Gellur elska hönnun HönnunarMars fór fram í síðustu viku og var dagskráin umfangsmikil með fjölbreyttum sýningum og viðburðum. Áhugasamir gátu kynnt sér það helsta í íslenskri hönnun og farið á ilmtónleika, húsgagnasýningar, dansgjörning og ýmislegt annað. Tíska og hönnun 12. maí 2026 12:32
Skemmdarvargarnir skildu eftir „manifestó“ Skemmdarvargar sem brutust inn í svínabú Stjörnugríss á Kjalarnesi skildu eftir „manifestó“, svokallaða stefnuyfirlýsingu á staðnum. Framkvæmdastjóri Stjörnugríss segir aðkomuna hafa verið ljóta og nýr veruleiki blasi við fyrirtækjum í matvælaframleiðslu hér á landi. Innlent 12. maí 2026 12:00
Innbrot og skemmdarverk hjá Stjörnugrís og dýrum sleppt Brotist var inn í svínabú Stjörnugríss í Brimnesi á Kjalarnesi aðfaranótt mánudags og voru unnar miklar skemmdir. Þá var dýrum hleypt út og drápust tíu smágrísir auk þess sem taka þurfti einn grís af lífi vegna kjálkabrots. Talið er að skemmdirnar hafi verið unnar í yfirskyni dýravelferðar. Innlent 12. maí 2026 09:42
Oddvitar sameinuðust í „We are the world“ Átta af oddvitunum ellefu sem bjóða fram í borgarstjórnarkosningum í Reykjavík komu óvænt fram á viðburði á vegum Hlaðfrétta á laugardagskvöld. Lífið 12. maí 2026 09:01
Þetta er stefna flokkanna í samgöngumálum í Reykjavík Samgöngusáttmáli sveitarfélaga höfuðborgarsvæðisins er í algleymingi í stefnum flokkanna í samgöngumálum í Reykjavík, ýmist stuðningur við sáttmálann, andstaða eða tillögur að endurskoðun hluta hans. Vísir tók saman stefnu flokkanna í málaflokknum en áhersla á bílastæði fer þar mikinn. Innlent 12. maí 2026 07:02
Upplausn á Ártúnshöfða og þolinmæði á þrotum Framtíð um sextíu fyrirtækja og rekstraraðila á Ártúnshöfða er í lausu lofti vegna óvissu um lóðarleigusamninga. Talsmenn þeirra segja gríðarlega hagsmuni í húfi og fjölda starfa undir. Þeir kölluðu frambjóðendur á sinn fund í dag sem voru á einu máli um að staðan þyrfti að skýrast. Innlent 11. maí 2026 19:30
Ekið á tvö börn hvort í sínu sveitarfélaginu í dag Keyrt var á tólf ára barn sem var við leik við Ægisgötu upp úr klukkan tólf í dag. Barnið hlaut áverka á fæti en var barnið flutt undir læknishendur í kjölfar slyssins. Þá var fjórtán ára stúlka flutt á bráðamóttökuna eftir að ekið var á hana í Hafnarfirði. Innlent 11. maí 2026 19:22
Borgarfulltrúar til rannsóknar vegna gagnaleka Gagnaleki vegna birtingar ársreiknings Reykjavíkurborgar í lok apríl hefur verið tilkynnt til fjármálaeftirlits Seðlabanka Íslands, innri endurskoðunar Reykjavíkurborgar og endurskoðunarnefndar. Tekið er fram í bréfi regluvarðar Reykjavíkurborgar að um sé að ræða markaðssvik. Innlent 11. maí 2026 17:30
Handtóku konu vopnaða hnífi Lögregla og sérsveit ríkislögreglustjóra voru kölluð til í Skógarsel í Breiðholti fyrir hádegi í dag vegna tilkynningar um konu sem var vopnuð hnífi. Innlent 11. maí 2026 15:40
Samfylkingin kveinkar sér undan stórskotahríð Viðreisnar Samfylkingarfólk hefur ekki alveg vitað hvaðan á sig stendur veðrið en flokkurinn hefur sætt gegndarlausri gagnrýni og skensi frá … Viðreisn, samstarfsflokki sínum í ríkisstjórn. Innlent 11. maí 2026 15:20
Lítið mál að halda jafnvægi á 4.500 króna sófa Félagarnir Egill Jón Agnarsson og Ísak Kukalj hafa vakið mikla athygli fyrir uppátæki sitt í síðustu viku þar sem þeir komu sófa fyrir á tveimur rafskútum frá Hopp og óku eftir Leirulæk í Laugardal. Þeir sáu myndband á Instagram þar sem nokkrir strákar höfðu gert slíkt hið sama. Þeir voru ekki lengi að ákveða sig, hoppuðu í Góða hirðinn, keyptu sófa á 4.500 krónur og „kýldu á þetta“. Innlent 11. maí 2026 14:56
Ungmenni réðust að konu með höggum og spörkum í Mjóddinni Lögregla rannsakar hóp ungmenna á aldrinum 14 til 16 ára sem talin eru hafa ráðist á konu konu á fimmtugsaldri með höggum og spörkum í biðskýli í Mjóddinni í Reykjavík á fimmtudag. Lögregla segir hópinn áður hafa komið við sögu hjá lögreglu fyrir að vera með almenn leiðindi og dónaskap í Mjóddinni. Innlent 11. maí 2026 13:50
Bíða með breytingar eftir liðsskipti Helga Áss fram yfir kosningar Sjálfstæðismenn í borgarstjórn hafa dregið til baka tillögur um greiðslur til varaborgarfulltrúa sem þeir lögðu fram eftir að fyrsti borgarfulltrúi þeirra sagði skilið við þá í vetur. Fulltrúi þeirra segir tillögurnar lagðar fram eftir kosningar þegar nýr meirihluti verður kominn með umboð. Innlent 11. maí 2026 13:45
Ók gegn rauðu ljósi þegar kona á níræðisaldri lést Rautt ljós logaði þegar ökumaður á níræðisaldri ók á konu á níræðisaldri, sem gekk yfir Suðurlandsbraut á gangbraut, með þeim afleiðingum að hún lést á spítala tveimur dögum síðar. Innlent 11. maí 2026 11:55
Vilja fjölga hólmum í Reykjavíkurtjörn og friðlýsa fjöru við Skerjafjörð og Ægisíðu Stefnt er að því að klára friðlýsingarferli í Skerjafirði, fjölga hólmum á Tjörninni til þess að styrkja fuglalíf, fjölga trjám í borgarlandinu, tryggja börnum í grunnskólum kennslu í náttúrunni og að lífríki borgarinnar verði áfram vaktað. Þetta, og meira, er það sem lagt er til í nýrri stefnu borgarinnar um líffræðilegan fjölbreytileika. Innlent 11. maí 2026 11:20
„Ekki frekar en þegar Dagur var í framboði“ Eva B. Helgadóttir formaður yfirkjörstjórnar segir það af og frá að það eitt að bjóða fólki „Góðan daginn!“ geti talist áróður á kjörstað. Innlent 11. maí 2026 11:10
Framkvæmdastjóri Hopp vill ráða sófakappana Þeir sem halda því fram að unga kynslóðin sitji bara heima hjá sér í símanum geta tekið gleði sína á ný því tveir ungir menn í Reykjavík brugðu á leik nýverið og skelltu sófa á tvær rafskútur og rúntuðu um Laugardal öðrum til mikillar gleði og kátínu. Myndaband af uppátækinu rataði á TikTok en þar sjást þeir aka sófanum af mikilli færni eftir Leirulæk. Innlent 11. maí 2026 10:45
Sjö vilja embætti skólameistara FB Margrét Jónsdóttir Njarðvík, fyrrverandi rektor Háskólans á Bifröst, er á meðal sjö umsækjenda um embætti skólameistara Fjölbrautaskólans í Breiðholti. Listi yfir umsækjendur hefur verið birtur á vefsíðu Stjórnarráðsins. Innlent 11. maí 2026 10:03
Golfkúlum rigndi yfir bílaumboð og ekki í fyrsta sinn Ungmenni í golfi á golfvelli Golfklúbbs Reykjavíkur léku sér á æfingabásum vallarins að því að dræva golfkúlum yfir Krókhálstjörn og inn á bílastæði þjónustuverkstæðis Öskju við samnefnda götu. Forstjóri Öskju segir nokkra bíla hafa orðið fyrir kúlu með tilheyrandi tjóni. Innlent 10. maí 2026 15:42
Oddvitaáskorunin: Væri til í að læra á harmonikku Vísir stendur fyrir Oddvitaáskoruninni 2026 þar sem skorað er á oddvita allra flokka í sveitarfélögum um land allt að taka þátt. Áskorunin felur í sér stutta kynningu og að svara nokkrum spurningum. Lífið 10. maí 2026 13:00
Handtekinn á skemmtistað með þrjú ungmenni Ýmislegt gekk á í nótt og hafði lögreglan afskipti af fjölda ungmenna af mismunandi ástæðum. Fullorðinn maður var handtekinn á skemmtistað en með honum voru þrjú ungmenni undir aldri og var haft samband við foreldra þeirra. Maður var ofurölvi og hafði sofnað á tröppum veitingastaðar í Reykjavík en hann var vakinn og hélt í kjölfarið sína leið. Innlent 10. maí 2026 08:06
„Varð að martröð“ Dóra Björt Guðjónsdóttir borgarfulltrúi segir tölvupóstasamskipti milli sín og annarra ráðamanna í Reykjavíkurborg staðfesta það að hún hafi aldrei verið hlynnt „Græna gímaldinu“ sem risið hefur við Álfabakka. Hún segir framkvæmdina hafa breyst í „martröð.“ Innlent 9. maí 2026 19:23
Keyrði niður ljósastaur á Vesturlandsvegi Ekið var á ljósastaur á Vesturlandsvegi síðdegis í dag og hann nær keyrður niður. Dælubíll og sjúkrabíll voru sendir á vettvang en enginn var fluttur á sjúkrahús. Innlent 9. maí 2026 15:46
Starfsemi gæti hafist í nýjum Listaháskóla innan fjögurra ára Kristín Eysteinsdóttir rektor Listaháskóla Íslands segir nýundirritaða viljayfirlýsingu um uppbyggingu framtíðarhúsnæðis undir skólann annars eðlis og raunhæfari en þær sem hafa verið undirritaðar síðustu tvo áratugina. Innlent 9. maí 2026 13:58
„Þetta er náttúrulega algjörlega fáránlegt“ Oddviti Samfylkingarinnar í Reykjavík segir kreditkortafærslur borgarstjóra með korti borgarinnar alvarlegt mál en að hans mati hefur borgarstjóri gefið nægilegar skýringar á færslunum og svarað vel fyrir sig. Hann segir kenningar um að einhver innan Samfylkingarinnar reyni að ná höggi á Heiðu fáránlegar. Innlent 9. maí 2026 12:32
Bjó sér til vopn með því að setja steinhellu í sokk Óskað var eftir aðstoð lögreglu í nótt á skemmtistað í Reykjavík en þar voru dyraverðir búnir að taka til hliðar einstakling sem hafði verið í slagsmálum inni á staðnum. Lögregla sinnti einnig útkalli vegna líkamsárásar jafnframt því sem hún aðstoðaði starfsfólk bráðamóttökunnar vegna ölvaðs manns sem neitaði að fara. Innlent 9. maí 2026 07:50
Samgöngur fyrir börn Borg sem er hugsuð út frá þörfum barna er borg sem virkar fyrir okkur öll. Börn þurfa ekki síður en fullorðnir að komast leiðar sinnar með öruggum og fljótlegum hætti hvort sem það er innan hverfisins eða á milli hverfa. Skoðun 9. maí 2026 07:02
„Auðvitað hef ég íhugað það“ Heiða Björg Hilmisdóttir borgarstjóri segist „auðvitað hafa íhugað“ að einhver hafi verið að reyna að koma höggi á sig með því að vekja athygli á kreditkortafærslum hennar í borgarstjóraembætti. Hún vill ekki svara því hvort hún telji andstæðinga eða jafnvel samflokksmenn sína standa þar að baki. Heiða segist ekki íhuga stöðu sína vegna málsins. Innlent 8. maí 2026 20:08
Endurgreiddi eftir að fjölmiðlar spurðu út í innkaupakortið Heiða Björg Hilmisdóttir borgarstjóri hefur endurgreitt borginni alls 28 þúsund krónur vegna óheimillar notkunar á innkaupakorti borgarstjóra. Þrjár af fjórum endurgreiðslum greiddi hún eftir að fjölmiðlar sendu fyrirspurnir vegna innkaupakortsins. 23 skriflegar athugasemdir hafa borist vegna notkunar hennar á kortinu, þar á meðal vegna greiðslu fyrir uppfærslu á fyrsta farrými. Innlent 8. maí 2026 16:29
Heiðra Sigrúnu Eldjárn með sérstöku brunnloki í Lækjargötu Sérstök bókmenntamerking til heiðurs barnabókahöfundinum Sigrúnu Eldjárn var afhjúpað með viðhöfn við Lækjargötu 14 í dag. Menning 8. maí 2026 14:31