Umfjöllun, viðtöl og myndir: Valur - Stjarnan | Jafnt á Hlíðarenda í fyrsta leik eftir landsleikjahlé Besta deild-kvenna fór aftur á stað eftir að hlé var gert á deildinni vegna þátttöku Íslands á EM. Stjarnan heimsótti topplið Vals. Bæði mörkin komu í fyrri hálfleik og voru keimlík. Íslenski boltinn 28. júlí 2022 21:59
Betsy semur við Wellington Pheonix | „Draumur að rætast“ Betsy Hassett, leikmaður Stjörnunnar í Bestu-deild kvenna, mun yfirgefa liðið í lok leiktíðar til að fara á heimaslóðir í Nýja-Sjálandi og leika á lánssamningi með Wellington Pheonix í áströlsku A-deildinni. Betsy segir draum sinn vera að rætast að leika í A-deildinni með nýsjálensku liði en þetta verður í fyrsta skipti sem lið staðsett í Nýja-Sjálandi mun leika í áströlsku A-deildinni. Fótbolti 25. júlí 2022 17:30
Íslenskur úrslitaleikur á 167 liða alþjóðlegu móti Íslensk lið gera það gott á Gothia Cup í Gautaborg í Svíþjóð, en um er að ræða stærsta unglingamót heims í fótbolta. Þriðja flokks lið Stjörnunnar og Víkings munu mætast í úrslitum í U16 ára flokki í kvöld. Fótbolti 23. júlí 2022 10:31
Sjáðu stórbrotið mark Ólafs Karls Ólafur Karl Finsen skoraði stórkostlegt mark, vafalítið það fallegasta í sumar, þegar Stjarnan vann ÍA 3-0 í Bestu deildinni í fótbolta á Akranesi í gær. Íslenski boltinn 18. júlí 2022 10:02
Umfjöllun og viðtöl: ÍA-Stjarnan 0-3| Ólafur Karl skoraði úr hjólhestaspyrnu í sannfærandi sigri Stjarnan komst aftur á sigurbraut eftir sannfærandi sigur á Skagamönnum. Annað mark Stjörnunnar gerir tilkall sem mark ársins þar sem Ólafur Karl Finsen skoraði úr hjólhestaspyrnu. Ísak Andri Sigurgeirsson bætti við þriðja marki Stjörnunnar í síðari hálfleik og þar við sat. Íslenski boltinn 17. júlí 2022 21:55
Stjarnan semur við Adama Darboe „Það verða ekki bara danskir dagar í Hagkaup næsta vetur,“ segir í tilkynningu Stjörnunnar sem hefur öflugan liðsstyrk fyrir næsta tímabil frá KR-ingum í Dananum Adama Darboe. Körfubolti 16. júlí 2022 07:02
Óli Valur mættur til Sirius Besta deild karla í fótbolta heldur áfram að missa skemmtikrafta úr deildinni. Fyrr í morgun var staðfest að Kristall Máni Ingason væri búinn að skrifa undir hjá Rosenborg og nú hefur sænska úrvalsdeildarfélagið IK Sirius staðfest komu Óla Vals Ómarssonar. Fótbolti 13. júlí 2022 09:30
Umfjöllun og viðtöl: Stjarnan-Leiknir R. 0-3 | Leiknismenn völtuðu yfir Stjörnuna í fyrri hálfleik Leiknismenn sóttu þrjú stig í Garðabæinn í kvöld þegar þeir sigruðu Stjörnuna í Bestu deild karla í knattspyrnu. Lokatölur 3-0 en öll mörk Leiknis komu í fyrri hálfleik þar sem þeir léku við hvern sinn fingur. Íslenski boltinn 11. júlí 2022 22:08
Sigurður Heiðar: Sex leikir í röð sem við erum ánægðir með „Fyrri hálfleikur var mjög góður og í seinni hálfleik taka þeir leikinn yfir eðlilega. Við erum ekki vanir því í sumar að vera í forystu þannig að það var skjálfti í mönnum og menn vildu passa upp á sitt,“ sagði Sigurður Heiðar Höskuldsson þjálfari Leiknis eftir 3-0 sigur á Stjörnunni í Garðabæ í kvöld. Fótbolti 11. júlí 2022 21:37
Óli Valur mögulega á leið til Svíþjóðar Sænska úrvalsdeildarfélagið Sirius hefur mikinn áhuga á Óla Val Ómarssyni, hægri bakverði Stjörnunnar og einni skærustu stjörnu Bestu deildar karla í fótbolta. Fótbolti 6. júlí 2022 14:01
Umfjöllun og viðtöl: FH-Stjarnan 1-1 | Enn eitt jafntefli liðanna eftir æsilegar lokamínútur FH og Stjarnan þurfa að deila stigunum sem voru í boði í dag eftir að hafa gert jafntefli 1-1 í Kaplakrika. Leikurinn var í hægara lagi og fá færi litu dagsins ljós þangað til í uppbótartíma en Stjarnan jafnaði metin þegar lítið var eftir og bæði lið hefðu getað skorað í uppbótartíma. FH komst tvisvar í góða skyndisókn og Stjarnan skaut í stöng. Íslenski boltinn 4. júlí 2022 22:00
Fram staðfestir kaupin á Brynjari Gauta Miðvörðurinn Brynjar Gauti Guðjónsson er orðinn leikmaður Fram í Bestu deild karla en félagið staðfesti félagsskiptin inn á miðlum sínum. Íslenski boltinn 4. júlí 2022 13:04
Lið í Kenía leikur í búningum Stjörnunnar Lið Garden Ego FC í Kenía leikur nú leiki sína í búningum Stjörnunnar. Geta leikmenn liðsins þakkað íslenska félaginu fyrir þessa veglegu gjöf en ekkert af þessu hefði gerst ef ekki væri fyrir Eric Ndayisaba. Fótbolti 22. júní 2022 08:01
Markasúpa á nýjum heimavelli Fram, Ísak Snær sneri aftur og Atli bjargaði KR Þrír leikir fóru fram í Bestu deild karla í gærkvöldi. Fram vígði nýjan heimavöll og bauð til veislu er ÍBV kom í heimsókn. Stjarnan tók á móti KR og Breiðablik skoraði fjögur gegn KA. Íslenski boltinn 21. júní 2022 10:30
Umfjöllun og viðtöl: Stjarnan-KR 1-1 | Atli náði að næla í stig fyrir KR gegn Stjörnunni Stjarnan og KR skildu jöfn, 1-1, þegar liðin mættust á Samsung-vellinum í Garðabænum í 10. umferð Bestu deildar karla í fótbolta í kvöld. Íslenski boltinn 20. júní 2022 21:07
Júlíus Orri gengur til liðs við Stjörnuna | Gunnar og Tómas framlengja Penninn var á lofti í Garðabænum í dag þar sem bakvörðurinn Júlíus Orri Ágústsson samdi við Stjörnuna um að leika með liðinu næstu tvö ár í Subway-deil karla í körfubolta. Þá framlengdu þeir Gunnar Ólafsson og Tómas Þórður Hilmarsson samningum sínum við félagið. Körfubolti 20. júní 2022 17:30
Umfjöllun og viðtöl: Stjarnan - ÍBV 4-0 | Sanngjarn sigur heimakvenna Stjarnan og ÍBV mættust í síðasta leik Bestu deildar kvenna fyrir EM kvenna í knattspyrnu fyrr í dag í Garðabænum. Stjarnan var mikið betri aðilinn í seinni hálfleik og uppskar þrjú mörk eftir að hafa sótt án afláts seinni 45 mínúturnar. Leikurinn endaði 4-0 og þótti sigurinn sanngjarn. Íslenski boltinn 19. júní 2022 19:20
Kristján: Þurftum að brjóta upp leikinn Kristján Guðmundsson, þjálfari Stjörnunar, var að vonum ánægður eftir sigur síns liðs gegn ÍBV í Bestu deild kvenna í dag. Fótbolti 19. júní 2022 19:16
Ægir Þór: Þarf ekki að vera feluleikur Ægir Þór Steinarsson, landsliðsmaður í körfubolta, stefnir á að vera áfram í atvinnumennsku en er þó opin fyrir því að koma aftur til Íslands. Körfubolti 17. júní 2022 22:30
Umfjöllun og viðtöl: Keflavík-Stjarnan 2-2 | Jafnt í fjörugum leik suður með sjó Keflavík og Stjarnan gerðu 2-2 jafntefli í fjörugum leik í Bestu deild karla í knattspyrnu í kvöld. Stjörnumenn komust yfir í tvígang en heimamenn sýndu karakter og komu til baka í bæði skiptin. Íslenski boltinn 16. júní 2022 22:14
Sindri Kristinn: „Það er bara bannað og Villi veit það“ Sindri Kristinn Ólafsson átti fínan leik í marki Keflavíkur þegar liðið gerði 2-2 jafntefli við Stjörnuna í Bestu deild karla í knattspyrnu í kvöld. Hann var ekki sáttur með að annað mark Stjörnunnar í leiknum hafi fengið að standa. Fótbolti 16. júní 2022 21:43
Fyrsti sigur Keflvíkinga í rúman mánuð Keflavík vann langþráðan 1-0 sigur er liðið tók á móti Stjörnunni í níundu umferð Bestu-deildar kvenna í fótbolta í kvöld. Íslenski boltinn 14. júní 2022 21:12
Stjarnan fyrsta liðið í undanúrslit Stjarnan varð í kvöld fyrsta liðið til að tryggja sér sæti í undanúrslitum MJólkurbikars kvenna er liðið vann öruggan 1-4 útisigur gegn ÍBV. Fótbolti 10. júní 2022 19:20
Umfjöllun: Stjarnan - Þór/KA 5-0 | Stjarnan komst upp að hlið Vals á toppi deildarinnar Stjarnan jafnaði Val að stigum á toppi Bestu deildar kvenna í fótbolta með afar sannfærandi 5-0 sigri sínum þegar liðið fékk Þór/KA í heimsókn á Samsung-völlinn í áttundu umferð deildarinnar í dag. Íslenski boltinn 6. júní 2022 15:49
Stjarnan setur gríðarlega pressu á Val með sigri Fari svo að Stjarnan vinni Þór/KA í Bestu deild kvenna í dag þá er liðið með jafn mörg stig og Íslandsmeistarar Vals á toppi deildarinnar. Íslenski boltinn 6. júní 2022 11:00
Fertugur Hlynur framlengir um ár Körfuknattleiksmaðurinn Hlynur Bæringsson hefur framlengt samning sinn við Stjörnuna og mun taka slaginn með liðinu í Subway deildinni á næstu leiktíð. Körfubolti 4. júní 2022 09:30
Umfjöllun og viðtöl: Þróttur R. 0-1 Stjarnan | Þrótturum misstókst að sækja toppsætið Stjarnan vann í kvöld 0-1 útisigur á Þrótti á Eimskipavellinum í sjöundu umferð Bestu deildar kvenna. Gyða Kristín Gunnarsdóttir skoraði eina mark leiksins. Íslenski boltinn 1. júní 2022 21:00
Hrósar umgjörðinni hjá Stjörnunni en segir stuðninginn mega vera meiri Þróttarinn Álfhildur Rósa Kjartansdóttir og Stjörnukonan Heiða Ragney Viðarsdóttir voru gestir Helenu Ólafsdóttir í upphitunarþætti Bestu markanna fyrir 7. umferð Bestu deildar kvenna sem hefst á morgun. Íslenski boltinn 31. maí 2022 12:00
Umfjöllun og viðtöl: Stjarnan 1-0 ÍBV | Einstaklingsframtak Óla Vals tryggði Stjörnunni stigin þrjú Stjarnan sigraði ÍBV á Samsung vellinum í 8. umferð Bestu-deildar karla, 1-0, eftir glæsilegt mark frá Óla Val Ómarssyni. Íslenski boltinn 29. maí 2022 20:23
KR og Þór/KA með stórsigra | Stjarnan marði FH Þremur leikjum af fimm í Mjólkurbikar kvenna í fótbolta er nú lokið. KR vann 6-0 stórsigur á Akranesi, Þór/KA vann 6-0 sigur á Haukum og Stjarnan vann nauman 1-0 útisigur á FH. Fótbolti 28. maí 2022 16:30