Einvígi góðkunningjanna Sigurður Ingimundarson og Teitur Örlygsson eru ekki að mætast í fyrsta sinn í úrslitakeppni en það eru æskuvinirnir Benedikt Guðmundsson og Ingi Þór Steinþórsson að gera. Tvö einvígi í átta liða úrslitunum fara af stað í kvöld. Körfubolti 30. mars 2012 07:00
Hjalti tekur við Fjölni - Gunnar ekki áfram með ÍR Hjalti Þór Vilhjálmsson mun taka við þjálfun Fjölnisliðsins í Iceland Express deild karla í körfubolta en þetta kemur fram á karfan.is í kvöld. Fjölnir lét Örvar Þór Kristjánsson fara á dögunum. Karfan.is segir einnig frá því að Gunnar Sverrisson muni ekki þjálfa áfram lið ÍR. Körfubolti 29. mars 2012 21:57
KR-ingar öflugir á lokasprettinum - myndir KR-ingar eru komnir í 1-0 á móti Tindastól í einvígi liðanna í átta liða úrslitum Iceland Express deildar karla eftir sextán stiga sigur í DHL-höllinni í kvöld, 84-68. Körfubolti 29. mars 2012 21:38
Umfjöllun og viðtöl: KR - Tindastóll 84-68 KR er komið með yfirhöndina í fjórðungsúrslitaeinvíginu gegn Tindastóli eftir 84-68 sigur í Vesturbænum í kvöld. Aðeins munaði þremur stigum fyrir lokaleikhlutann en KR-ingar völtuðu yfir gestina í lokafjórðungnum og unnu sanngjarnan sigur. Körfubolti 29. mars 2012 11:08
Umfjöllun og viðtöl: Grindavík - Njarðvík 94-67 Grindavík tók 1-0 forystu í einvígi sínu gegn Njarðvík í fjórðungsúrslitum úrslitakeppni Iceland Express-deildar karla með öruggum sigri í Röstinni í kvöld. Körfubolti 29. mars 2012 11:06
Pressan er á Grindavík og KR Grindavík og KR hefja leik í úrslitakeppni Iceland Express-deildar karla í kvöld. Bæði lið keppa við söguna, KR hefur ekki varið Íslandsmeistaratitil í 33 ár og Grindavík hefur aldrei orðið deildarmeistari og Íslandsmeistari á sama ári. Körfubolti 29. mars 2012 06:00
Örvari sagt upp hjá Fjölni Stjórn körfuknattleiksdeildar Fjölnis ákvað að segja upp samningi Örvars Þórs Kristjánssonar þjálfara liðsins á síðustu leiktíð. Fjölnir missti naumlega af sæti í úrslitakeppninni á dögunum. Körfubolti 28. mars 2012 13:04
Umfjöllun og viðtöl: Skallagrímur aftur upp í úrvalsdeild Skallagrímsmenn tryggðu sér sæti í Iceland Express deild karla með öruggum 22 stiga sigri á nágrönnum sínum í ÍA, 89-67, í oddaleik um sæti úrvalsdeildinni en leikurinn fór fram fyrir troðfullu húsi í Borganesi í kvöld. Körfubolti 27. mars 2012 13:24
Bullock og Benedikt stóðu sig best í seinni hlutanum J'Nathan Bullock leikmaður Grindavíkur og Benedikt Guðmundsson, þjálfari Þór úr Þorlákshöfn voru kosnir bestir í seinni hluta Iceland Express deildar karla í körfubolta en tilkynnt var um valið á blaðamannafundi fyrir komandi úrslitakeppni karla. Það er sérstök valnefnd á vegum KKÍ sem kýs. Körfubolti 26. mars 2012 16:03
Skallagrímur hafði betur í stútfullu Fjósinu Skallagrímur er kominn með forystu í einvíginu gegn ÍA um laust sæti í efstu deild karla í körfuknattleik. Borgnesingar lögðu Skagamenn 91-82 í fyrsta leik liðanna í Borgarnesi í gærkvöldi. Körfubolti 24. mars 2012 10:00
Svali Björgvins spáir í spilin í úrslitakeppnum körfuboltans Svali Björgvinsson mætti til Valtýs Bjarnar Valtýssonar í Boltanum á X-inu 977 í dag og fór yfir íslenska körfuboltann en framundan er úrslitakeppnin í Iceland Express deild karla og kvenna. Svali fór líka yfir gang mála í umspili um sæti í Iceland Express deild karla auk þess að hann og Valtýr ræddu aðeins stöðuna í NBA-deildinni. Körfubolti 23. mars 2012 15:30
Þór nældi í þriðja sætið - myndir Nýliðar Þórs frá Þorlákshöfn gerðu sér lítið fyrir og lönduðu þriðja sætinu í deildarkeppni Iceland Express-deildar karla. Þeir munu mæta Snæfelli í úrslitakeppninni. Körfubolti 23. mars 2012 06:00
Benedikt: Við hræðumst engan "Það er ásættanlegt miðað við nýliða að ná þriðja sæti," sagði glaðbeittur Benedikt Guðmundsson þjálfari Þórs eftir sigurinn á Haukum í kvöld. Hann tryggði nýliðunum þriðja sætið í deildarkeppni Iceland Express-deildar karla. Körfubolti 22. mars 2012 21:45
Lokaumferð IE-deildar karla | Hvaða lið mætast í úrslitakeppninni? Það var gríðarleg spenna er lokaumferð Iceland Express-deildar karla fór fram. Barist var um lokasætin í úrslitakeppninni sem og efstu sætin í deildinni. Körfubolti 22. mars 2012 21:08
Umfjöllun og viðtöl: Fjölnir 98 - Keflavík 99 Fjölnismenn voru grátlega nálægt því að tryggja sér sæti í úrslitakeppni Iceland Express deild karla í 99-98 tapi í framlengingu gegn Keflavík í kvöld. Körfubolti 22. mars 2012 19:00
Umfjöllun og viðtöl: Haukar - Þór Þorlákshöfn 79-85 Þór sigraði Hauka 79-85 á útivelli í lokaumferð Iceland Express deildar karla í kvöld. Þrátt fyrir hetjulega baráttu Hauka sem þegar voru fallnir í 1. deild og góðan endasprett náði Þór að knýja fram sigur og tryggja sér þriðja sæti deildarinnar. Körfubolti 22. mars 2012 19:00
Eitt stórt reikningsdæmi í lok kvölds Það gæti þurft dágóðan tölfræðiútreikning eftir lokaumferð Iceland Express-deildar karla í kvöld en þá verður barist bæði um annað sætið og síðasta sætið inn í úrslitakeppnina. Sjö lið hafa tryggt sér sæti inn í úrslitakeppnina en enginn veit hverjir mæta Körfubolti 22. mars 2012 08:00
Úrslit kvöldsins í Iceland Express-deild karla Þrír leikir fóru fram í Iceland Express-deild karla í kvöld. Þar unnu Grindavík, Keflavík og Þór Þorlákshöfn öll sigra. Körfubolti 19. mars 2012 21:04
Vesturlandsslagur í úrslitum 1. deildar karla í körfubolta Það verða Vesturlandsliðin og nágrannarnir Skallagrímur og ÍA sem mætast í úrslitaeinvíginu í 1. deild karla í körfubolta en bæði lið unnu undanúrslitaeinvígi sín 2-0. ÍA vann 86-72 sigur á Hamar á Akranesi í kvöld en Skallagrímur tryggði sig áfram með 88-77 sigri á Hetti á Egilsstöðum. Körfubolti 18. mars 2012 21:38
Haukar féllu í DHL-höllinni | Úrslit kvöldsins í körfunni Haukar féllu úr Iceland Express deild karla í kvöld þegar liðið tapaði með sex stigum á móti KR í DHL-höllinni, 98-92 en sigurinn var mjög mikilvægur Vesturbæjarliðinu í baráttunni um annað sæti deildarinnar. Körfubolti 18. mars 2012 21:15
Snæfellingar farnir að vinna jöfnu leikina - unnu Stólana í kvöld Snæfell vann níu stiga sigur á Tindastól, 89-80, í 21. umferð Iceland Express deild karla í körfubolta í kvöld. Snæfell náði Keflavík að stigum í 5. sætinu með þessum þriðja sigri liðsins í röð en Hólmarar eru áfram í 6. sætinu vegna lakari árangurs í innbyrðisleikjum. Tindastóll er öruggt í úrslitakeppnina þrátt fyrir tapið þar sem að Fjölnir vann ekki sinn leik. Körfubolti 18. mars 2012 21:02
Stjörnumenn gefa ekkert eftir í baráttunni um 2. sætið Stjarnan vann átta stiga sigur á Fjölni, 82-74, í 21. umferð Iceland Express deild karla í körfubolta í kvöld og ætla ekki gefa neitt eftir í baráttunni um annað sæti deildarinnar. Stjarnan hefur tapað mörgum heimaleikjum í vetur en landaði tveimur mikilvægum stigum í kvöld. Körfubolti 18. mars 2012 20:52
Stjarnan lagði Keflavík | Þór tapaði og KR skaust í annað sætið Stjarnan komst í þriðja sæti Iceland Express-deildar karla í körfuknattleik með öruggum sigri á Keflavík suður með sjó. Þór frá Þorlákshöfn beið lægri hlut gegn Tindastóli fyrir norðan eftir fimm sigurleiki í röð og féll niður í fjórða sætið. Þá vann KR skyldusigur gegn Val og skaust í annað sætið. Körfubolti 16. mars 2012 20:52
Ingi Þór fagnaði sigrinum með einum Boxmaster Ingi Þór Steinþórsson, þjálfari Snæfells, var kampakátur eftir sigur sinna manna á deildarmeisturum Grindavíkur í kvöld. Snæfell tryggði sig inn í úrslitakeppnina með sigrinum. Körfubolti 15. mars 2012 21:28
Haukar enn á lífi eftir fimm stiga sigur í Seljaskóla Haukar eiga enn möguleika á að bjarga sæti sínu í Iceland Express deild karla í körfubolta eftir fimm stiga sigur á ÍR í Seljaskólanum í kvöld, 92-87, en úrslit annarra leikja þýddu að Haukarnir hefðu fallið með tapi. Körfubolti 15. mars 2012 20:53
Fjölnismenn unnu Njarðvík og eiga enn möguleika Fjölnismenn enduðu fjögurra leikja taphrinu, fóru langt með að bjarga sér frá falli og eru enn með í baráttunni um sæti í úrslitakeppninni eftir 18 stiga sigur á Njarðvík í Grafarvoginuum í Iceland Express deild karla í körfubolta í kvöld, 92-74. Fjölnismenn gerðu út um leikinn með því að vinna fjórða leikhlutann 29-17. Körfubolti 15. mars 2012 20:50
Umfjöllun og viðtöl: Grindavík - Snæfell 89-101 Snæfell vann sterkan sigur á deildarmeisturum Grindavíkur í kvöld. Grindavík þurfti því að lyfta deildarbikarnum við frekar leiðinlegar aðstæður en þetta var annar tapleikur liðsins í röð. Körfubolti 15. mars 2012 13:55
Fyrsti útisigur ÍR-inga á árinu 2012 | Unnu Stjörnuna í Ásgarði ÍR-ingar voru búnir að tapa öllum fjórum útileikjum sínum á árinu 2012 þegar þeir sóttu sigur í Garðabæinn í 19. umferð Iceland Express deild karla í kvöld. ÍR vann leikinn 102-98 eftir að Stjörnumenn sóttu talsvert að þeim undir lok leiksins. Körfubolti 9. mars 2012 21:02
Þórsarar skelltu nýkrýndum deildarmeisturum Grindavíkur | Komnir í 2. sætið Þórsarar úr Þorlákshöfn eru komnir upp í annað sæti Iceland Express deildar karla eftir tíu stiga sigur á nýkrýndum deildarmeisturum Grindavíkur, 79-69, í Icelandic Glacial höllinni í Þorlákshöfn í kvöld. Grindavík var búið að vinna tíu deildarleiki í röð fyrir leikinn í kvöld og þetta var aðeins annað deildartap Grindvíkinga á tímabilinu. Körfubolti 9. mars 2012 20:58
Snæfellingar aftur á sigurbraut | Fjölnir næstum því búið að stela sigrinum Snæfell endaði þriggja leikja taphrinu sína í Iceland Express deild karla í körfubolta í kvöld með því að vinna nauman 89-86 sigur á Fjölni í Stykkishólmi. Snæfellsliðið var með gott forskot fram eftir öllum leik en var næstum því búið að kasta frá sér sigrinum í lokin. Körfubolti 9. mars 2012 20:53