
Elkjøp fær milljónasekt fyrir persónuverndalagabrot Norska raftækjaverslunarkeðjan Elkjøp hefur verið sektuð í Noregi fyrir persónuverndarlagabrot á viðskiptavinum í svokölluðum kúnnaklúbbi. Brotið er sagt varða tæplega 6,7 milljónir viðskiptavina félagsins vítt og breitt um Norðurlöndin. Íslendingar þekkja verslanir vörumerkisins sem Elko. Persónuvernd á Íslandi kveðst ekki hafa haft aðkomu að málinu. Viðskipti erlent 9. júní 2026 11:47
Marius látinn laus Marius Borg Høiby hefur farið fram á og fengið samþykkt af héraðsdómi Óslóarborgar að hann verði látinn laus til að vera með móður sinni, Mette-Marit krónprinsessu Noregs. Saksóknari kærði ákvörðunina svo Marius situr áfram inni um tíma. Réttarhöld yfir honum hafa staðið frá í febrúar og er hann ákærður fyrir fjölda ofbeldis- og kynferðisbrota. Erlent 8. júní 2026 16:52
Fær fangelsisfrí til að heimsækja móður sína Marius Borg Høiby, sonur Mette-Marit krónprinsessu Noregs, hefur hvorki fengið að heimsækja móður sína né vera viðstaddur mikilvæga læknisfundi er varða heilsufar hennar. Þetta gagnrýna verjendur hans en hann situr nú í gæsluvarðhaldi á meðan beðið er þess að dómur verði kveðinn upp í máli hans. Móðir hans veiktist alvarlega í vikunni en hún þjáist af lungnatrefjun. Erlent 6. júní 2026 15:40
Lungnaígræðsla ekki lækning heldur sjúkdómaskipti Heilsu krónprinsessu Noregs hefur hrakað verulega undanfarna mánuði vegna lungnasjúkdóms og í gær var greint frá því að hún væri á biðlista fyrir ígrætt lunga. Lungnalæknir segir þó ekki hlaupið að því að fá grætt í sig lunga. Erlent 6. júní 2026 13:00
Ekki Andabæjarútgáfa af norskri menningu Norska karlalandsliðið í fótbolta mætir á sitt fyrsta heimsmeistaramót í sannkölluðum víkingaham. Landsliðið sækir innblástur í víkingaskip, stafkirkjur og rúnir en það eru ekki allir hrifnir. Fótbolti 5. júní 2026 10:03
Mette-Marit á biðlista fyrir lungnaígræðslu Mette-Marit krónprinsessa Noregs er komin á biðlista fyrir lungnaígræðslu. Heilsu hennar hefur hrakað undanfarið en hún hefur glímt við svokallaða lungnatrefjun um skeið. Erlent 5. júní 2026 09:42
Höfuðpaur í Foxtrot hafi skipulagt sprengju- og skotárásir í Noregi Rannsóknardeild lögreglunnar í Noregi, Kripos, hefur ákært sænskan mann sem hún telur vera einn höfuðpaura Foxtrot-glæpasamtakanna alræmdu. Hann er sagður gegna lykilhlutverki sem milliliður við skipulagningu ofbeldisverka í ýmsum löndum. Erlent 4. júní 2026 16:28
Krónprinsessan inn og út af sjúkrahúsi Mette-Marit krónprinsessa af Noregi heimsótti sjúkrahús í dag ásamt Hákoni krónprinsi sem mætti fyrr til Noregs í morgun úr heimsókn sinni til Japan vegna veikinda prinsessunnar. Mette-Marit er með alvarlegan lungnasjúkdóm og hefur áður verið greint frá því að heilsu hennar hafi hrakað hratt. Lífið 4. júní 2026 15:38
Kaldvík sett í skammarkrókinn í Ósló Euronext kauphöllin í Ósló í Noregi hefur sett Kaldvík AS, sem einnig er skráð á First North markaðnum hér á landi, í skammarkrókinn fyrir að skila ekki ársreikningi á tilsettum tíma. Viðskipti innlent 2. júní 2026 12:15
Styttir ferðina vegna veikinda krónprinsessunnar Hákon, krónprins Noregs, snýr fyrr heim úr opinberri ferð sinni til Japans vegna veikinda Mette-Marit krónprinsessu. Dóttir hjónanna gerir einnig hlé á námi sínu í Ástralíu til að verja tíma með móður sinni. Erlent 1. júní 2026 15:07
Norskur maður grunaður í máli Anne Elisabeth Hagen Norskur maður á sextugsaldri hefur fengið stöðu sakbornings í máli Anne Elisabeth Hagen. Hún, ein ríkasta kona Noregs, hvarf sporlaust af heimili sínu í Lørenskógi í nágrenni Óslóar árið 2018 og hefur verið skráð myrt daginn sem hún hvarf í kerfum lögreglu síðan í janúar 2020. Erlent 30. maí 2026 18:03
Maðurinn enn í lífshættu og á gjörgæslu Karlmaðurinn sem var fluttur til Noregs með brunasár í kjölfar lögregluaðgerða í Reykjanesbæ er enn í lífshættu og á gjörgæslu. Mál mannsins er til rannsóknar hjá embætti héraðssaksóknara. Vilhjálmur H. Vilhjálmsson, lögmaður mannsins, segir stöðuna enn grafalvarlega. Innlent 30. maí 2026 11:20
Biðlar til þjófa að skila ómetanlegu þýfi: „Ef þið skilið ekki þessu dóti, kæru þjófar, þá er Bubba að mæta“ Innlent