

Alþingis- og sveitarstjórnarmenn
Skoðanagreinar eftir kjörna fulltrúa á Alþingi og í sveitarstjórnum.

Tímabært að lengja fæðingarorlof
Samfélag sem vill hlúa vel að börnum og foreldrum gerir sennilega einna mesta gagn með því að halda vel utan um barnafjölskyldur á fyrstu árum í lífi barna. Þegar börnin eru lítil, foreldrarnir yngri, fjárhagur oft viðkvæmari og álagið hvað mest. Umræðan um hvernig á að brúa bilið milli fæðingarorlofs og leikskóla er áratugagömul.

Hið opinbera klekkir á einkaaðilum
Hið opinbera fer t.a.m. gegn skýrum markmiðum laganna með því að skipta innkaupum upp í sjálfstæða samninga og gera viðvarandi eða endurnýjanlega samninga þannig að erfitt verður að átta sig á samanlögðu virði þeirra, án þess að hafa jafnræði og hagkvæmni að leiðarljósi. Og hagsmunaárekstrar geta verið til staðar sem raska jafnvægi bjóðenda.

Þar eigum við heima
Valdhafar í Rússlandi misreiknuðu sig illa þegar þeir ákváðu að ráðast inn í Úkraínu. Þeir vanmátu viðnámsþrótt Úkraínumanna og viðbrögð Vesturlanda.

Vextir, verðbólga og öskrandi verkkvíði
Afborganir af húsnæðislánunum hækka og matarkarfan hækkar. Þessi staða hefur ekki farið fram hjá heimilum landsins. Afborganir hafa í mörgum tilvikum hækkað um tugi þúsunda á mánuði. Almennt mætti fólk búast við því að ríkisstjórnin ynni þá það verkefni sem henni er falið: Að verja kjör heimila og fyrirtækja.

Lög um tæknifrjóvganir mega ekki gera verkefnið erfiðara
Í síðustu viku mælti ég fyrir frumvarpi mínu um aukið frelsi í löggjöf um tæknifrjóvganir. Ég lagði málið fyrst fram á síðasta þingi en það komst því miður ekki á dagskrá þá heldur nú í byrjun nýs þings eftir að þingflokkur Sjálfstæðisflokksins ákvað að setja málið fremst í röð þingmannamála.

Verndari virkrar samkeppni
Verðbólgan getur ýtt undir frekari samþjöppun og skaðað samkeppnismarkaðinn til lengri tíma litið. Þess vegna er mikilvægt að bæta ekki á vandann með samkeppnishindrunum og öðrum aðgerðum sem grafa undan samkeppni. Þessi ríkisstjórn hefur hins vegar sýnt að hún er enginn verndari virkrar samkeppni. Miklu heldur á fákeppnin þar skjól.

Samstöðuaðgerðir vegna verðbólgu og vaxtahækkana
Við komum út úr heimsfaraldri með gríðarlega miklar eignaverðshækkanir og aukinn eigna- og tekjuójöfnuð vegna aðgerða stjórnvalda. Fjármagnstekjur jukust um 52% á milli ára, mesta aukningin frá árinu 2007, og tekjuhæsta tíundin í landinu sá kaupmátt sinn vaxa tvöfalt á við aðra Íslendinga vegna þessa í fyrra. Tveir af æðstu stjórnendum landsins í efnahagsmálum töluðu um lágvaxtaumhverfi sem komið væri til að vera.

Það kostar að skulda
Sannleikurinn er að það er margt sem sameinar okkur á Alþingi einfaldlega vegna þess að við erum hluti af sömu þjóð. Það er ekki þannig að allir séu ósammála um allt og nú þegar umræða fer fram um fjárlagafrumvarp, mikilvægasta mál haustsins, þá er það einfaldlega ekki svo að þar sé allt vonlaust.

Fjölflokka ríkisstjórn Sjálfstæðisflokks, Bjarna Benediktssonar og xD
Við erum með einn stjórnmálaflokk á Íslandi sem stýrir landinu, tvo sem láta eins og þeir séu í stjórnarandstöðu miðað við málflutninginn í stóru málaflokkunum. Ráðherrar Vinstri grænna og Framsóknar tala um fjármagnstekjuskatt, álag á stórútgerð og hvalrekaskatta.

Slembilukkan og verðleikarnir
Slembilukka ræður því hvar á Jörðinni við fæðumst en það er ákvörðun að velja sér nýjan samastað og hana þarf stundum að taka vegna aðstæðna sem einstaklingar bera enga ábyrgð á; stríðið í Úkraínu er nærtækt dæmi um það.

Venjumst ekki stríðsrekstri
Það voru mikilvægar raddir sem heyrðust á leiðtogafundinum Norðurlandaráðs í Hörpu í síðustu viku. Vinir okkar frá Eystrasaltsþinginu funduðu með okkur og góðum gestum frá Belarús, Rússlandi og Úkraínu, umræðuefnið að sjálfsögðu stríði í Úkraínu og stöðug brot Pútíns stjórnar á mannréttindum.

Inn-, útvistun eða blanda af hvoru tveggja
Útvistanir til einkaaðila hafa gengið misvel auk þess sem útvistanir geta leitt til lægri launa, verra starfsumhverfis og verri þjónustu. Flestir eru sammála um að einkarekstur í heilbrigðiskerfinu er t.d. engin töfralausn.

Borgarstjórn á beinni braut
„Hver er sérstaða þín flokks?” er ég stundum spurð. “Hver er munurinn á Viðreisn og Sjálfstæðisflokki eða Samfylkingu?” eru spurningar sem fylgja gjarnan á eftir. Það vefst ekki fyrir mér að svara þessu, enda er Viðreisn með sitt eigið hryggjarstykki, sína eigin sérstöðu sem við erum stolt af.

Sáttmáli um áframhaldandi stéttaskiptingu
Alltof margir komast rétt svo í gegnum mánuðinn, hangandi á kvíðanum, streitunni og yfirdráttarheimildinni við að reyna að láta hlutina ganga upp í þessu stéttskipta samfélagi sem við búum í. Borgarstjórn ber ábyrgð á þjónustuveitingu í nærumhverfinu og vinnur út frá stefnumótun flokka sem mynda meirihluta. Sú stefnumótun var til umræðu í borgarstjórn í dag og er stefnumótun sem tekur engan veginn á rót vandans.

Leikskóli áfram í Staðarhverfi
Nokkrir íbúar í Staðarhverfi í Grafarvogi skrifuðu grein hér á Vísi á dögunum um leikskólamál í hverfinu þar sem ég er sérstaklega ávarpaður. Nú er ég reyndar ekki lengur í forsvari fyrir skólamálin í borginni en hef þó haft aðkomu að þessu máli sem greinin fjallar um og sjálfsagt að upplýsa um það sem ég þekki til málsins.

Hvaða bakslag?
Fréttir af regnbogafánum sem rifnir eru niður, eyðileggingum á regnbogagötum, nýnasistaáróðri gegn hinsegin fólki, skemmdaverkum á listasýningu í tilefni Hinsegin daga, hatursorðræðu og meiðandi ummælum hafa verið óþgæginlega algengar síðastliðnar vikur hér á landi. Það virðist ógna tilveru einhverra í samfélaginu okkar að fjölbreytileikinn hafi fest sig í sessi á Íslandi.

Hvers vegna óttast stjórnvöld samkeppni svona mikið?
Fólk hræðist stundum breytingar. Það er auðveldara að halda sig við vanann en tækifæri glatast hins vegar þegar vaninn fær alltaf að ráða för. Nýlega voru sagðar fréttir af dómsmáli þar sem hin undirliggjandi saga er einmitt af óþarfa hræðslu við breytingar. Málið snýst um afstöðu hins opinbera til að bjóða út verkefni og opinber innkaup.

Ákall til alþingismanna
Staðreynd: Rekstur leikskóla er ekki lögbundið hlutverk sveitarfélaga. En það ætti að vera það. Það er undir Alþingi að lögfesta slíkt og tryggja fjármögnun fyrsta skólastigsins.

Leigubremsa er raunhæf og skynsamleg
Danir ætla að koma á leigubremsu. Á danska þjóðþinginu er meirihluti fyrir því að takmarka hækkun leiguverðs næstu tvö ár. Hækkanir á húsaleigu verða takmarkaðar við 4% á ári næstu tvö árin en undanskildir verða þeir leigusalar sem sýnt geta fram á að kostnaður vegna húsnæðisins hafi hækkað umfram þá upphæð, t.d. vegna viðhalds.

Veruleikatenging
309 kjarasamningar renna út næstu mánuði. Meðal þeirra eru samningar allra aðildarfélaga Kennarasambands Íslands, auk kjarasamnings BSRB við sveitarfélögin og fjöldi samninga ýmissa félaga háskólamenntaðra við ríki og sveitarfélög.

Nýtum áfengisgjald í félagslega uppbyggingu handa þeim sem hljóta mestan skaða af áfengisneyslu
Rúmlega 31 þúsund manns skrifuðu undir kröfu um Betra líf - mannúð og réttlæti, sem var lögð fram af SÁÁ - Samtökum áhugafólks um áfengis- og vímuefnavandann árið 2012. Snéri hún að því að sérstakt 10% áfengisgjald rynni til þolenda áfengis- og vímuefnavandans. Þar var lagt til að fjármunum yrði varið í að byggja upp félagslega þjónustu á forræði sveitarfélaganna, þar sem þau hafa ekki haft bolmagn til að sinna henni sem skyldi.

Tvöfaldur skellur fyrir tekjulægri
Ríkisstjórnin hefur heykst á að beita tækjum ríkisfjármálanna til að taka á verðbólgunni og látið Seðlabankann einan um verkefnið.

Áhrif hækkunar stýrivaxta á fasteignamarkaðinn
Seðlabanki Íslands hefur gripið til þess að hækka stýrivexti til að slá á mikla þenslu á húsnæðismarkaði. Þetta hefur leitt til þess að vaxtastig hefur hækkað umtalsvert hér á landi undanfarin misseri. Útlit er fyrir að bankinn haldi áfram hækka vexti og því mikilvægt að rýna aðeins í stöðuna sem birtist okkur á lánamarkaði.

Verkkvíði ríkisstjórnar í loftslagsmálum
Það blasir alltaf skýrar við að aðgerðir í loftslagsmálum eru stærsta hagsmunamál komandi kynslóða. Í allt sumar hefur Evrópa glímt við mikla þurrka sem nú stefna í að verða þeir mestu í 500 ár. Þeir hafa valdið uppskerubresti, fiskidauða og truflunum á vöruflutningum. Vatnskortur sem einu sinn þótti óhugsandi er nú yfirvofandi og afleiðingarnar leyna sér ekki.

Raunhæfar lausnir fyrir börn og foreldra í Kópavogi
Leikskólar í hverju sveitarfélagi eru ein af grunnstoðunum samfélagsins. Ekki aðeins sem fyrsta skólastig heldur ekki síður sem þjónusta við börn og foreldra. Í Kópavogi eru um 550 börn sem fá inngöngu í leikskóla haustið 2022.

Húsnæðisvandinn eins og hann birtist bæjarfulltrúa í Hafnarfirði
Ég settist í bæjarstjórn Hafnarfjarðar sumarið 2018 og fyrsta eina og hálfa árið stóðum við andspænis þeim veruleika að stórum hluta lóða sem bæjarráð úthlutaði til einstaklinga var skilað til baka að skömmum tíma liðnum.

Haustboðinn ljúfi
Einhver sagði að það væru bara tveir hlutir sem ekki klikka í lífinu, dauðinn og skattarnir. Við sem búum í Reykjavík myndum mögulega bæta biðlistum reykvískra barna við þennan lista.

Hver þorir að eignast barn í Reykjavík?
Árið 1991 var mamma vinar míns að opna fyrirtæki þegar hún varð ólétt af honum. Hún gat leyft sér mánaðarfrí í kjölfar fæðingarinnar en síðan varð hún að taka barnið með í vinnuna þar til hann varð nógu gamall til að fara til dagforeldris. Börn byrjuðu þá yfirleitt ekki á leikskóla fyrr en um 2 ½ - 3 ára og einungis einstæðir foreldrar fengu leikskóladvöl í heilan dag. Fyrir foreldra í sambúð eða hjúskap bauðst bara hálfur dagur, sem segir sitt um þær væntingar sem gerðar voru til foreldra eða réttar sagt, mæðra.

Óvissuflugið þarf að enda
Reykjanesskagi hefur enn á ný bært á sér. Jarðvísindamenn halda því fram að eldgosið í Meradölum og gosið í Geldingardölum gætu verið upphafið að löngu eldgosatímabili á Reykjanesskaga. Ekki er útilokað að þetta gostímabil gæti virkjað eldstöðvar nær Reykjavík þótt litlar líkur séu þó á því. Við vitum ekki hvað framtíðin ber í skauti sér, en með vitneskju um mögulega ógn af hraunrennsli næstu ár er eðlilegt að við hugum að því hvaða uppbyggingu við viljum fjárfesta í á svæðinu.

Leikskólamál í lamasessi
Ástandið í leikskólamálum borgarinnar er óásættanlegt. Enginn mótmælir því, ekki einu sinni meirihlutinn í borgarstjórn Reykjavíkur.